Færsluflokkur: Matur og drykkur
Fagnandi þorskar í fjörugri veislu
Sunnudagur, 12. október 2008
Það hlýtur að vera gaman að vera þorskur í Breiðafirði núna, þegar allt er að fyllast af síld skammt utan Stykkishólms. Þorskurinn hefur verið óvenju magur og rýr í Breiðafirðinum sem er ein stærsta hrygningarslóð þorskins hér við land. Þess vegna samgleðjast sjómennirnir þorskunum, jafnframt því sem þeir eru að fylla næturnar af feitri og fallegri síld.
Ekki veitir af að búa til gjaldeyri núna.
Á síld innan við Stykkishólm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verða orkulindirnar seldar? "Indíánar í eigin landi"
Þriðjudagur, 7. október 2008
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hrossalæknir rekur ríkissjóð með halla!
Miðvikudagur, 1. október 2008
Kortið sýnir stöðu hinna ýmsu ættflokka í Afganistan á þeim tíma þegar Ingibjörg kynnti sér málið en staðan hefur breyst nokkuð síðan þá.
Þá er dýralæknirinn búinn að leggja fram ramma að fjárlögum til fjögurra ára, sem sýnir að stjórnin ætlar að starfa a.m.k. eitt ár fram yfir næstu kosningar. Mörgum þykir ríkisstjórninni farast illa að þykjast sjá langt fram í tímann en forsætisráðherra sagði sem kunnugt er í mars að botninum væri náð en síðan þá hefur gengið fallið um 30%. Skilaboðin eru skýr: Heimilin skulu spara við sig og skera niður en ríkið eykur eyðsluna. Sparnaður ríkissjóðs virðist eingöngu vera til málamynda. Til dæmis er spöruð olía svo skip Landhelgisgæslunnar komist ekki á sjó en mun hærri upphæð er eytt í tveggja daga útsýnis- og eftirlitsflug franska flughersins yfir landinu. Þá þenst utanríkisþjónustan út, sem aldrei fyrr, enda eru þar mörg brýn verkefni svo sem að ISG kynni sér betur ættflokkaerjur í Afganistan. En þangað fór hún fyrr á árinu í fylgd lífvarða úr sérsveit lögreglunnar í þeim tilgangi en sagði við heimkomuna að þessi mál væru flóknari en svo að ein ferð dygði til að koma sér inn í þau.
57 milljarða króna halli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Kolröng og villandi fyrirsögn! Báturinn var á handfæraveiðum, sem eru ekki ólöglegar.
Miðvikudagur, 16. júlí 2008
Ég er svo aldeilis hissa á Morgunblaðinu að birta svona villandi fyrirsögn á vefnum: "Bátur á ólöglegum veiðum" Mótorbáturinn Júlíana Guðrún GK-313 er með löglegt og gilt haffærisskírteini og var staðinn að handfæraveiðum innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Eigandi bátsins hafði það eitt "til saka unnið" að hafa ekki kreist blóð undan nöglum vinnulúinna handa sinna til að greiða leigu til kvótagreifa. Hefði hann gert það hefði hann virt að vettugi úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem Ísland hefur lofað að virða. Slík háttsemi hefði verið bæði siðlaus og löglaus.
Hitt er aukaatriði að það var flugvél Landhelgisgæslunnar en ekki þyrla sem tók bátinn eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Bátur á ólöglegum veiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Kóngafólk hundelt af ljósmyndurum!
Sunnudagur, 22. júní 2008
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Umhverfisráðherra fjármagnar lögbrot
Fimmtudagur, 19. júní 2008
Var að velta fyrir mér hversu óheppilegt það var fyrir umhverfisráðherra að vera viðstaddur í ljósi Fyrstu málsgr. 3ju og 16. gr villidýralaga
Ráðherrann virðist líta á þessi lög sem marklaust plagg. Rétt eins og forystumenn ríkisstjórnarflokkana líta á skuldbindingu Íslands að hlíta úrskurðum mannréttindanefndarinnar.
Þórunn virðist ekki hafa kynnt sér villidýralögin
Ráðuneytið greiðir fyrir leiguflug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er ríkisstjórnin skipuð mannréttindaníðingum?
Föstudagur, 30. maí 2008
Þessu hélt Grétar Mar Jónsson, fram í þingræðu á alþingi í gær og uppskar ávítur og bjölluslátt frá þingforseta, sem er samfylkingarmaður og var á móti kvótakerfinu áður en flokkurinn fór í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Gamalt máltæki segir að "sannleikanum sé hver sárreiðastur". Var bjölluslátturinn þess vegna svona ákafur? Mannréttindanefnd Sameinu þjóðanna hefur úrskurðað að það séu mannréttindabrot að mismuna þegnunum með því að búa til lénaskipulag í sjávarútvegi.
Mér finnst framkoma Geirs í þessu máli heldur aumleg. Hann heldur því ranglega framað við séum ekki skuldbundin til að fara að úrskurði mannréttindanefndarinnar. Hvað er maðurinn að meina? Með þessu opinberar forsætisráðherrann vanþekkingu sína á alþjólegum skuldbindingum landsins. En segjum að hann hefði nú rétt fyrir sér finnst honum þá allt í lagi að brjóta mannréttindi?
Að hinu leytinu finnst mér það slappt hjá forsætisráðherra að sega að "lögfræðingar muni svara mannréttindanefndinni". Íslensku lögfræðingarnir eru búnir að skila greinargerð úrskurðurinn er fallinn. Mannréttindanefndin er að bíða svara um hvenær ríkisstjórnin ætlar að láta af mannréttindabrotum. Þetta hljómar eins og pörupiltur sem staðinn er að verki og segist ekki svara fyrr en lögfræðingurinn komi, í veikri von um að honum verði reddað.
Þingi frestað fram í september | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Gríðarleg ofveiði á hrefnu!
Þriðjudagur, 27. maí 2008
Nei, auðvitað er fyrirsögnin tóm vitleysa og vonandi eru sérfræðingar að átta sig á því að sveiflur verða í hafinu af öðrum orsökum en veiði og því ber ekki að skrifa öll dánarvottorð eins. Staðreyndin er sú að við veiddum ekki nema örfár hrefnur í fyrra eins og flestir vita. Hitt er annað mál að ef hér á landi væru villtir úlfar í svo margir að bændur sem rækju fé á fjall þættust góðir ef heimturnar yrðu 10% að hausti myndu þeir gráta krókódílatárum yfir því ef einhver fækkun yrði í úlfastofninum.
Hafa ber í huga að hvalatalning er ekki sambærileg manntali.
Hrefnu fækkar á landgrunninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sægreifinn: Útlendingar sólgnir í hrefnukjöt
Miðvikudagur, 21. maí 2008
Ég brá mér í Sægreifann um daginn með tvo gesti frá Kóreu , sem ég bauð í mat og þeir völdu humarsúpu og hvalkjöt, sem þeim fannst hið mesta lostæti. Ég var svo heppinn að sjálfur sægreifinn var þarna á staðnum og upplýsti hann okkur um að flestir útlendir gestir spyrðu einmitt fyrst um hvalkjöt, sem ekki er furða því það er sannkallað heilsufæði sem Kjartan matreiðir af hreinni snilld. Í eftirrétt fengum við vel kæstan hákarl sem menn renndu niður með brennivínstári Í slútið skenkti Sægreifinn okkur Rauðu Eðalginseng þykkni Kóreumönnunum til óblandinnar ánægju. Síðan keyrði ég Kóreumennina til Selfoss þar sem þeir gistu. Það þarf ekki að orðlengja það að daginn eftir vöknuðum við eldsprækir og skoðuðum náttúruperlur uppsveita Árnessýslu.
Takk fyrir mig kæri eini og sanni sægreifi!
Og hér með skila ég allra bestu kveðjum og þakklæti frá Kóreubúnum sem segja að þetta hafi verið toppurinn á Íslandsheimsókninni.
Fyrsta hrefnan veidd á Faxafló | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Vaxandi óánægja með Samfylkinguna meðal sjómanna
Þriðjudagur, 20. maí 2008
Samfylkingin er sýnir það æ betur að hún er óþjóðhollur flokkur, sem er tilbúin til þess að fórna auðlindum landgrunnsins á altari Efnahagsbandalagsins. Íslendingar eiga trygga framtíð ef rétt er á málum haldið. Samfylkingin áttar sig ekki á að við eigum endurnýjanlega orku, nóg af vatni og auðugustu fiskimið heims en þetta eru einmitt þær auðlindir sem mun margar þjóðir mun skorta helst í náinni framtíð. Íslendingar eiga efnahagslegt sjálfsstæði sitt og velmegun undir auðlindum hafsins og að þær séu nýttar í jafnvægi. Ráðherrar flokksins hafa haldið því fram að það skaði hvalaskoðun ef Íslendingar borði hval. Hvað kemur næst? Megum við kannski búast við að sömu aðilar fari fram á að við hættum að borða hrossakjöt til að skaða ekki ferðaþjónustu tengda hestaferðum?
Utanríkisráðuneytið eyðir nú 11800.0000.000,oo- og er þá ekki innifalinkosnaður við að reyna að koma Íslandi í öryggisráðið. Maður hefur á tilfinningunni að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi hugmynd um hvaðan þeir peningar koma sem hún er að spreða.
Óánægja með hrefnuveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eins og sjá má í þeim málsgreinum sem ég vísa til, er meginreglan sú að ísbirnir eru friðaðir og umhverfisráðherra ber sérstaka ábyrgð í því sambandi. Einungis má fella dýrin í þeim undantekningatilvikum að bein hætta stafi af dýrinu. Þannig njóta dýrin algerrar friðunar á sundi. Dýrið var í flæðarmálinu á leið til hafs og átti því örfá metra í friðland, fyrir augum umhverfisráðherra, sem lögum samkvæmt bar alla ábyrgð á vettvangi. Þarna hjó sá er hlífa skyldi.