Færsluflokkur: Matur og drykkur

Krafa um breytingar

Þessi skoðanakönnun staðfestir kröfu fólks um rótækar breytingar. Mikil og vaxandi óánægja er meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarflokkana einkum og sérílagi Sjálfstæðisflokksins sem gu_jon_arnar_kristjansson blöskrar spillingin og vanhæfnin sem leitt hefur þjóðina í svo hræðilegar ógöngur undir forystu þess flokks. Stjórnarandstaðan er markeruð af því að hafa annað hvort tekið þátt í spillingunni eða verið meðvirk. Skoðun mín er sú  að ef stjórnmálaflokkur með jafn góða stefnuskrá og Frjálslyndi flokkurinn hefði staðið vaktina væri hann með yfir 20% fylgi við þessar aðstæður. Jafnvel Framsóknarflokkurinn sem tók fullan þátt í spillingunni og á verulega sök á ástandinu fer upp í 17% við það að tefla fram nýju fólki. Frjálslyndi flokkurinn heldur 3ja% fylgi í þessari könnun. Í viðtali sem Ríkisútvarpið tók við formann flokksins sem staddur var á Kanaríeyjum fyrir þremur dögum sagðist formaðurinn Guðjón Arnar Kristjánsson ótrauður ætla að gefa kost á sér áfram. Þá er spurningin hvort einhverjir muni styðja það?
mbl.is Framsókn með 17% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá geta menn veðsett 30.000 tonn til viðbótar í útlöndum!

Það eru vissulega gleðitíðindi fyrir íslenskt efnahagslíf að gefnar séu út auknar veiðiheimildir á þorsk. torskSá böggull fylgir þó skammrifi að í núverandi kerfi þýðir þetta að "greifarnir" geta veðsett 30.000 tonn í viðbót af sameign þjóðarinnar og flutt þá peninga úr landi ef þeim býður svo við.  Þess utan er hætt við að hluti af þessum aflaheimildum lendi sem fóður í þrotabúum sem erlendir bankar gera kröfu í.

Það er kominn tími til að fá stjórnvöld sem bera hag þjóðarinnar fyrir brjósti. 


mbl.is Þorskkvóti aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skatan í Sægreifanum

018Ég átti erindi í  Tollinn í gær og rann bókstaflega á lyktina eða réttara sagt ilminn af vel kæstri skötu hjá vini mínum honum Kjartani sægreifa, þar sem hann er að undirbúa fiskverslun hjá veitingastaðnum. Skatan er misjafnlega mikið kæst allt eftir smekk hvers og eins. Sjálfur mæli ég með vel kæstri tindabikkju með kartöflum rúgbrauði og vestfirskum hnoðmör með örlítilli flís af selspiki, sem ég vandist á að borða þegar ég var til sjós fyrir vestan.

Þetta úrvalsfæði fæ ég hvergi nema hjá Kjartani sægreifa, sem ólíkt öðrum sægreifum er kvótabani. 3+-+P1000188xskata


mbl.is „Ætti að vera orðin vel kæst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalveiðar með augum útlendinga

018 Að sögn Kjartans, hins eina og sanna sægreifa (í Sægreifanum) er uppistaðan í viðskiptum hans vaxandi straumur útlendinga, sem upp til hópa panta hrefnukjöt af annars fjölbreyttum matseðli. Oft koma þessir ferðamenn beint svangir úr hvalaskoðunarferðum. En hann er nánast í sambýli við hvalskoðunarfyrirtæki við höfnina. Svipaða sögu má segja af öðrum veitingahúsum.

Frjálslyndir vilja frjálsar handfæraveiðar

Með því að fara að tillögu frjálslyndra myndum við fá mikilvægan gjaldeyri til að borga skuldirnar og styrkja krónuna.  Handfæraveiðar eru vistvænar, þær skemma ekki botninn, né  viðkvæmt lífríki svo sem hrogn. Og í raun er ekki mögulegt að ofveiða með handfærum því fiskurinn bítur ekki nema hann sé svangur. Veiðarfærin  eru ódýr og olíakostnaður er hverfandi. Þess utan er þetta úrvals hráefni.tm15small
mbl.is Frjálslyndir ítreka vilja um svipað aflamark og frjálsar handfæraveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra spillingar og misréttis hækkar leiguverð á kvóta

Með frumvarpi sínu um flutning á 33% aflamarks á milli ára er ríkisstjórnin að stuðla að hækkun leiguverðs á kvóta og auknum tekjum kvótagreifa á kostnað leiguliða í kerfinu. Leiguliðar eru núna að borga nálæt 2/3 af verðmæti aflans brúttó til leigusala með þessari ráðstöfun minnkar það magn sem er í umferð , sem þrýstir verðinu upp á leigukvótanum

Ég heiti á Karl V. Matthíasson og aðra góða ,jafnaðarmenn, ef þeir vilja standa undir því nafni, að gera sjávarútvegsráðherra afturreka með þetta frumvarp. 

Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!    


mbl.is Mega geyma þriðjung kvótans milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan að vígbúast.

alvopnBjörn Bjarnason hefur gefið leyfi fyrir 250 nýjum ráðningum í lögregluna. DV greinir frá því að lögreglan sé að vígbúast fyrir kreppuna bæði sérsveit og greiningadeildir muni verða styrktar sérstaklega. Lögreglan ætlar að vera við öllu búin í kreppunni. Keypt hefur verið mikið magn af piparúða og táragas og strætisvagni breytt í tækni- og samskiptamiðstöð.i. Ég heiti á Björn að beita þessu öfluga lögregluliði gegn spillingu

 

Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!  


Besti fjárfestingarkosturinn Fjárfest í heilsu

Ég fór á frábæran kynningarfund á Grand hótel í kvöld þar sem komu góðir erlendir gestir frá USA og fjölluðu um hvernig mæetti virkja og styrkja ónæmiskerfið. Ástæðan fyrir því að þeir sáu sér fært að koma var sú að þeir millilentu hér á leið sinni á stóra ráðstefnu í Noregi. Aðalfyrirlesari var Doktor Don Knox sem fjallaði um nýjustu rnannsóknir sínar á slökkvuliðsmönnum en sú rannsókn var styrkt af fjölmörgum háskólum og bandaríska flughernum. Niðurstöður allra rannsóknanna benda í sömu átt að  sjá  wellmune   dragi úr steitu og fækki veikinndadögum.  Aðrar rannsóknir beda allar í sömu átt. 

Í Skandinavíu heitir varan Immiflex sjá 


Góðar fréttir fyrir Ísland! Markaðir opnast í Austur Evrópur

Mörg íslensk fyrirtæki og einstaklingar hafa verið að gera það gott í Austur Evrópu ekki síst í Balkanríkjunum þar sem viðskiptamenn hafa flutt út þekkingu. Þetta hefur gerst í bankaviðskiptum, símaþjónustu, lyfsölu og lyfjaframleiðslu svo dæmi séu nefnd. Allt hefur þetta gengið með miklum ágætum. Nú eru markaðir óðum að opnast fyrir fiskafurðir.Baby_Face_Russia


mbl.is Frystar afurðir til Litháens
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Upp er boðið Ísland"

Eftir 17 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins er svo illa komið fyrir Íslandi að hræætur renna á lyktina og sveima yfir væntanlegri krás, veikburða fórnarlambi.  Á meðan ferðast ráðamenn á fyrsta farrými og skrafa um hvernig hægt sé að koma landinu í öryggisráðið.

 Vel slompaðir diplómatar bjóða kannski í glas og skála fyrir Ísland. "Kosturinn við að vera fullur er sá að maður er ekki timbraður á meðan"

beer


mbl.is Fjárfestingarsjóður vill yfirtaka rekstur virkjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband