Fyrsta ákæra Evu Joly á Íslandi

Augljós tilgangur hins vanhæfa og vanmáttuga ríkisvalds með að fá Evu Joly til starfa á Íslandi var að eva-jolyskapa óumflýjanlegri rannsókn trúverðugleika. Eva Joly er of mikil manneskja og metnaðarfullur fagmaður til að láta nota sig sem fuglahræðu eða meiningarlausa dulu. Hún gerði rétt í að kæra yfirvöld fyrir almenningi á Íslandi í Kastljósi í gær 10. júní. Þetta var hennar fyrsta ákæra á Íslandi.

Það er gott til þess að vita að þjóðin skuli eiga þessa konu að.


mbl.is Ríkisstjórn styður Joly
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Nákvæmlega. Naglinn á hausinn. Höldum vöku okkar.

Margrét Sigurðardóttir, 11.6.2009 kl. 13:54

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ótrúlegt að að vinkona okkar Eva Joly hafi verið sett í þessa leiðinlegu stöðu. Til algjörar alþjóðlegrar skammar fyrir aðila tengda Alþingi þjóðarinnar.  

Júlíus Björnsson, 11.6.2009 kl. 18:24

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún undirstrikaði það sem mig hafði alltaf grunað ÞAÐ STÓÐ ALDREI TIL AÐ GERA NOKKURN SKAPAÐAN HLUT Í ÞESSU.

Jóhann Elíasson, 11.6.2009 kl. 20:58

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Margrét, Júlíus og Jóhann, ég þakka innlitið og athugasemdirnar. Joly stendur með okkur þjóðinni og við stöngum með henni.

Sigurður Þórðarson, 11.6.2009 kl. 21:05

5 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Hún gerir sér greinilega grein fyrir ruglinu hérna. Vonandi fáum við að hæfileika hennar áfram.

Helga Þórðardóttir, 11.6.2009 kl. 23:55

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Satt segir þú systir.

Sigurður Þórðarson, 12.6.2009 kl. 21:03

7 Smámynd: Ragnar L Benediktsson

Það er nú það !

Nú er að verða ljóst að stjórnvöld hafa mjög takmarkaðan áhuga á að finna glæpamennina og þá peninga sem þeir hafa komið undan. Hvernig á að fara að því að rannsaka þetta svindl allt saman?Í Hvítbókinni eru 48 nöfn sem ég ætla að séu aðalmenn í þjóðar þjófnaðinum.Ég gef mér að þeir eigi maka og 3 börn. Þá eru það 48 x2 x3  = 288 einstaklingar.Ég gef mér að hver aðalmannanna eigi 3 sytkini  það eru 48 x 3 =144 einstaklingar og Þau eigi svo maka  og 3 börn 144 x 2x 3 = 432 einsaklingar.Einnig að systkini maka aðalmannanna eigi maka og 3 börn 144 x 3 =432.Bein fjölskydutengsl  1152 einstaklingar. Þá er eftir að telja vini úr Súpergaggó, Oddfellow og Frímúrurm, golffégaga, tengdarforeldra og börn þeirra, barnabörn  og saumaklúbba. Varlega áætlað 1152 x 5 = 5760 einstaklingar. Varlega áætlað !!Það er vandi að finna einstaklinga sem hafa færni og menntun til að takast á við rannsókn þessara glæpa  og eiga ekki skyldmenni eða vinu úr hópi glæponanna.  Þetta glæpalið er úr öllum flokkum og er því mjög erfitt að fá virtæna niðurstöðu án utanaðkomandi rannsakara. Svona er þetta nú Magnea mín.

Ragnar L Benediktsson, 13.6.2009 kl. 07:59

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir innlitið Ragnar. Þetta lítur nokkuð trúverðugt út eins og þú setur það upp.

Sigurður Þórðarson, 13.6.2009 kl. 13:51

9 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er til fólk ennþá sem getur refsað börnun sínum. Þarf ekki að auglýsa eftir einsktaklingum sem búa yfir slíkum eiginleikum.

Að mínu mati eru stórar ættir þarf sem svona glæpamenn finnast ekki. Ég er t.d. ekki persónlega vinur neins.

Júlíus Björnsson, 13.6.2009 kl. 19:59

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Júlíus, það er gott að heyra maður vill vera laus við það.

Sigurður Þórðarson, 13.6.2009 kl. 20:07

11 Smámynd: Júlíus Björnsson

Við erum að talum um "Biggies" þjóðarskammir.

Júlíus Björnsson, 13.6.2009 kl. 20:20

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nákvæmlega.

Sigurður Þórðarson, 13.6.2009 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband