Verða orkulindirnar seldar? "Indíánar í eigin landi"

3-foss Pétur Blöndal alþingismaður viðraði þá hugmynd í Silfrinu að  mögulegt væri að selja virkjanir og orkulindir landsins til að mæta væntanlegum skuldaklafa. Ég er algjörlega fráhverfur þessum hugmyndum þingmannsins. Fiskimiðin og orkulindirnar eru þær auðlindir sem eiga eftir að verða okkur til bjargar. Að selja orkulindirnar er jafn fráleitt og að selja útsæðið en búa áfram á jörðinni.  Þá yrðu Íslendingar um ókomna framtíð indíánar í eigin landi.  Ég vara við hugmyndum frjálshyggjumanna að koma börnum okkar og niðjum þeirra í þá ömurlegu stöðu með því að selja frá þeim lífsbjörgina um alla tíð til að greiða fyrir skuldir gulldrengjanna. Nei takk!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

VAr það ekki Hjörvar, sem lagði þetta til??

Sami Hjörvar sem setti OR í bobba?

Manni flökrar við svona ,,snillingum"

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 7.10.2008 kl. 08:29

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Rétt hjá þér Bjarni, það hafði farið fram hjá mér að Helgi Hjörvar ámálgaði þetta á undan Pétri. En aðrir hafa gefið þessum hugmyndum undir fótinn t.d. Gísli Marteinn og alltof margir aðrir.   Raunar var þetta komið á fulla ferð með  Geysir Green Energy sem hefur keypt stóran hlut í Hitaveitu Suðurnesja fyrir tilstuðlan stjórnvalda (síðasta ríkisstjórn B+D) sem  freistuðu skuldugra sveitarfélaga. Með því að útlendingar kaupa hlut í félögunum eru þeir orðnir eigendur orkulindanna. Hvar er ættjarðarástin? Eða er það hugtak ekki í tísku lengur?

Sigurður Þórðarson, 7.10.2008 kl. 10:29

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Allt er falt fyrir fé virðist, ekki hafði ég mikið álit á Pétri né Gísla marteini fyrir en er hissa á heimsku Helga, hélt að það væri meira í kollinum á þeim dreng en reynist síðan.

Georg P Sveinbjörnsson, 8.10.2008 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband