Árna M. Mathiesen undirbýr brottför og þarf ekki tiltrú kjósenda

med_ArniMMathiesen-_I4Y1715Þá liggur það fyrir að Árni  M. Mathiesen er endanlega búinn að gera það upp við sig að hann þurfi ekki á tiltrú kjósenda að halda. Það hefur verið umdeilt hvort rétt hafi verið af honum sem fjármálaráðherra að varpa allri ábyrgð á verðbólgunni yfir á seðlabankann, þá hefur verið fundið að því að ráðstafa ríkiseigum á Keflavíkurflugvelli undir markaðsvirði til velþóknanlegra. En nú tekur steininn úr, bréf hans til umboðsmanns alþingis er svo dónalegt að reyndir lögmenn halda því fram að það sé algerlega fordæmalaust. Umboðsmaður alþingis var einungis að sinna lögbundinni skyldu sinni og kanna forsendur ráðningar Þorsteins Davíðssonar í stöðu héraðsdómara. Með því að sýna umboðsmanni og kjósendum sínum slíkan hroka gefur hann þeim sögusögnum byr undir báða vængi að hann muni taka við forstjórastól Landsvirkjunar.

Árni notar tækifærið og sýnir umboðsmanni fingurinn 


mbl.is Vill utandagskrárumræðu um ummæli Árna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

..bara venjulegur asni..eins og margir í valdastöðum í dag...

Óskar Arnórsson, 27.3.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hann er sjálfum sér vart til sóma.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.3.2008 kl. 19:33

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég má til með að vittna í "Heimskustu orð ársins" verlauninn! 

"Geir sagði að Seðlabankinn væri með þessari hækkun að bregðast við lausafjárkreppu á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum."

það er aldeilis að Seðlabanki er mikilvægur fyrir alla  jörðina og allt fjármálakerfi heimsins. Aðgerðir Davíðs sem er fyrirmynd Árna, sýnir mikilmenskubrj´salæði á MJÖG háu stigi!  >Þess vegna ætla ég að auglýsa mig sem kandídat til Forsetakosninga, lifi í félagsmálaíbúð, með endurhæfingarlífeyri sem dugar fyrir húsaleigu og mat hálfan mánuðinn. Yfirdráttarheimildin í botni! ég er algjörlega í steríó við stóru ríki kallanna sem hugsa eingöngu um eigin hag....ég er komin með 16 meðmælendur af 3000....

Óskar Arnórsson, 27.3.2008 kl. 20:27

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi sæti. Árni er búinn að vera. Ætli sé einhver sendiherrastaða laus t.d. í Afganistan?

Rósa Aðalsteinsdóttir, 27.3.2008 kl. 20:40

5 Smámynd: Halla Rut

Spilltasti maður landsins. Til hamingju Árni.

Oft verður hrokinn þegar mönnum líður vel í stólum sínum en sjaldan er spillingin ljósari alþjón en í hans dæmi. Tvö spillingarmál eru í skoðun í dag og er hann númer 1 í þeim báðum.

En varðandi frændráðninguna hjá Árna þá skulum við ekki gleyma hverra erinda hann gekk. Davíð og Björn héldu hér fast í tauminn hjá Árna og spörkuðu létt í lendar hans svo hann gengi þann gang sem þeir kusu. Kannski fékk hann Keflavíkina í staðin.

Halla Rut , 27.3.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband