Færsluflokkur: Menning og listir
Skatan í Sægreifanum
Miðvikudagur, 17. desember 2008
Ég átti erindi í Tollinn í gær og rann bókstaflega á lyktina eða réttara sagt ilminn af vel kæstri skötu hjá vini mínum honum Kjartani sægreifa, þar sem hann er að undirbúa fiskverslun hjá veitingastaðnum. Skatan er misjafnlega mikið kæst allt eftir smekk hvers og eins. Sjálfur mæli ég með vel kæstri tindabikkju með kartöflum rúgbrauði og vestfirskum hnoðmör með örlítilli flís af selspiki, sem ég vandist á að borða þegar ég var til sjós fyrir vestan.
Þetta úrvalsfæði fæ ég hvergi nema hjá Kjartani sægreifa, sem ólíkt öðrum sægreifum er kvótabani.
„Ætti að vera orðin vel kæst“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvalveiðar með augum útlendinga
Fimmtudagur, 11. desember 2008
Eitraður koss
Mánudagur, 17. nóvember 2008
ESB hótaði Íslendingum að koma í veg fyrir öll lán og segja upp EES samningnum einhliða ef Íslendingar myndu leita réttar síns fyrir dómstólum. Ekki veit ég hvort þessi óbilgjarna afstaða ESB valdsins í garð Íslendinga muni hafa áhrif á afstöðu Samfylkingarinnar til sambandsins. Hitt þykist ég vita að margir Íslendingar munu hugsa sig tvisvar um áður en þeir fela þessu sambandi öll okkar ráð. Geir er í klemmu og reynir að koma sér vel við Ingibjörgu enda óttast hann fátt meir en kosningar, þess vegna skrifar hann upp á óútfylltan tékka.
Eitraður koss
mun hann leiða Íslendinga í skuldafen?
Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
Skilaboðin voru skýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hommar sem hata homma
Föstudagur, 24. október 2008
Eitt sinn átti ég nágrana, hjón með tvö ung börn, milli okkar varð nokkur kunningsskapur og fórum við stundum saman í bæinn. Ég veitti athygli kenjum eiginmannsins sem gati ekki hugsað sér að fara á allmarga staði vegna þess að það væri stórhætta á að finna einhverja homma þar. Síðar fluttu hjónin í annað byrðarlag en um tveimur árum seinna hitti ég hana eina á ferð og dapra í bragði. Eiginmaðurinn hafði yfirgefið fjölskylduna og flutt heim til sameiginlegs vinar þeirra, sem kom út úr skápnum á sama tíma.
Myndin tengist ekki viðkomandi fjölskyldu
Staðfestir ástarsamband við Haider | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 08:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Blótað fyrir Ísland
Laugardagur, 18. október 2008
Ég rakst á þessa áhugaverðu færslu hjá honum Jens Guð í kvöld. Allsherjargoðinn efnir til blóts á morgun kl 17:00 við Þvottalaugarnar í Laugardalnum, til að styrkja fólk og efla samstöðuna. Oft var þörf en nú er sannarlega nauðsyn. Þarna verða að vanda áhugaverð og þjóðleg tónlistaratriði og ég væri illa svikinn ef landvættir, sem reynst hafa okkur svo heilladrjúgar í átökum við Breta, létu ekki sjá sig núþegar svo mikið liggur við.
Kolbrún mannfjandsamleg!
Mánudagur, 8. september 2008
Borgarmálafélag Frjálslyndra í Reykjavík stofnað
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Í kvöld var haldinn framhaldsstofnfundur Borgarmálafélags Frjálslyndra í Reykjavík. Kjörin var 11 manna samvirk stjórn 50 manna fulltrúaráð Jón Magnússon alþingismaður var sjálfkjörinn. Ég vil óska öllu þessu góða fólki til hamingju og velfarnaðar í störfum sínum. Þetta er upptakturinn af því að Frjálslyndir mæti sterkir til leiks í næstu sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík.
Undirskriftalisti til stuðnings Ásmundi Jóhannssyni
Fimmtudagur, 17. júlí 2008
http://www.petitiononline.com/asmundur/petition.html
Ásmundur Jóhannsson hefur lagt eigur sínar í hættu með því að bjóða kerfinu byrginn í þeim tilgangi að hnekkja víðtækum mannréttindabrotum stjórnvalda hér á landi.
Lífsglaður baráttumaður:
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Kolröng og villandi fyrirsögn! Báturinn var á handfæraveiðum, sem eru ekki ólöglegar.
Miðvikudagur, 16. júlí 2008
Ég er svo aldeilis hissa á Morgunblaðinu að birta svona villandi fyrirsögn á vefnum: "Bátur á ólöglegum veiðum" Mótorbáturinn Júlíana Guðrún GK-313 er með löglegt og gilt haffærisskírteini og var staðinn að handfæraveiðum innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Eigandi bátsins hafði það eitt "til saka unnið" að hafa ekki kreist blóð undan nöglum vinnulúinna handa sinna til að greiða leigu til kvótagreifa. Hefði hann gert það hefði hann virt að vettugi úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem Ísland hefur lofað að virða. Slík háttsemi hefði verið bæði siðlaus og löglaus.
Hitt er aukaatriði að það var flugvél Landhelgisgæslunnar en ekki þyrla sem tók bátinn eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Bátur á ólöglegum veiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Kvótagreifarnir fá ekki hlut af þessum þorskum (sjá mynd)
Miðvikudagur, 16. júlí 2008