Færsluflokkur: Ljóð

"Víkingasveit Seðlabankans" lætur finna fyrir sér

c7fb4476ae5df9eccb35619765ed7dffEins  og sést á gekk hanskaklæddi maðurinn á myndinni um á vettvangi ógnaði og sló til mótmælenda. Þessi ógnvænlegi maður er enginn annar en Ólafur Klemensson hagfræðingur seðlabankans sem þarna kom uppábúinn til slagsmála ásamt bróður sínum. Vitni á staðnum sáu til ofbeldismannsins reyna að sparka í liggjandi mann, sem verið var að stumra yfir vegna piparúða.

Í lögum um opinbera starfsmenn er í 14. grein kveðið á um að starfsmanni sé utan starfsvettvangs óheimilt að aðhafast nokkuð það sem varpað geti rýrð á starf hans eða starfsgrein. í 21. grein sömu laga segir að verði starfsmaður uppvís að ósæmilegri, óhæfilegri hegðun eða ósamrýmanlegri starfinu skuli forstöðumaður veita honum skriflega áminningu.
Úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Opinberar starfskyldur þessa manns eru ekki þær að koma fram sem víkingasveit fyrir hönd bankans.  Með þessari háttsemi hefur maðurinn rýrt álit seðlabankans og því ber Davíð að veita honum skriflega áminningu.  Mun Davíð standast það álagspróf?

 motmaelanda_ogna_-1

 Hagfræðingur seðlabankans Ólafur Klemensson, lætur hendur skipta


mbl.is Mótmælendum ógnað á gamlársdag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raddir Fólksins hafa talað: Árni búinn að tæma bikarinn

Árni Mathiessen er endanlega búinn að vera í pólitík eftir þennan úrskurð Radda Fólksins.  big-ArniMMathiesenI4Y1715___jpg_550x400_q95 Árni var nú reyndar ekki vinsæll fyrir en þetta gerði endanlega út um feril hans sem stjórnmálamanns. Maður spyr sig af hverju viðskipta- og bankamálaráðherra var hlíft?  En það þíðir ekki að deila við Raddir Fólksins. Ráðamenn sem eru rúnir öllu trausti almennings, ættu að fara en ekki þumbast við.
mbl.is Krefjast afsagnar Árna Mathiesen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var skrúfað niður í landráðamönnum?

Það er sluæmt þegar  mótmæli fara úr böndum og fólk slasast og það er líka slæmt að eigur saklausra skuli vera skemmdar. Persónulega hafði ég ekki hugsað mér að horfa á Kryddsíldina eða hvers vegna ætti maður að skemma áramótin með því að hlusta á 39aRikisstjornGHHII lygaþvælu frá þessu sama liði?  En ef annað fólk sér einhverja skemmtun í því þá er miður að þetta fór svona. Við skulum samt ekki gleyma hvers vegna unga fólkið er reitt. Sá orðvari maður Páll Skúlason fyrrverandi Háskólarektor kallaði þetta ógæfufólk "landráðamenn af gáleysi" .   Hlusta hér  Menn firra sig ekki ábyrgð með því að segjast hafa sofið á verðinum eða verið andvaralausir. Samt hefur enginn sagt af sér eða beðist afsökunar.
mbl.is Fólk slasað eftir mótmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óréttmæt gagnrýni á Árna Mathiesen

Árni var skipaður dómsmálaráðherra í einn dag til þess að ráða son Davíðs í embætti big-ArniMMathiesenI4Y1715___jpg_550x400_q95 héraðsdómara. Það var ætlast til þess af honum að hann réði Þorstein og hans hefðu beðið ill örlög ef hann hefði svikist undan því.  Hvað gat hann gert annað?
mbl.is Telur nýmæli í niðurstöðu umboðsmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nakinn maður kemur fram fyrir hönd Íslands

cci-aft-20081227-1-_261821m.jpgPáll Skúlason fyrrum háskólarektor var ágætur í viðtali hjá Evu Maríu á sunnudaginn. Sjá hér  Hann talaði fyrir gömlum gildum um samvinnu og samhjálp sem hafa orðið útundan í græðgisvæðingunni sem nú hefur orðið okkur að falli. Hann talaði líka um spillingu, sem væri umtalsverð en taldi að flestir stjórnmálamenn vildu vel þó þeir hefðu sofið á verðinum og gerst sekir um landráð af gáleysi. Sá sem mesta sök ber er auðvitað sjálfur forsætisráðherrann sem hafði yfirumsjón með því að einkavinavæða bankana á sínum tíma meðan hann var fjármálaráðherra.

Helstu rök Geirs gegn kosningum eru þau að hann sé svo mikilvægur til að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar. Myndin birtist í stærsta dagblaði í Noregi.


mbl.is Togast á um Icesave-kjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáta: Hver þessara mynda er ófölsuð? Verðlaun í boði.

c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_traust_efnahagsstjorn_geirsc_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_dvd8_751434c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_dvd1_751435c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_dvd7_751438

 

 

 

 

 


 c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_dvd3_751432


Samfylkingin er algjörlega umboðslaus til ESB viðræðna

 Í grein sem Stefán Jóhann Stefánsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, ritaði í Morgunblaðið nýlega rakti hann ítarlega hvernig að forystumenn flokksins hafa afflutt svokallað "umboð" sem þeir segjast hafa úr póstkosningu og landsfundarsamþykkt, sem í raun gekk út á að kanna samningsstöðu Íslandsog skilgreina samningsmarkmið. Til þess átti að skipa 9 manna nefnd en sú vinna fór aldrei í gang

Eftir stendur þetta:

 

Samfylkingin hefur aldrei farið í saumana á hverju við myndum fórna og hvað við myndum hugsanlega fá. Samfylkingin hefur aldrei mótað samningsmarkmið  né heldur mótað stefnu um hverju megi fórna. 

Samt er Evrópusambandsaðild eina lausn Samfylkingarinnar við öllum vanda á Íslandi í atvinnu og efnahagsmálum. 

 Vissulega er Ísland illa statt og fólk kallar eftir lausnum, ýmsir hafa þó bryddað upp á lausnum í atvinnumálum t.d. í sjávarútvegi en Samfylkingin þarf ekki að taka þátt, hún hefur sagt ESB.  Mér segir svo hugur að menn sjái að ESB aðild myndi við þessar aðstæður gera illt verra og jafnvel setja í uppnám markaði utan ESB og forræði yfir sjávarauðlindinni. 

Landsþing Sjálfstæðisflokksins er markleysa þar sem forystan veit að hún verður að sækja um aðild til að bjarga ríkisstjórnarsamstarfinu.


mbl.is Segir forystu ekki hafa umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur þjóðkirkjuprestur fyrir aðkasti vegna trúleysis á jólasveina

Það er ekki bara á Ítalíu sem prestar hafa lent í vandræðum vegna trúleysis á jólasveina. Séra Flóki Kristinsson hefur margsinnis lent í útistöðum við safnaðarbörn sín, þar sem hann er haldinn þeirri áráttu að prédika gegn jólasveinum. Það hefur oft verið amast við þessari jol8undarlegu hegðun  bæði meðan hann var í Langholtskirkju og í Borgarfirðinum. Þetta fullkomlega óverðskuldað enda eru jólasveinar gleðigjafar barnanna og hafa algjörlega látið það eiga sig að amast við nokkrum og síst af öllu þjóðkirkjunni.

En auðvitað er þetta kjánaleg afbrýðisemi þar sem jólasveinar eru eftirsóttari en prestar á jólatréskemmtanir,


mbl.is Heiðarlegur prestur „eyðilagði jólin fyrir börnunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélagslegt sorp

hbpc205494.jpgSíðastliðinn föstudag héldum við í hverfisráði Breiðholts síðasta fund fyrir jól og fengum góða gesti, því  auk hefðbundinna mála veittum við starfsmönnum sorphirðunnar í Breiðholti viðurkenningu og dálita umbun fyrir samviskusamlega unnin störf í þágu umhverfismála.

 

 Af þessu tilefni bauð hinn vaski formaður okkar Brynjar Fransson (sem stendur á efstu myndinni) gesti okkar velkomna með þessum orðum:    "Ágætu gestir, fyrir hönd hverfisráðs Breiðholts er mér sönn ánægja að bjóða ykkur innilega velkomin til að  taka á móti viðurkenningu fyrir vel unnin störf, sem við erum öll þakklát fyrir. Nú háttar svo til að það er mikið rusl í þjóðfélaginu, flestir finna það á buddunni, enn aðrir finna það á skrokknum og siðast en ekki síst sálinni. Hreinsunarstarfið er hafið, en ég hef enga trú á að það hreinsunarstarf verði unnið af jafn mikilli kostgæfni og þið vinnið ykkar starf. En ef svo verður heiti APC205501.jpgég því að  þeir sem að því verki koma munu fá samskonar verðlaun og þið. "

Gerður var góður rómur að þessari snjöllu ræðu og að henni lokinni fengu menn sér hressingu og ræddu um sorphirðu og fleiri þjóðþrifaverk.

 

   Sjá nánar hér


Gísli Marteinn afhjúpar leyndarmál:

 Gísli Marteinn hefur nú afhjúpað af hverju hann þáði laun þó hann væri ekki búsettur á landinu. Hann og Hanna Birna óttuðust að ef hann færi af launaskrá, teldi fólk að fleygur væri á milli þeirra gisli3sjá tilvitnun úr heimasíðu Gísla:

 "Það er til marks um breytta tíma í þjóðmálunum að þegar ég komst inn í Edinborgarháskóla og sagði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og öðrum félögum mínum frá því, voru áhyggjur okkar þær að námið mitt myndi koma út einsog flótti væri brostinn í borgarstjórnarflokkinn. Ég segi einsog stundum er sagt: Ef aðeins það væru áhyggjur okkar núna. En eftir það sem á undan var gengið í borgarmálunum, vildum við ekki að fólk héldi að einhver fleygur væri í samstarfi okkar Hönnu Birnu og borgarstjórnarflokknum héldist ekki á sínu fólki. Okkur fannst því betra að ég myndi vera áfram einn af borgarfulltrúum okkar."

Þetta kemur samt of seint hjá Gísla

Himasíða Gísla Marteins


mbl.is Gísli Marteinn tekur sér launalaust leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband