Eftirsjá að Bjarna úr pólitíkinni

BjarniH_2 Það  er ekki annað hægt en að taka undir með  Bjarna um að það sé undarlegt langlundargeð ef þjóðin ætlar að veita fjórflokknum brautargengi eftir að hann kom þjóðinni á hnén. Mér  finnst mikil eftirsjá að Bjarna Harðarsyni úr pólitíkinni en hann mun vafalaust halda áfram að móta umræðuna og er örugglega ekki búinn að segja sitt síðasta orð.
mbl.is Hættir við þingframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Gulli, sammála þér, við erum bara eins og við erum og ekkert við því að segja. Ég hef ágætis húmor fyrir Bjarna af því að hann er eins og hann er, rétt eins og ég hef fínan húmor fyrir þér.

Kíktu í kaffi við tækifæri. 

Sigurður Þórðarson, 4.4.2009 kl. 23:25

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sælir

Skemmtileg innlegg hjá ykkur vinum mínum

Guð veri með ykkur

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.4.2009 kl. 20:50

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hver stendur straum af svona framboði? Mér vitanlega gerir það enginn nema þeir sem að því standa. Sá leðjuslagur sem fram undan var hefði kostað ógrynni af peningum og það er ekki einkamál fjölskyldumanns með verslunarrekstur að skuldsetja framtíð sína og fjölskyldunnar og setja börnin að veði umfram það sem aðrir hafa séð um fyrir þegna þessa lands.

Heitir af baráttuanda lögðu nokkrir vinir og samherjar af stað út í þessa óvissuferð. Viðtökurnar voru ekki slæmar en þær gáfu ekki sterkar væntingar um árangur nema eftir yrði fylgt með rándýrum auglýsingum og ferðalögum um firði og strendur. Það má kalla þetta að klúðra hlutum. Spurning hvort það hefði ekki orðið meira klúður ef illa hefði farið og þá ekki annað í boði en að grípa til gömlu klisjunnar:

"Það er nú alltaf auðvelt að vera vitur efir á."

Árni Gunnarsson, 5.4.2009 kl. 23:28

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Rétt Árni.  L-listi fullveldissinna hafði enga styrki fengið og alur kostnaður hefur verið greiddur úr eigin vasa okkar, og eins margt og hægt er gert í sjálfboðavinnu.  Kostnaður við auglýsingar nú þegar, án þess að kosningabaráttan hafi farið almennilega í gang hleypur á hundruðum þúsunda sem við munum greiða úr eigin vasa.

Axel Þór Kolbeinsson, 6.4.2009 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband