Færsluflokkur: Bækur
Fyrsta ákæra Evu Joly á Íslandi
Fimmtudagur, 11. júní 2009
Augljós tilgangur hins vanhæfa og vanmáttuga ríkisvalds með að fá Evu Joly til starfa á Íslandi var að skapa óumflýjanlegri rannsókn trúverðugleika. Eva Joly er of mikil manneskja og metnaðarfullur fagmaður til að láta nota sig sem fuglahræðu eða meiningarlausa dulu. Hún gerði rétt í að kæra yfirvöld fyrir almenningi á Íslandi í Kastljósi í gær 10. júní. Þetta var hennar fyrsta ákæra á Íslandi.
Það er gott til þess að vita að þjóðin skuli eiga þessa konu að.
![]() |
Ríkisstjórn styður Joly |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Leit hætt að dularfullum reyk
Miðvikudagur, 10. júní 2009
![]() |
Leit hætt á Faxaflóa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 07:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vanskil íslenska ríkisins aukast.
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Svona munu fyrirsagnir fjölmiðla líta út innan fárra ára ef ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir nær að telja þingmann á að skrifa undir glæfralegar skuldbindingar vegna Icesave sem nú liggja fyrir þinginu. Þessir uppgjafaskilmálar sem ríkisstjórnin hyggst gera við Breta eru nógu stórir einir og sér til að koma landinu í þrot en þvert á það sem sagt hefur verið veita þeir íslenska ríkinu ekkert skjól fyrir málaferlum vegna neyðarlagana. Ef Bretar þora ekki með þetta mál fyrir dómstóla eiga þeir enga kröfu. Það er skylda þjóðkjörinna fulltrúa að reyna já ég segi reyna, því það er ekki öruggt að það takist, að verja Ísland falli.
![]() |
Vanskil aukast hjá Íbúðalánasjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Alþingismenn í óökufæru ástandi!
Mánudagur, 8. júní 2009
Ýmsir stjórnarliðar hafa látið eins og þeir hafi með harðfylgi náð hagstæðum samningum um lausn Icesave deilunnar við Breta. En um leið og fréttir bárust af hvers eðlis samningar eru brást markaðurinn hart við og gengi krónunnar féll um 3,6 stig í dag. Það sem formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, telur mikið fagnaðarefni ályktar markaðurinn að muni leiða til falls Íslands. Það sem formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, telur bestu fáanlegu niðurstöðu segja sérfæðingar í Evrópurétti að eigi að skjóta til dómstóla. Flestir sem skoða þetta mál halda því fram að Ísland hefði ekki skrifað undir slíka uppgjafaskilmála nema undir þungum hótunum. Formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, segir þetta ekki rétt þvert á móti hafi góður andi ríkt og engar hótanir átt sér stað.
Sendiherrar eru menn með góða þjálfun í að skála í kampavíni.
Alþingismenn, ykkur er treyst til að vera í ökufæru ástandi: Segið nei takk. "Eftir einn aki ein neinn" !
![]() |
Blekkingar, heimska og hótanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Í tilefni af sjómannadeginum
Laugardagur, 6. júní 2009



![]() |
Hátíð hafsins um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Glæsileg jómfrúarræða Ólínu Þorvarðardóttur
Miðvikudagur, 20. maí 2009
Ég hef alltaf verið áhugasamur um þjóðmál en eftir að ég hætti að styðja nokkurn flokk á alþingi er ég ekki frá því að ég eigi auðveldara með að vera hlutlægur í mati á stefnu og málflutningi stjórnmálamanna. Meðal nýkjörinna þingmanna er Ólína Þorvarardóttir þjóðháttafræðingur og fyrrverandi skólameistari á Ísafirði, sem hefur meðal annars getið sér gott orð fyrir að standa sig vel í spurningakeppnum, þar sem reynir á almenna þekkingu, sem kvæðamanneskja og síðast en ekki síst fyrir vandað málfar. Ég beið því jómfrúarræðu hennar með nokkurri eftirvæntingu og varð ekki fyrir vonbrigðum. Ólína flutti sköruglega ræðu og sagði m.a. gamla grátkórinn aftur tekinn að hljóma í háværu harmakveini. Þessi málflutningur væri í ætt við sérhagsmunagæslu undir yfirskini stjórnmála.
Þessum orðum er ég sammála og gæti ekki orðað þessa hugsun betur.
![]() |
Veruleikafirrtur grátkór |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Borgarstjórnin djammar fyrir útsvarið
Föstudagur, 15. maí 2009
Núna á dögunum var það upplýst að veislu og risnukostnaður lækkaði um 40% í krónum talið í borgarstjóratíð Ólafs F. Magnússonar frá því sem áður hafði verið. Ferða- risnu og veislukostnaður rauk svo aftur upp úr öllu valdi eftir að Framsókn koma aftur inn. Nú segir borgarstjórnin að sparnaðartillögur Ólafs séu óþarfar og því rétt að vísa þeim frá enda hafi borgarstjórnin séð sig um hönd.
Guð láti gott á vita, því batnandi mönnum er best að lifa.
![]() |
Aðhald í ferðakostnaði borgarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Franskir útgeramenn halda með Samfylkingunni
Föstudagur, 24. apríl 2009
Eftir að bankafroðan fauk í burtu og þjóðin situr eftir með skuldirnar veðum við sem aldrei fyrr að treysta á gömlu undirstöðuatvinnugreinarnar ekki síst fiskveiðiauðlindina. Það tók franska sjómenn tvo mánuði að klára kvótann sem ESB úthlutaði þeim. Þeir horfa nú vonaraugum til Samfylkingarinnar, að hún nái völdum í hruninu og ringulreiðinni hér. Látum það ekki gerast á kjördag X-F fyrir auðlindir í almannaeigu.
![]() |
AFP: Íslensk sjómennska í blóma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Vistmenn á Kvíabryggju snúa baki við Sjálfstæðisflokknum
Sunnudagur, 12. apríl 2009
Sigurjón bróðir minn hefur gert víðreist um Snæfellsnesið, þaðan sem við erum raunar ættaðir, í kosningabaráttunni en hann skipar annað sætið á lista Frjálslyndra í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf átt miklu fylgi að fagna á Snæfellsnesi og eitt sterkasta vígi hans um langa hríð hefur verið á Kvíabryggju. Gleðipinninn Árni Johnsen var þar fyrir skemmstu hrókur alls fagnaðar og naut þar engu minna fylgis en í Vestmannaeyjum. Því hefði fyrirfram mátt búast við að Sigurjón hefði átt við ramman reip að draga en það kom skemmtilega á óvart að því var ekki þannig varið þvert á móti. Fangarnir eru þarna af því að þeir brutu reglur samfélagsins en þeir líta á vist sína sem betrunarvist og eiga það markmið að verða betri menn. Mútuþægni Sjálfstæðisflokksins gagnvart þeim sem ásælast auðlindir þjóðarinnar er þeim ekki aðeins áhyggjuefni heldur stríðir hún gegn lífsgildum fanganna. Eða eins og einn fanginn orðaði það: "Þetta voru mennirnir sem komu okkur á hausinn". Fangelsið Kvíabryggja, er mannbætandi.
![]() |
Segir báða framkvæmdastjóra hafa vitað af styrkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Eftirsjá að Bjarna úr pólitíkinni
Föstudagur, 3. apríl 2009

![]() |
Hættir við þingframboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)