Færsluflokkur: Menntun og skóli
Robert Mugabe styður Ísland í öryggisráðið. Uppnám í utanríkisráðuneytinu
Laugardagur, 5. apríl 2008

Talið er víst að Robert Mugabe styðji setu Íslands í öryggisráðinu þetta hefur verið rakið til þess að hann og Halldór Ásgrímsson eiga sameiginlegan kunningja. Þess utan eiga ríkisstjórninr Zimbabwe og Íslands það sameiginlegt að hafa sætt ákúrum mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir mannréttindabrot á þegnum sínum. Áreiðanlegar heimildir herma að uppnám ríki hjá utanríkisþjónustunni eftir að staða Mugabe veiktist í kjölfar þess að Lýðræðishreyfing vann kosningasigur. Menn binda helst vonir við að Robert Mugabe muni beita hervaldi til að tryggja sér áframhaldandi völd í landinu, enda myndi það styrkja stöðu Íslands. Einnig er mögulegt að ZANU-PF láti fara fram aðra umferð kosninga.
![]() |
Ræddi framboð Íslands í öryggisráðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ætla að byrja þennan dag skynsamlega
Laugardagur, 5. apríl 2008


![]() |
Fiskur gerir börnin greindari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ekki hækka stýrivexti! Ekki meir, ekki meir.
Föstudagur, 4. apríl 2008
Ég treysti því að seðlabankinn sé þess áskynja að efnahagslífið er að kólna hratt núna. Það vita það allir vanir bílstjórar að það er stórhættulegt að snarhemla í hálku. Það er erfitt og kostnaðarsamt fyrir verktaka að hætta í miðjum verkum, betra er að klára það sem menn eru í og byrja ekki á nýjum. Bíllinn er byrjaður að dansa á götunni.
Kæri Davíð, ekki fara á taugum og rífa upp handbremsuna. Fótbremsan er byrjuð að virka!
![]() |
Glitnir spáir stýravaxtahækkun í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ólafur F. Magnússon lætur verkin tala, góðar fréttir úr borginni
Fimmtudagur, 3. apríl 2008
Ólafur F. Magnússon lætur ekki sitja við orðin tóm. Í dag var hrundið í framkvæmd aðgerðaáætlun til fegrunar höfuðborgarinnar, með sérstakri áherslu á miðbæinn að hans frumkvæði. Íbúar borgarinnar eru hvattir til að taka virkan þátt í þessu átaki og láta vita hvar skórinn kreppir. við viljum öll geta verið stolt af höfuðborginni okkar. Þetta átak fer vel af stað. Guð láti gott á vita.
![]() |
Vilja bæta ásýndina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Stöðvun smáíbúðasölu til 1. júlí
Fimmtudagur, 3. apríl 2008
![]() |
Óttast stíflu á fasteignamarkaði fram til 1. júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver er afturhaldskommatitturinn?
Miðvikudagur, 2. apríl 2008
Davíð Logi Sigurðsson, fyrrum blaðamaður á Mbl sem var um tíma mjög áhugasamur um Íraksstríðið og fór m.a. í pílagrímsferð þangað en virtist glata áhuganum, skrifaði grein hérna á blogginu og kvartar undan skilningsleysi landa sinna á mikilvægi þess að komast í öryggisráðið. Honum Mér finnst umræðan um þetta heima svo algerlega út í hött og segir m.a. : "Menn segja þetta sýndarmennsku, peningaeyðslu, að við eigum engan séns, etc. Davíð Oddsson notaði orð um slíkt tal: afturhaldskommatittir!" Þetta er ekki rétt hjá Davíð Loga, eins og hann ætti að vita manna best. Nafni hans Oddson notaði þetta orð um menn eins og Davíð Loga sem eru hvorki hráir né soðnir í stuðningi við stríðið. Þetta var fyrir fjórum árum síðan en þá sagði Davíð að mikill áranagur hefði náðst í Írak enda ríkti friður og ró í 795 héruðum af 800 einungis í 5 héruðum væru smá róstur enn sem komið væri.
Geir Haarde er mikill söngvari og veit hvað hann syngur
Miðvikudagur, 2. apríl 2008
Ég er einn þeirra sem kann vel við Geir Haarde, sem séra Pétur kallar Geirharð í Granaskjóli. Ég þekki manninn aðeins af sjónvarpsskjánum, þar sem hann kemur fyrir sem ábyrgur landsfaðir. Hann á sé líka aðrar góðar hliðar t.d. sem alþýðlegur og gamansamur söngvari. En það er eitthvað sem segir mér að hann viti hvað hann syngur. Ég þekki það sem gamall sjóari að maður sefur værar með slíka menn við stjórnvölinn í brælu. Ég er ekki í sama flokk og "Geirharður" en það skiptir engu máli, þegar á móti blæs stendur áhöfnin með kallinum í brúnni.
![]() |
Gildra fyrir birni verður að koma á óvart" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skilaboð stjórnrandstöðu & Samf. til BB
Miðvikudagur, 2. apríl 2008

![]() |
Samfylkingin lítt hrifin af áformum dómsmálaráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt 3.4.2008 kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ólafur F. Magnússon, lætur hendur standa fram úr ermum
Þriðjudagur, 1. apríl 2008

![]() |
Átakshópur um bætta umgengni í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinnum okkur úr vandanum
Mánudagur, 31. mars 2008
Alþjóðleg matsfyrirtæki halda áfram að spá illa fyrir Íslandi. Sagt er að skuldir okkar séu meira en 1500 milljarðar umfram eignir og að sparifjáreigendur erlendis treysti ekki lengur íslenskum bönkum. Nú síðast segir matsfyrirtækið Fitch að það muni hugsanlega lækka lánshæfiseinkun Íslands. Það þýðir á mannamáli að ekki sé lengur hægt að taka lán erlendis á viðráðanlegum kjörum. Íslenskir ráðamenn gefa yfirlýsingar út og suður um að allt sé í himnalagi milli þess sem þeir vinna að kjöri Íslands í öryggisráðið. Davíð seðlabankastjóri talar um vonda menn í spákaupmennsku og hótar rannsókn. Ívar Pálsson skrifaði eftirfarandi innlegg um þetta:
"Allt fólk í gjaldeyrisviðskiptum er spákaupmenn. Markaðurinn er framvirkur og stór gjaldeyriskaupandi eða -seljandi er ekkert verri en lítill. Öll viljum við hagnast, hvort sem það er með eða á móti krónunni. Þjóðerniskennd er ekki áhrifaþáttur á gjaldeyrismarkaði, því að hver og einn, íslenskur banki eða t.d. erlendur fjárfestingarsjóður, vill græða óháð þjóðernisuppruna gjaldmiðilsins.
Sjálfsskaparvítið var algert, þegar stýrivextir voru hækkaðir stöðugt, hunangi hellt út um allt en ekki búist við því að bjarndýrið, heimsmarkaður gjaldeyris, rynni á lyktina og vildi gæða sér á þessu þar til að það væri búið. Nú tekur sjálfsblekkingin við, að ætla að leita bjarndýrið uppi og skjóta það, fyrir það eitt að hegða sér eins og björn."
Við eigum tvær endurnýjanlegar auðlindir þ.e. fiskveiðiauðlindina og hreina orku. Þess vegna erum við Íslendingar alls ekki á vonarvöl. En eins og málum er komið eigum við engan annan skynsamlegan kost í stöðunni en að hætta fleyja milljörðum á hverju ári með því að þenja út utanríkisþjónustuna og leggja allt í sölurnar, jafnvel efnahagslegu sjálfsstæði, til að komast í öryggisráðið. Tímabundið neyðumst við til að þrengja beltið um eitt gat, skipta byrðunum jafnar og borga okkar skuldir. Þá getum við átt bjarta framtíð. Aðrir betri kostir eru ekki í boði.
![]() |
Fitch segir að einkunn Íslands gæti lækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt 1.4.2008 kl. 07:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)