Álverð þokast uppávið Ísland á ýmsa möguleika
Sunnudagur, 4. janúar 2009
Íslendingar eru að sigla inn í kreppu og eru undir miklum þrýstingi að finna góð atvinnutækifæri. Undanfarið misseri hefur ál verið á brunaútsölu og lægst fór það fyrir um 3 vikum niður í 1465$ fyrir tonnið en hefur nú hækkað um rúma hundrað dali frá því verði eða í 1570$ pr tonn. Því er ljóst að samningsstaða Íslands gæti verið betri svo ekki sé meira sagt. Undanfarið hafa verið byggð álver í Kasakstan, Indlandi og Kína en búist er við frekari lokunum í Kanada og Bandaríkjunum snemma á þessu ári. Þess vegna má búast við að raforkusala Landsvirkjunar, sem rekin er með tapi fari aftur að skila hagnaði í næsta mánuði, enda eru framvirkir samningar hærri. Sjá hér
Fyrir skömmu ræddi Þórólfur Árnason forstjóri SKÝRR um þróun og möguleika hugbúnaðarins á Íslandi. Hann sagði að hugbúnaðarfyrirtækin hafi þrifist þrátt fyrir mjög hátt gengi en nú blómstruðu þau mörg hver, þar sem þau fengju helmingi fleiri krónur fyrir sömu vinnu. Hugbúnaðarfyrirtæki hafa vaxið án atbeina stjórnvalda og sá iðnaður er ein fárra atvinnugreina sem er að bæta við sig fólki núna.
Færeyingar sýndu fram á að sjávarútvegurinn getur skilað mun meiri arði ef hann losnar úr viðjum kvótans. Þannig myndi brottkastið hverfa og hægt væri spara dýrt og óskilvirkt eftirlitskerfi. Þá er hægt að veiða mun meira með því að grisja hval þó ekki væri nema lítilsháttar.
Verðsveiflurnar á áli sýna að við ættum ekki að sækjast eftir því sérstaklega að hafa fleiri álegg í einni og sömu körfunni enda er raforka eftirsótt í ýmislegt.
Losnum við úrræðalausu ríkisstjórnina og leyfum þúsund blómum að spretta
Lifi Ísland
![]() |
Helguvík í gang 2011 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Víkingasveit Seðlabankans" lætur finna fyrir sér
Laugardagur, 3. janúar 2009
Eins og sést á gekk hanskaklæddi maðurinn á myndinni um á vettvangi ógnaði og sló til mótmælenda. Þessi ógnvænlegi maður er enginn annar en Ólafur Klemensson hagfræðingur seðlabankans sem þarna kom uppábúinn til slagsmála ásamt bróður sínum. Vitni á staðnum sáu til ofbeldismannsins reyna að sparka í liggjandi mann, sem verið var að stumra yfir vegna piparúða.
Í lögum um opinbera starfsmenn er í 14. grein kveðið á um að starfsmanni sé utan starfsvettvangs óheimilt að aðhafast nokkuð það sem varpað geti rýrð á starf hans eða starfsgrein. í 21. grein sömu laga segir að verði starfsmaður uppvís að ósæmilegri, óhæfilegri hegðun eða ósamrýmanlegri starfinu skuli forstöðumaður veita honum skriflega áminningu.
Úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Opinberar starfskyldur þessa manns eru ekki þær að koma fram sem víkingasveit fyrir hönd bankans. Með þessari háttsemi hefur maðurinn rýrt álit seðlabankans og því ber Davíð að veita honum skriflega áminningu. Mun Davíð standast það álagspróf?
Hagfræðingur seðlabankans Ólafur Klemensson, lætur hendur skipta
![]() |
Mótmælendum ógnað á gamlársdag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (89)
Raddir Fólksins hafa talað: Árni búinn að tæma bikarinn
Föstudagur, 2. janúar 2009

![]() |
Krefjast afsagnar Árna Mathiesen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýtt ár, ný fyrirheit Hvernig þróast Ísland?
Fimmtudagur, 1. janúar 2009
Flestir Íslendingar kveðja árið 2008 með blendnum huga. Langvinn spilling og óstjórn í landinu leiddi það af sér að efnahagslægðin kom óvenju hart niður á íslensku þjóðinni og mun hún þurfa að glíma við afleiðingar þess næstu áratugina. Vonandi reynist Páll Skúlason sannspár í því að þjóðin muni nú kasta fyrir róða þeim sérhagsmunagildum sem komu henni á vonarvöl. En hvernig koma menn á nauðsynlegri siðbót sem fólkið þyrstir eftir og er söguleg nauðsyn ef þjóðin á að komast á lappirnar. Kannski munu menn reyna að laga einhvern þeirra flokka sem fyrir eru. Kosturinn við þetta er sá að flestir flokkarnir hafa góða stefnuskrá og markmiðasetningu. Gallinn við það er sá að þar sitja á fleti fyrir menn sem ýmist eru sekir um núverandi ástand eða hafa sýnt ótrúlega meðvirkni og hafa engu meiri skilning á þörf byrir breytingar en sjálfir gerendurnir. Ef til vill verður stofnaður nýr stjórnmálaflokkur einn eða fleiri. Þetta er ekki áhlaupaverk, m.a. vegna þess að núverandi stjórnmálaflokkar hafa skapað sér forskot. En á móti kemur að nýir aðilar þurfa ekki að dragnast með fortíðarvanda annarra. Því er það kannski besti kosturinn?
Sjálfur vona ég að ég geti verið betri við fólkið mitt og komið ýmsu þörfu til leiðar sem setið hefur á hakanum alltof lengi sakir leti.
Ég óska bloggvinum mínum
Gleðilegs árs og vona að komandi ár verði þeim gjöfult og hamingjusamt í einkalífi.
![]() |
Gleðilegt nýtt ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Geir telur ólíklegt að honum hafi orðið á
Miðvikudagur, 31. desember 2008
Geir telur frekar ólíklegt að honum hafi orðið á.
Setur þó þennan varnagla:
Hafi mér orðið á þá þykir mér það leitt,
Það stefnir því allt í að auglýsingin verði notuð áfram.
![]() |
Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.1.2009 kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Var skrúfað niður í landráðamönnum?
Miðvikudagur, 31. desember 2008

![]() |
Fólk slasað eftir mótmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Óréttmæt gagnrýni á Árna Mathiesen
Miðvikudagur, 31. desember 2008

![]() |
Telur nýmæli í niðurstöðu umboðsmanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nakinn maður kemur fram fyrir hönd Íslands
Þriðjudagur, 30. desember 2008
Páll Skúlason fyrrum háskólarektor var ágætur í viðtali hjá Evu Maríu á sunnudaginn. Sjá hér Hann talaði fyrir gömlum gildum um samvinnu og samhjálp sem hafa orðið útundan í græðgisvæðingunni sem nú hefur orðið okkur að falli. Hann talaði líka um spillingu, sem væri umtalsverð en taldi að flestir stjórnmálamenn vildu vel þó þeir hefðu sofið á verðinum og gerst sekir um landráð af gáleysi. Sá sem mesta sök ber er auðvitað sjálfur forsætisráðherrann sem hafði yfirumsjón með því að einkavinavæða bankana á sínum tíma meðan hann var fjármálaráðherra.
Helstu rök Geirs gegn kosningum eru þau að hann sé svo mikilvægur til að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar. Myndin birtist í stærsta dagblaði í Noregi.
![]() |
Togast á um Icesave-kjör |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Gáta: Hver þessara mynda er ófölsuð? Verðlaun í boði.
Sunnudagur, 28. desember 2008
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (43)
Samfylkingin er algjörlega umboðslaus til ESB viðræðna
Laugardagur, 27. desember 2008
Í grein sem Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, ritaði í Morgunblaðið nýlega rakti hann ítarlega hvernig að forystumenn flokksins hafa afflutt svokallað "umboð" sem þeir segjast hafa úr póstkosningu og landsfundarsamþykkt, sem í raun gekk út á að kanna samningsstöðu Íslandsog skilgreina samningsmarkmið. Til þess átti að skipa 9 manna nefnd en sú vinna fór aldrei í gang
Eftir stendur þetta:
Samfylkingin hefur aldrei farið í saumana á hverju við myndum fórna og hvað við myndum hugsanlega fá. Samfylkingin hefur aldrei mótað samningsmarkmið né heldur mótað stefnu um hverju megi fórna.
Samt er Evrópusambandsaðild eina lausn Samfylkingarinnar við öllum vanda á Íslandi í atvinnu og efnahagsmálum.
Vissulega er Ísland illa statt og fólk kallar eftir lausnum, ýmsir hafa þó bryddað upp á lausnum í atvinnumálum t.d. í sjávarútvegi en Samfylkingin þarf ekki að taka þátt, hún hefur sagt ESB. Mér segir svo hugur að menn sjái að ESB aðild myndi við þessar aðstæður gera illt verra og jafnvel setja í uppnám markaði utan ESB og forræði yfir sjávarauðlindinni.
Landsþing Sjálfstæðisflokksins er markleysa þar sem forystan veit að hún verður að sækja um aðild til að bjarga ríkisstjórnarsamstarfinu.
![]() |
Segir forystu ekki hafa umboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)