Fagnandi þorskar í fjörugri veislu

Það hlýtur að vera gaman að vera þorskur í Breiðafirði núna, þegar allt er að fyllast af síld skammt utan Stykkishólms. Þorskurinn hefur verið óvenju magur og rýr í Breiðafirðinum sem er ein stærsta hrygningarslóð þorskins hér við land. Þess vegna samgleðjast sjómennirnir þorskunum, jafnframt því sem þeir eru að fylla næturnar af feitri og fallegri síld.

Ekki veitir af að búa til  gjaldeyri núna.geysir_ba-140 


mbl.is Á síld innan við Stykkishólm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Já Siggi, nú hlægja þorskarnir nema auðvitað þeir sem lenda í nótinni og drepast þar. Þá er þeim umsvifalaust fleygt í sjóinn aftur því þorskurinn er "óhreinn" fiskur nema honum fylgi afsal frá Guðmundi vinalausa eða Manga á þyrlunni.

Árni Gunnarsson, 12.10.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband