Sérfræðingar íslenska utanríkisráðuneytisins til Pakistan

Hlutverk Íslands á alþjóðavettvangi verður seint ofmentið eftir að við leystum upp Járntjaldið með því að leyfa Gorbasef og Reagan að hittast hérna. Íslendingar tóku þátt í hernaðinum í Írak og það er óþarfi að gera grín að því að okkur hafi næstum því tekist að finna gjöreyðingavopnin. Staðreyndin er sú að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar hefðu fundið þau og eytt þeim ef þau hefðu verið til staðar. Við munum öll þegar Ingibjörg Sólrún fór til Afganistan að yfirlýstur tilgangur ferðarinnar var sá að hún myndi setja sig inn í gríðarlega flóknar ættflokkadeilur í landinu. Sjá :
Auðvitað dugar ekki ein stutt ferð til að Ingibjörg geti sett sig rækilega inn í málin en þetta er mikilvægt fyrsta skref og við væntum öll mikils árangurs þegar hún hefur kynnt sér þessar deilur til hlítar.  
En fyrst við erum á góðri leið með að leysa málin í Afganistan finnst mér að við ættum að taka á þessu í Pakistan í leiðinni, þetta eru jú nágrannaríki.  Ingibjörg gæti fengið  Margréti Sverrisdóttur, formann Kvennaréttindafélagsins með  sér því þær eru báðar vanar að setja upp  islömsk höfuðföt. INDIAN_ULEMA


mbl.is Sjálfsvígsárás í Pakistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnahagsstjórnunin fær falleinkunn frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum

med_ArniMMathiesen-_I4Y1715 Ingibjörg Sólrún er nýkomin frá Sýrlandi en hún hefur gert víðreist  til að afla sér fylgis til að komast í  öryggisráðið sem á hug hennar allan. En hún var  ekki fyrr komin en hún varð fyrir óvæntri truflun. Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er komin hingað til lands og kvartar undan því að það litla sem ríkisstjórnin gerir í efnahagsmálum sé að vinna gegn Seðlabankanum.  Formaður sendinefndarinnar Petya Koeva heldur því fram að ríkisstjórnin átti sig ekki á vandanum, meðan Seðlabankinn reyni að ausa skútuna sé ríkisstjórnin að opna botnlokuna. Þannig hafi breytingar á lánum Íbúðalagnasjóðs hvetjandi áhrif meðan hærri stýrivöxtum  Seðlabankans sé ætlað að kæla efnahagslífið.   Það var einmitt síðasta ríkisstjórn sem kom verðbólguskriðunni í gang með 90% lánum Íbúðasjóðs og reyndi að hefta bálið með því að hella á það eldsneyti.   Rétt eins og sendiráðin hefur Seðlabankinn verið hvíldaheimili fyrir afdankaða stjórnmálamenn. Dýralæknirinn sem á að stjórna fjármálunum er alveg hissa og skilur ekkert í þessu. Hann er sagður koma til álita ef Ísland fær sæti í Öryggisráðinu.

Rottu bjargað frá druknun með munn við munn bástursaðferðinni

Í bókinni Syndin er lævís og lipur eftir Stefán Jónsson, segir frá ýmsum afrekum Jóns kadets í Hjálpræðishernum, sem var kristinn og  mikill dýravinur. Eitt sinn var Jón suður í Tyrklandi við annan mann á rölti eftir götu í mikilli  hitasvækju. Eftir götunni endilangri var opið díki sem klóakinu var veitt út úr húsunum og þar sem þungan og mjög illþefjandi daun upp úr díkinu reyndu flestir að halda sig fjarri því. Þess vegna vakti það undrun þeirra að múgur og margmenni stóð á barmi díkisins og fylgdist ákaft með einhverju sem þar var að gerast. Þegar Íslendingana bar þar að sáu þeir að í klóakinu var ósjálfbjarga og nánast lífvana rotta við það að drukkna. Skipti það engum togum að Jón kadett svipti sér úr jakkanum bretti upp ermarnar og kastaði sér til sunds til að bjarga dýrinu. Þegar hann hafði náð rottunni upp fór mátti heyra samnál detta svo mögnuð var stemningin enda var rottan gjörsamlega lífvana eftir volkið. Brá hann þá á það ráð að bjarga henni með munn við munn blástursaðferðinni. Skemmst er frá því að segja að þegar rottan fékk lífsandann og ljóst var að björgunin hafði tekist giftusamlega brutust út gríðarleg fagnaðarlæti.
mbl.is Háhyrningi bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Robert Mugabe styður Ísland í öryggisráðið. Uppnám í utanríkisráðuneytinu.

c_imba_136106

 ISG biðlar nú til einræðisríkja um stuðning til setu í öryggisráðinu. Hún var í síðustu viku í Sýrlandi en sendi ráðuneytisstjóra með fagurgala  til Irans.

Eftirfarandi færsla var áður birt 5. apríl  s.l. og er nú endurbirt enda gekk það eftir sem  spáð hafði verið:

Taliið er víst að Robert Mugabe styðji setu Íslands í öryggisráðinu þetta hefur verið rakið til þess að hann og Halldór Ásgrímsson eiga
sameiginlegan kunningja. Þess utan eiga ríkisstjórnir  Zimbabwe og Íslands það sameiginlegt að hafa sætt ákúrum mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir mannréttindabrot á þegnum sínum. Áreiðanlegar heimildir herma að uppnám ríki hjá utanríkisþjónustunni eftir að staða Mugabe veiktist í kjölfar þess að Lýðræðishreyfing vann kosningasigur. Menn binda helst vonir við að Robert Mugabe muni beita hervaldi til að tryggja sér áframhaldandi völd í landinu, enda myndi það styrkja stöðu Íslands. Einnig er mögulegt að ZANU-PF láti faramugabe fram aðra umferð kosninga. 

16-Security_Council
mbl.is Merkel gegn Mubgabe
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varðar nauðgun á börnum ekki almannaheill?

Sálfur myndi ég svara þessari spurningu játandi. 

Maður þekkir mýmörg dæmi þess að smákrimmar séu dæmdir í öryggisgæslu vegna ítrekaðra brota. Þetta er ekki gert til að verja rannsóknarhagsmuni heldur vegna almannaheilla, þar sem ekki er talið öruggt að viðkomandi láti af ætlaðri iðju sinni meðan hann bíður dóms.

Nú sætir fullorðinn maður rannsókn vegna meintra marítrekaðra brota gegn börnum og ætlaðar sakir eru það alvarlegar að í mörgum slíkum tilvikum missa fórnarlömbin andlega heilsu sína fyrir fullt og allt. Samt er meiningin að sleppa honum lausum! Ég er ósammála því mati að taka beri vægar á þessum brotum en t.d. ítrekuðu hnupli. sadEru ekki allir sammála því að þetta varði almannaheill?


mbl.is Gæsluvarðhaldsúrskurður til Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleiðing lúsaleitarinnar: Baugur borgar skatta erlendis.

Margvíslegar ásakanir hafa verið settar fram gegn Baugi t.a.m fann fyrrum forsætisráðherra út að vínber væru ódýrari í London en hjá Bónus!  Og nú er kostnaðarsamri lúsaleit lokið hjá Baugi og upp komst um tittlingaskít. Það var allt og sumt.  Samt dugði það til að hrekja fyrirtækið úr landi og mun það framvegis borga skatta erlendis. Seðlabankinn getur ekki glaðst yfir efnahagsástaninu en hann getur kannski glaðst yfir þessu?IMG_0154_adj_sh-400px


mbl.is Times: Gaumur að kaupa starfsemi Baugs á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur við ríkisstjórnina hruninn

Stuðningur við ríkisstjórnina er hruninn úr 85% í byrjun ársins niður í rétt rúm 50% s.k.v. mælingu Fréttablaðsins. Fylgi færist á milli ríkisstjórnarflokkana Sjálfstæðisflokknum í óhag en Frjálslyndir bæta við sig. 

Athygli vekur miklar breytingar á fylgi Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokksins. Frjálslyndir hafa alltaf mælst minni í könnunum en í kosningum öfugt við Sjálfstæðisflokkinn. Því má búast við að hreyfingin sé enn stærri.

 


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar í könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir úr lífi Dionu prinsessu sem tala sínu máli

Fáeinar myndir sem segja meira en heil bók!

Kóngafólk hundelt af ljósmyndurum!

Það er með ókíkinum hvað kóngafólk er hundelt af fjölmiðlum. Þetta myndband fer nú ljósum logum um Bretland. Hvernig er það má þetta fólk ekki eiga neitt prívatlíf

"Stelpurnar okkar"

Það var sannarlega gaman að fylgjast með landsleik íslenska kvennaliðsins í knattspyrnu etja kapp við slóvenskar stöllur sínar. Í húfi var réttur til umspils um að komast á sjálft Evrópumótið. Kvennaliðið  hefur aldrei verið betra og áhugi fyrir kvennaknattspyrnunni er í stöðugri sókn enda var mætingin með besta móti. Það var rífandi stemning í blíðskaparveðri í dalnum og stelpurnar höfðu greinilega gaman af þessu og voru einum gæðaflokki betri en þær slóvensku.  Þær voru allar frábærar í dag en að öllum ólöstuðum vil ég hæla Katrínu Jónsdóttur fyrirliða og Margréti Láru, sem skoraði þrennu og fór af velli þegar 33 mínútur voru eftir.  Mér sýndist hún verða fyrir einhverju hnjaski og vona að það sé ekki alvarlegt.                                  916484011_111

 

Stelpurnar eiga það skilið að þjóðin standi með þeim.


mbl.is Ísland vann stórsigur á Slóveníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband