Færsluflokkur: Ljóð
Sjómenn yfirgefa Samfylkinguna
Laugardagur, 17. janúar 2009
Skúli Helgason: Krafa um breytingar á rétt á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 05:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þá geta menn veðsett 30.000 tonn til viðbótar í útlöndum!
Föstudagur, 16. janúar 2009
Það eru vissulega gleðitíðindi fyrir íslenskt efnahagslíf að gefnar séu út auknar veiðiheimildir á þorsk. Sá böggull fylgir þó skammrifi að í núverandi kerfi þýðir þetta að "greifarnir" geta veðsett 30.000 tonn í viðbót af sameign þjóðarinnar og flutt þá peninga úr landi ef þeim býður svo við. Þess utan er hætt við að hluti af þessum aflaheimildum lendi sem fóður í þrotabúum sem erlendir bankar gera kröfu í.
Það er kominn tími til að fá stjórnvöld sem bera hag þjóðarinnar fyrir brjósti.
Þorskkvóti aukinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mega þingmenn þiggja mútur?
Miðvikudagur, 14. janúar 2009
Menn tala núna fjálega um að uppræta spillinguna: Nýtt Ísland. Helstu hugsuðir landsins koma fram og leggja til að við stofnum nýtt lýðveldi. Hvorki meira né minna. Jafnvel framsóknarmenn tala nú um að kosið verði til stjórnlagaþings. Það er alveg ljóst að dýpt kreppan sem við stöndum nú frammi fyrir stafar ekki síst af spillingu, þar sem peningaöflin höfðu keypt sér öll þau áhrif í stjórnkerfinu sem þau vildu og þess vegna sungu stjórnmálamennirnir með þrátt fyrir að öll rauð ljós blikkuðu. Við þurfum þess vegna að fá heiðarlega stjórnmálamenn.
Fyrsta skrefið ætti að vera að þeir þingmenn sem hafa orðið uppvísir og fengið fangelsisdóm fyrir að þiggja mútur séu ekki kjörgengir. Í þessu er mikill fælingamáttur. Sé gerð undantekning frá þessu ætti að vera algjört skilyrði að einungis þjóðkjörinn forseti geti veitt sakamanninum uppreisn æru. Þá gætu spilltir flokksbræður ógæfumannsins, sem hugsanlega finna til samkenndar, ekki tekið sig saman um að bregða út öryggisneti fyrir félaga sem var svo óheppinn að gera tæknileg mistök þannig að upp komst. Þessir handhafar forsetavalds gætu líka verið undir óþægilegum þrýstingi þar sem sá sem gripinn var hótar að fletta ofan af hinum, um margfalt stærri spillingarmál og gefa jafnvel út bók um spillingu sem þessir félagar hans kunna að vera blandaðir í. Því er ekki rétt að setja veiklundaða handhafa forsetavalds í þá stöðu að hægt sé að ógna þeim með því að skrifuð verði bók.
Árni hótaði að skrifa bók, ef með þyrfti og fletta ofan af spillingaröflunum!
Lagt til að kosið verði til stjórnlagaþings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (53)
Ingibjörg fórnar sér fyrir Sigurbjörgu
Miðvikudagur, 14. janúar 2009
Nú er ljóst að Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir tók ekki mark á aðvörunarorðum vinkonu sinnar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og stórskaðaði faglegan heiður sinn. Það sem meira er hún misskildi þessi aðvörunarorð bestu vinkonu sinnar og tók þau sem hótun en í raun og veru var Ingibjörg bara af vinsemd og góðum hug að vernda vinkonu sína frá því að tala af sér með þessu fólki sem ekki er fulltrúar þjóðarinnar og eyðileggja þannig faglegt orðspor sitt.
Fórnfýsi Ingibjargar er aðdáunarverð, hún fórnar eigin mannorði til þess að bjarga mannorði vinkonu sinnar.
Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Björgunarleiðangurinn var í raun helför
Sunnudagur, 11. janúar 2009
Formenn stjórnarflokkana hafa báðir lýst því yfir að þeir séu ómissandi við stjórnvölinn og nærvera þeirra sé nauðsynleg til að skapa traust erlendis. Allir nema þau viðast vita að þessu er í raun öfugt farið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gekk svo langt að tala um að þau séu í björgunarleiðangri og menn boði ekki til aðalfundar í Slysavarnarfélaginu meðan leit stendur yfir. En hver er sannleikurinn í þessu máli? Carsten Valgreen virtur hagfræðingur Danske bank hefur bæst í stóran hóp erlendra sérfræðinga sem segir að viðbrögð íslenskra stjórnvalda haf í raun verið fálmkennd, ótrúverðug og gert í raun illt verra. Þess vegna hafi Bretar séð sig til knúna til að beita hryðjuverkalögum.
Á góðri stundu um borð í einkaþotu
Íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ilmur Kristjánsdóttir gróf. Heldur áfram sem Gísli Marteinn!
Föstudagur, 9. janúar 2009
Kastljós var með óvenjulegu sniði í kvöld þegar þau Ilmur Kristjánsdóttir, í gervi Gísla Marteins og Guðmundur Steingrímssonar mættu til að fara yfir fréttir vikunnar. Þátturinn var rosalega fyndinn, allavega til að byrja með en endaði með talsvert gráu gamni. Helgi Seljan er þekktur fyrir að vera talsvert óvægin við pólitíkusa, þó ég hafi hingað til verið sáttur við hann en núna fannst mér hann ganga of langt í gráu gamni: Í fyrstu lagði Ilmur Gísla þau orð í munn að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið í veg fyrir að fulltrúar hinna flokkana gæfu auðmönnum Orkuveitu Reykjavíkur. En steininn tók út þegar hún lagði borgarfulltrúanum þau orð í munn að Arni M. Mathiessen hafi staðið rétt að skipun héraðsdómara, með því að setja son Davíðs í embættið þó aðrir hæfari en lakar ættaðir hefðu sótt um. Og ekki var síður gróft af henni að leggja Gísla þau orð í munn að sjálfsagt sé að deila við umboðsmann Alþingis. Þarna gekk Ilmur alltof langt! Hvað á þetta einelti að þýða? Er Kastljós að reyna að rústa pólitískri framtíð Gísla?
Hvers á Gísli að gjalda?
Ljóð | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Lögreglan fundar með grímuklæddum manni! Stöndum öll saman
Fimmtudagur, 8. janúar 2009
Það er sneisafullt út úr dyrum í Iðnó í kvöld þegar aðgerðasinnar funda með lögreglunni um mótm´æli og borgaralega óhlýðni. Það kraumar mikil óánægja í þjóðfélaginu yfir ástandinu. Ég er einn þeirra sem tel að helstu ástæður þess að hrunið varð jafn afdrifaríkt og raun ber vitni sé gríðarleg spilling og andvaraleysi stjórnvalda. Ég tel að þess vegna að mótmælin séu ekki bara eðlileg heldur nauðsynleg til að þoka fram breytingum. Það liggur í augum uppi að það eina sem hindrar spillt stjórnvöld í að afskrifa skuldir velviðdamanna sinna eru vökul augu borgarana.
Eitt skulum við öll hafa á hreinu og það er að lögreglan er jafn miklir þolendur og hverjir aðrir borgarar í landinu. Þeim finnst nákvæmlega jafn sorglegt og okkur að börn okkar skuli vera skuldsett í marga áratugi og jafnvel út lífið.
Yfirmenn lögreglunnar eru heiðursmenn og það er þeim að þakka og lögreglunni allri að ekki hefur farið verr í þeim átökum sem þó hafa orðið.
Fundurinn í kvöld var haldinn til að auka á skilning manna á milli og koma í veg fyrir að átök verði. Höldum áfram að mótmæla spillingu en stöndum með lögreglunni, hún er fólkið og vinnur fyrir fólkið.
Fullt út úr dyrum í Iðnó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnvöld hafa klúðrað öllu hingað til og fara varla að breyta því.
Mánudagur, 5. janúar 2009
Stjórnvöld afsöluðu sér illu heilli réttinum til að fara í icesave málssókn, því annars hefðum við ekki fengið lánið frá IMF. Þetta var gert að kröfu ESB. Með því að ganga að þessum afarkostum var verið að ýta málinu inn í framtíðina og margfalda vanda komandi kynslóða. Íslenska ríkið hefur hins vegar dregið lappirnar í málsókn vegna hryðjuverkalaga á kaunþing og sinclar (ef ég stafset þetta rétt) sem var breskur banki. Fresturinn til þeirrar málshöfðunar rennur út á miðvikudaginn kemur.
Helst hefur verið lífsmark með stjórnvöldum í sambandi við öryggisráðið en annars hafa þau verið dauðadái í meira en ár. Því er heldur ólíklegt að þau rumski yfir þessu. Kannski vakna dyggir flokksmenn til að afskrifa skuldir velþóknanlegra Sjá hér
Fresturinn að renna út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 01:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er markleysa
Sunnudagur, 4. janúar 2009
Sjálfstæðisflokkurinn mun gera allt sem í hans valdi stendur til að forðast kosningar, bæði vegna þess að hann stendur illa í skoðanakönnunum og ekki síður vegna þess að gríðarlegar eignir eru nú að færast til ríkisins sem forysta flokksins vill ráðstafa til sinna manna. Ingibjörg Sólrún hefur sett Sjálfstæðisflokknum skýra kosti: Samþykki landsfundurinn ekki ESB aðild mun hún slíta stjórnarsamstarfinu og efna til kosninga.
Því er sjálfstæðismönnum nauðugur einn kostur þ.e. þeir verða að samþykkja ESB tillögur Samfylkingarinnar. Þess vegna er landsfundurinn sjónarspil og markleysa.
Segir utanríkisráðherra vinna gegn ESB umsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Álverð þokast uppávið Ísland á ýmsa möguleika
Sunnudagur, 4. janúar 2009
Íslendingar eru að sigla inn í kreppu og eru undir miklum þrýstingi að finna góð atvinnutækifæri. Undanfarið misseri hefur ál verið á brunaútsölu og lægst fór það fyrir um 3 vikum niður í 1465$ fyrir tonnið en hefur nú hækkað um rúma hundrað dali frá því verði eða í 1570$ pr tonn. Því er ljóst að samningsstaða Íslands gæti verið betri svo ekki sé meira sagt. Undanfarið hafa verið byggð álver í Kasakstan, Indlandi og Kína en búist er við frekari lokunum í Kanada og Bandaríkjunum snemma á þessu ári. Þess vegna má búast við að raforkusala Landsvirkjunar, sem rekin er með tapi fari aftur að skila hagnaði í næsta mánuði, enda eru framvirkir samningar hærri. Sjá hér
Fyrir skömmu ræddi Þórólfur Árnason forstjóri SKÝRR um þróun og möguleika hugbúnaðarins á Íslandi. Hann sagði að hugbúnaðarfyrirtækin hafi þrifist þrátt fyrir mjög hátt gengi en nú blómstruðu þau mörg hver, þar sem þau fengju helmingi fleiri krónur fyrir sömu vinnu. Hugbúnaðarfyrirtæki hafa vaxið án atbeina stjórnvalda og sá iðnaður er ein fárra atvinnugreina sem er að bæta við sig fólki núna.
Færeyingar sýndu fram á að sjávarútvegurinn getur skilað mun meiri arði ef hann losnar úr viðjum kvótans. Þannig myndi brottkastið hverfa og hægt væri spara dýrt og óskilvirkt eftirlitskerfi. Þá er hægt að veiða mun meira með því að grisja hval þó ekki væri nema lítilsháttar.
Verðsveiflurnar á áli sýna að við ættum ekki að sækjast eftir því sérstaklega að hafa fleiri álegg í einni og sömu körfunni enda er raforka eftirsótt í ýmislegt.
Losnum við úrræðalausu ríkisstjórnina og leyfum þúsund blómum að spretta
Lifi Ísland
Helguvík í gang 2011 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)