Færsluflokkur: Menntun og skóli

Frítt í strætó fyrir Hannes á horninu

Fáum Hjálpræðisherinn til að setja upp söfnunarbauk og krefjumst þess að  Reykjavíkurborg  veiti honum  frítt í strætó og sund.                  

hannesholmsteinn2

 

 

 

 

 

Hannes á horninu, hélt hann væri óséður en uggði ekki að sér fyrir vökulum augum ljósmyndarans.


mbl.is Söfnun fyrir Hannes Hólmstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanríkisráðherra

Stundum hefur það dugað stjórnmála mönnum til fylgis að geta bent á töfralausnir svo sem sauðnaut, mink og  laxeldi. Sjónhverfingar eins og að leysa tröllvaxin vandamál sjávarútvegs með því að okra á byggðakvóta eru af sama toga. Ljóst er að ekki er hægt að kenna krónunni um verðbólgu, ekki frekar en hægt er að kenna henni um hagstjórnarleg mistök. Og ekki verður krónunni kennt um að ríkissjónin fór ekki að ráðum OECD sem hvatti hana til að draga úr þenslu en þeir vildu ekki hlusta. Nú virðist það henta mörgum að fá blóraböggul, þá beinist athyglin frá þeim sjálfum og þeir geta á meðan einbeitt sér ótruflaðir að því að leysa vandamál Íraks og Afganistan. newgov_11.06.07

  • Nú liggur fyrir að ef við missum krónuna töpum við hagstjórnartæki og hér gæti myndast stórfellt atvinnuleysi ef tekjur dragast saman.
  • Enn meiri nauðsyn yrði að  sýna varkárni í hagstjón því ekki væri hægt að breyta gengi, þó tekjur brygðust
  • Algjör nauðsyn yrði að sýna hófsemd í launahækkunum af sömu  ástæðum, að öðrum kosti brysti á fjöldaatvinnuleysi.
  • Upptaka Evru er því aðeins möguleg að Ísland gangi í Evrópusambandið og afsali sér forræði yfir fiskimiðunum.
  • Jafnvel þó samningar myndu nást um slíkt tæki ferlið 5-6 ár.
  • Skilyrði fyrir inngöngu er að hér sé verðbólga undir 2,5%, þannig að það eru blekkingar að Íslendingar geti komið verðbólgunni niður með því að ganga í Evrópusambandið. Því er öfugt farið.
  • Með því að utanríkisráðherra er sífellt að tala niður krónuna er hún að dýpka vandann og fjarlægjast markmið sitt sem er að koma Íslandi í Evrópusambandið.

mbl.is Erfiðar ákvarðanir framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir Árni Johns um þetta?

c_arnijohnsen
Nú þegar Árni M. Mathisen er að hverfa úr pólitíkinni liggur fyrir að Árni Johns verður oddviti sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og væntanlegt ráðherraefni.  Þá er vandséð hvernig flokkurinn getur staðið gegn kröfum  Árna sem þekkir betur til jarðgangnagerðar en flestir.xd_falki

med_ArniMMathiesen-_I4Y1715


mbl.is Varar við Sundagöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturla eflist við hverja dáð

  • Sturla Böðvarsson  var sem samgönguráðherra mikilvægur stuðningsmaður  flugvallarins í Vatnsmýrinni  og  hefur verið í fréttum undanfarið, sem einn ötulasti talsmaður þess að þeirri herkví sem flugvallarmálið hefur verið í verði aflétt. 
  • Embætti  forseta alþingis er  mikilvægt og ekki hef ég heyrt annað en hann njóti trausts  þingheims alls.  Þetta er kannski ekki síst  áríðandi þar sem  framkvæmdavaldið  hefur haft  tilhneigingu til að  seilast inn á verksvið löggjafavaldsins.   Nú á dögunum  gekk fjármálaráð herra lengra í valdhroka en áður hefur verið gert.  Þá  rann forseta blóðið til skyldunnar , sem forseti þingsins og skaut skildi fyrir  umboðsmann  alþingis.  
  • Nú styttist óðum sá tími sem mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gaf ríkisstjórninni til að skýra hvernig hún hafi leyst úr mannréttindabrotum kvótakerfisins.   Ég bind vonir við að Sturla geti lagt þar drjúga hönd á plóg, þ.e. ef ríkisstjórnin ætlar ekki að hundsa álitið eins og Geir Haarde hefur raunar hótað. Tvennt kemur þar til:   Í fyrsta lagi er Sturla samningamaður sem nýtur trausts. Hitt er jafnvel enn mikilvægara að hann hefur  mun meiri  skilning á sjávarútvegi en flestir samflokksmenn hans á þingi. Að því leyti til myndi hann sóma sér vel í Frjálslynda flokknum.                                          %7B73e5effe-dd6e-40c4-9cb7-6f280fc4649a%7D_sturla_large

Allir geta fengið lyfið innan tíðar! Vonandi fá MS sjúklingar bót

Það eru óneitanlega góðar fréttir ef tekist hefur að finna gott lyf við MS. Mér er þetta hugleikið  enda á ég góða vini og ættingja sem eiga við sjúkdóminn að stríða. Mænusigg, sem í daglegu tali gengur undir nafninu MS er taugasjúkdómur sem tengist röskun ónæmiskerfisins.  Það er merkilegt að þessi sjúkdómur virðis að mestu bundinn við Vesturlönd. Eftir samtöl mín við fólk sem þekki sjúkdóminn af eigin raun er ég sannfærður um að umhverfisþátturinn þ.m.t. rétt hreyfing, mataræði og hvíld hafa verið stórlega vanmetin. miklar vonir hafa verið bundnar við nýjasta lyfið, Tysabri, sem 14 sjúklingar fengu til að byrja með en áætlað er sá hópur stækki í 50 manns næstu daga. Erlendar rannsóknir á lyfinu sýna afgerandi árangur og sú litla reynsla sem hefur verið innanlands lofar góðu. Að sögn Hauks Hjaltasonar taugalæknis má reikna með að allir geti fengið lyfið innan tíðar:                                    Nánar fræðslufundur MS um lyfið.
mbl.is Reynsla af Tysabri góð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer Árni M. Matthisen í Öryggisráðið? --Aukin harka í kosningabaráttunni

teodoro_obiang_nguemaÞað færist sífellt meiri þungi í kosningabaráttuna um sætin tvö í öryggisráðuneytinu sem Ísland keppir um við Austurríki og Tyrkland. Hjá utanríkisþjónustunni er valin maður í hverju rúmi og allir leggjast allir á eitt undir styrkri forystu Kristínar A. Árnadóttur. Ingibjörg Sólrún tók við góðu búi af Halldóri Ásgrímssyni, sem stofnað hafði til stjórnmálasambands við fjölda ríkja og auka þannig líkur á kjöri. Má þar nefna Miðbausgíneu, en þar ríkir Teodoro Neguma,  sem telur sig vera Guð og étur kynfæri andstæðinga sinna. Ingibjörg hefur líka staðið sig frábærlega og nú síðast kom hún úr frækinni för til Afganistan og jafnvel er talið mögulegt að Afganistan muni styðja framboð Íslands. Menn eru orðnir svo bjartsýnir að þeir eru í fullri alvöru að gæla við hugmyndina um að Ísland nái kosningu og hvaða stjórnmálamaður hreppi hnossið. Í því sambandi hefur jafnvel verið um Árna Matt, sem verður sífellt óvinsælli og ljóst er að finna verður nýtt starf fyrir hann.

Teodoro Nguema einræðisherra mun styðja Ísland


Löggæsla á Suðurnesjum í molum. Góðar fréttir fyrir verndartollheimtumenn.

Sá gríðarlegi ofvöxtur sem hlaupið hefur í utanríkisþjónustuna (samanber ýta hér), virðist hafa orðið til þess að ríkisstjórnin ákvað að spara á öðrum stöðum. Það sem fyrst og harðast hefur orðið fyrir hnífnum eru fíkniefnahundar, lög- og tollgæsla á Suðurnesjum og Keflavíkurflugvelli. Í gær ályktuðu tollverðir að : Að fíkniefnaeftirlit, tolleftirlit, eftirlit með innflutningi á vopnum og öðrum ólöglegum varningi og innheimta aðflutningsgjalda verði óskilvirkari og versni í kjölfar þeirra breytinga sem ríkisstjórnin boðar.   Nú telur Jóhann R. Benediktsson núverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum ástandið svo alvarlegt að hann hefur sagt upp í mótmælaskyni.               

%7B090bd35e-60a9-414f-91e1-7757be69a783%7D_tollur1676878

 

 Vonum að Mafían frétti ekki af ástandinu

 

 

Tollverðir og lögregla vinna mikilvæg störf í þágu borgarana.


mbl.is Lögreglustjóri á Suðurnesjum sagði upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndir styðja tollverði ekki verndartollverði

%7B090bd35e-60a9-414f-91e1-7757be69a783%7D_tollur1

Það setur óhug að mörgum við tilhugsunina um þá fjölmenningarlegu stefnu stjórnvalda að gera ekkert til að hindra innstreymi verndartollheimtumanna til landsins. Tillögur frjálslyndra um að hindra aðgang fólks með slæman sakaferil var illa tekið. Góðu heilli hafa stjórnvöld ákveðið  að  sýna ráðdeild en fæstir bjuggust við að spara þyrfti fóður við fíkniefnahunda og skera niður hjá lögreglu og tollvörðum á Keflavíkurflugvelli. Þetta stingur í stúf við gríðarlega eyðslu og vöxt utanríkisþjónustunnar. Margir héldu að toppnum væri náð þegar Halldór Ásgrímsson stofnaði til stjórnmálasambands við mannætu sjá hér   en Ingibjörg  Sólrún virðist hafa einsett sér að verða ekki eftirbátur hans. Tollverðir  ályktuðu eftirfarandi í kvöld: "Tollverðir óttast að fíkniefnaeftirlit, tolleftirlit, eftirlit með innflutningi á vopnum og öðrum ólöglegum varningi og innheimta aðflutningsgjalda verði óskilvirkari og versni í kjölfar þessara breytinga."

Tökum undir þetta styðjum tollverði ekki verndartollheimtumenn 

 

 


Árna M. Mathiesen undirbýr brottför og þarf ekki tiltrú kjósenda

med_ArniMMathiesen-_I4Y1715Þá liggur það fyrir að Árni  M. Mathiesen er endanlega búinn að gera það upp við sig að hann þurfi ekki á tiltrú kjósenda að halda. Það hefur verið umdeilt hvort rétt hafi verið af honum sem fjármálaráðherra að varpa allri ábyrgð á verðbólgunni yfir á seðlabankann, þá hefur verið fundið að því að ráðstafa ríkiseigum á Keflavíkurflugvelli undir markaðsvirði til velþóknanlegra. En nú tekur steininn úr, bréf hans til umboðsmanns alþingis er svo dónalegt að reyndir lögmenn halda því fram að það sé algerlega fordæmalaust. Umboðsmaður alþingis var einungis að sinna lögbundinni skyldu sinni og kanna forsendur ráðningar Þorsteins Davíðssonar í stöðu héraðsdómara. Með því að sýna umboðsmanni og kjósendum sínum slíkan hroka gefur hann þeim sögusögnum byr undir báða vængi að hann muni taka við forstjórastól Landsvirkjunar.

Árni notar tækifærið og sýnir umboðsmanni fingurinn 


mbl.is Vill utandagskrárumræðu um ummæli Árna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir úr höfuðborginni

reykjavik_bankastraeti_nordur512 Það hefur lengi vantað heildarskipulag fyrir miðbæ Reykjavíkurborgar, með einni undantekningu, sem er Grjótaþorpið og eru menn fyrst nú að vakna upp við vondan draum til að huga að þessu.  Þær sögur ganga fjöllum hærra að braskarar kaupi upp gömul hús, sem hafa menningarsögulegt gildi sem hluti af heildarmynd og sjái hag sínum best borgið með því að þau drabbist niður svo leyfi fáist til að byggja á dýrum lóðum. Nú sjást merki þess að borgararnir séu vaknaðir og séu að ýta við stjórnmálamönnunum. Góðverkssamtökin betri bær hafa málað yfir veggjakrot og sóðaskap í miðborg Reykjavíkur og er það vel. Okkur Reykvíkingum stendur ekki á sama, við viljum ekki slömm í miðbænum.
mbl.is Máluðu yfir veggjakrot í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband