Ingibjörg fórnar sér fyrir Sigurbjörgu

Nú er ljóst að Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir tók ekki mark á aðvörunarorðum vinkonu  sinnar dr.Sigurbjorg_SigurgeirsdottirIngibjargar Sólrúnar Gísladóttur og stórskaðaði faglegan heiður sinn. Það sem meira er hún misskildi þessi aðvörunarorð bestu vinkonu sinnar og tók þau sem hótun en í raun og veru var Ingibjörg bara af vinsemd og góðum hug að vernda vinkonu sína frá því að tala af sér með þessu fólki sem ekki er fulltrúar þjóðarinnar og eyðileggja þannig faglegt orðspor sitt.

Fórnfýsi Ingibjargar er aðdáunarverð, hún fórnar eigin mannorði til þess að  bjarga mannorði vinkonu sinnar. 


mbl.is Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgunarleiðangurinn var í raun helför

Formenn stjórnarflokkana hafa báðir lýst því yfir að þeir séu ómissandi við stjórnvölinn og nærvera þeirra sé nauðsynleg til að skapa traust erlendis.  Allir nema þau viðast vita að ISG-og-GEIR-i-private-jet_869583075þessu er í raun öfugt farið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gekk svo langt að tala um að þau séu í björgunarleiðangri og menn boði ekki til aðalfundar í Slysavarnarfélaginu meðan leit stendur yfir. En hver er sannleikurinn í þessu máli?  Carsten Valgreen virtur hagfræðingur Danske bank hefur bæst í stóran hóp erlendra sérfræðinga sem segir að viðbrögð íslenskra stjórnvalda haf í raun verið fálmkennd, ótrúverðug og gert í raun illt verra. Þess vegna hafi Bretar séð sig til knúna til að beita hryðjuverkalögum.

Á góðri stundu um borð í einkaþotu


mbl.is Íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ilmur Kristjánsdóttir gróf. Heldur áfram sem Gísli Marteinn!

Kastljós var með óvenjulegu sniði í kvöld þegar þau Ilmur Kristjánsdóttir, í gervi Gísla Marteins og Guðmundur Steingrímssonar mættu til að fara yfir fréttir vikunnar. Þátturinn var rosalega fyndinn, allavega til að byrja með en endaði með talsvert gráu gamni. Helgi Seljan 24_fer þekktur fyrir að vera  talsvert óvægin við pólitíkusa, þó ég hafi hingað til verið sáttur við hann en núna fannst mér hann ganga of langt í gráu gamni: Í fyrstu lagði Ilmur Gísla þau orð í munn að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið í veg fyrir að fulltrúar hinna flokkana gæfu auðmönnum Orkuveitu Reykjavíkur. En steininn tók út þegar hún lagði borgarfulltrúanum þau orð í munn að Arni M. Mathiessen hafi staðið rétt að skipun héraðsdómara, með því að setja son Davíðs í embættið þó aðrir hæfari en lakar ættaðir hefðu sótt um. Og ekki var síður gróft af henni að leggja Gísla þau orð í munn að sjálfsagt sé að deila við umboðsmann Alþingis.  Þarna gekk Ilmur alltof langt!  Hvað á þetta einelti að þýða? Er Kastljós að reyna að rústa pólitískri framtíð Gísla?

 

Hvers á Gísli að gjalda?


Jólasveinn reyndi að hleypa fundinum upp

astthor_tru_ur.jpgÁ tímabili lá viðað syði uppúr á sáttafundinum í Iðnó, þegar friðarsinninn Ástþór Magnússon kom í jólasveinabúning og gerði sitt besta til að hleypa fundinum upp.  Jónasveininum var að lokum vísað á dyr og róaðist fundurinn þá og endaði í friði og spekt. Segja má að mikill órói sé nú í kring um jólasveina því ISG var um það bil búin að koma sér út úr húsi í Samfylkingunni með því að lýsa yfir eindregnum stuðningi við jakkafataklæddan jólasvein í ríkisstjórninni. big-ArniMMathiesenI4Y1715___jpg_550x400_q95 Asthor_Magnusson_a_birosagon
mbl.is Fundi lokið í sátt og samlyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan fundar með grímuklæddum manni! Stöndum öll saman

Það   er sneisafullt út úr dyrum í Iðnó í kvöld þegar aðgerðasinnar funda með lögreglunni um mótm´æli og borgaralega óhlýðni.  Það kraumar mikil óánægja í þjóðfélaginu yfir ástandinu. Ég er einn þeirra sem tel að helstu ástæður þess að hrunið varð jafn afdrifaríkt og raun ber vitni sé gríðarleg spilling og andvaraleysi stjórnvalda. Ég tel að þess vegna að mótmælin séu ekki bara eðlileg heldur nauðsynleg til að þoka fram breytingum. Það liggur í augum uppi að það eina sem hindrar spillt stjórnvöld í að afskrifa skuldir velviðdamanna sinna eru vökul augu borgarana.

Eitt skulum við öll hafa á hreinu og það er að lögreglan er jafn miklir þolendur og hverjir Iraqi%20Police%20Masked%20Face%20Fallujah%202aðrir borgarar í landinu. Þeim finnst nákvæmlega jafn sorglegt og okkur að börn okkar skuli vera skuldsett í marga áratugi og jafnvel út lífið. 

Yfirmenn lögreglunnar eru heiðursmenn og það er þeim að þakka og lögreglunni allri að ekki hefur farið verr í þeim átökum sem þó hafa orðið.  

Fundurinn í kvöld var haldinn til að auka á skilning manna á milli og koma í veg fyrir að átök verði. Höldum áfram að mótmæla spillingu en stöndum með lögreglunni, hún er fólkið og vinnur fyrir fólkið.  


mbl.is Fullt út úr dyrum í Iðnó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjöggi velkominn í Dalinn

Bjöggi (Björgólfur Takefusa) er fæddur og uppalinn Þróttari eða köttari eins og við köllum %C3%9Er%C3%B3ttur_R. þá okkar á milli. Hann hefur alltaf kunnað best við sig að röndóttur á vellinum en persónulega kann ég þó langbest við hann í lit, enda stóð hann sig alltaf best. Bjöggi er ekki bara mikill markaskorari heldur útsjónasamur dugnaðarforkur á vellinum og auðvitað38312_700_w góður félagi. Góðar kveðjur úr Dalnum.takefusa
mbl.is Björgólfur af stað með KR-ingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaust að kveikja í pung eiginmannsins!

Ég er yfir mig hneykslaður á  þessar konu að kveikja í kynfærum eiginmannsins. Svona verknað framkvæmir engin lifandi manneskja nema sem haldin er siðblindu og  takmarkalausum kvalalosta.  Giftar konur vita vel að þetta er viðkvæmasti hluti mannslíkamans  (á körlum). Kannski var það eins gott að maðurinn dó fyrst þetta þurfti að koma fyrir.

Myndin sýnir sérþjálfaðan bandarískan  pyntingameistara að störfum í Íraknew%20torture%202Nazi-SADISTIC_fun


mbl.is Kveikti í eiginmanninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafísinn er óvenju fjarri Íslandi

hafísHafísröndin er hvergi nær landi en hundrað kílómetrar. Þetta er mjög óvenjulegt miðað við árstíma og ekkert útlit er fyrir að breyting verði á þessu. Það má því búast við algerum verkefnaskorti hjá Þórunni Sveinbjarnardóttur,  enda ekki útlit fyrir að nokkur ísbjörn nái landi þetta árið.img_59962

Stjórnvöld hafa klúðrað öllu hingað til og fara varla að breyta því.

Stjórnvöld afsöluðu sér illu heilli réttinum til að fara í icesave málssókn, því annars hefðum við ekki fengið lánið frá IMF. Þetta var gert að kröfu ESB. Með því að ganga að þessum afarkostum var verið að ýta málinu inn í framtíðina og margfalda vanda komandi kynslóða.  Íslenska ríkið hefur hins vegar dregið lappirnar í málsókn vegna hryðjuverkalaga á kaunþing og sinclar (ef ég stafset þetta rétt) sem var breskur banki.   Fresturinn til þeirrar málshöfðunar rennur út á miðvikudaginn kemur.

Helst hefur verið lífsmark með stjórnvöldum í sambandi við öryggisráðið en annars hafa þau verið dauðadái í meira en ár. Því er heldur ólíklegt að þau rumski yfir þessu.  Kannski vakna dyggir flokksmenn til að afskrifa skuldir  velþóknanlegra Sjá hér

og hér


mbl.is Fresturinn að renna út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er markleysa

Sjálfstæðisflokkurinn mun gera allt sem í hans valdi stendur til að forðast kosningar, bæði vegna þess að hann stendur illa í skoðanakönnunum og ekki síður vegna þess að gríðarlegar Geir_Haardeeignir eru nú að færast til ríkisins sem forysta flokksins vill ráðstafa til sinna manna.  Ingibjörg Sólrún hefur sett Sjálfstæðisflokknum skýra kosti: Samþykki landsfundurinn ekki ESB aðild mun hún slíta stjórnarsamstarfinu og efna til kosninga.

Því er sjálfstæðismönnum nauðugur einn kostur þ.e. þeir verða að samþykkja ESB tillögur Samfylkingarinnar. Þess vegna er landsfundurinn sjónarspil og markleysa.


mbl.is Segir utanríkisráðherra vinna gegn ESB umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband