Færsluflokkur: Menntun og skóli
Fjárlagafrumvarpið eða ríksstjórnin í frosti?
Laugardagur, 11. október 2008
Fjárlagafrumvarpið er í frosti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sýnir Íslendingum tennurnar
Laugardagur, 11. október 2008
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur lofað að veita Íslendingum lán gegn því að þeir kyssi á vöndinn og gangi að öllum skilyrðum Breta, sem beittu hryðjuverkalögum til að brjótast inn í Kaupþing, breskan banka sem alltaf hafði staðið í skilum, á hausinn. Þessi aðgerð sem var löglaus og siðlaus kostar Íslendinga líklega þúsundir milljarða og rýrir verðgildi lífeyrissjóða.
Með þessu er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að höggva í sama knérunn og gera samningsstöðu Íslands verri. Þá má ekki gleyma því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er þekktur fyrir að þvinga ríki til að selja náttúruauðlindir sínar.
Vonandi hætta samfylkingarmenn að líta á Brown sem sinn mann.
Lausn á deilum forsenda IMF-aðstoðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Guð forði okkur frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Laugardagur, 11. október 2008
Þar sem Aljóðagjaldeyrissjóðurinn nær hreðjataki á ríkjum t.d. í Afríku og S-Ameríku setja þeir ýmiss skilyrði en þessi eru algengust:
1. Kröfur um að grunnatriði þjónustu við almenning verði aflögð með öllu
2. Náttúruauðlindir verði SELDAR og það STRAX.
3. Þar sem ekki eru til aurar innanlands, verði að selja útlendum aðilum auðlindirnar. S:S Kananum eða þeim sem þeir hafa velþóknun á.
Rússar og IMF sameinist um lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vernd gegn vinum
Fimmtudagur, 9. október 2008
Vill fá aðstoð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rússarnir koma - til aðstoðar
Þriðjudagur, 7. október 2008
Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bjart framundan Mannæta kemur Íslandi til aðstoðar
Fimmtudagur, 2. október 2008
Þó syrti í álinn í efnahagslegu tilliti geta Íslendingar ornað sé við þann gríðarlega vöxt sem orðið hefur í utanríkisþjónustunni í tengslum við metnaðarfull áform ríkisstjórnarinnar að komast í öryggisráðið. Stjórnvöld hafa sýnt ráðdeild og hugvitssemi t.d. þegar þau skutu keppinautunum ref fyrir rass með því að efna til stjórnmálasambands við mannætu. Helsti kosturinn við þetta er sá að ef einhverjir stjórnmálamenn verða ekki endurkjörnir t.d. vegna mistaka í efnahagsstjórnun verður hægt að koma þeim fyrir öryggisráðinu.
Halldór Ásgrímsson stóð sig frábærlega sem utanríkisráðherra og engin ástæða er til að ætla að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði eftirbátur hans.
Tæplega 1.500 sagt upp í hópuppsögnum í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þroskahefur maður í "ruslinu"
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Kannski hægt sé að spara fyrir launum Gísla Marteins?
Traust athafnastjórn í Reykjavík?
Laugardagur, 16. ágúst 2008
Nú þegar blikur eru á lofti í efnahagsmálum er nauðsynlegt að sýna dirfsku í ákvarðanatöku en eyða ekki dýrmætum tíma í óþarfa málæði og fundarhöld. Því er gott að það er tryggt að borgin getur áfram ráðstafað hundruðum milljóna króna ef brýna nauðsyn ber til á heimili Vilhjálms jafnvel að kvöldlagi ef málið þolir ekki bið eins og gerðist í Rei og síðar þegar vélað var um kaup húsanna við Laugarveg 4-6. Einstaka nöldurseggir eru að þrasa yfir týndum minnismiðum sem að öllum líkindum hafa lent í ryksugu eða því að þetta hafi verið gert að borgarstjóranum forspurðum og hann hafi viljað fara hægar í sakirnar varðandi húsakaupin. Fyrirgreiðslu- og athafnastjórnmálamenn geta ekki látið slíka gagnrýni trufla sig.
Þess vegna fagna Reykvíkingar nýja meirihlutanum. Eða hvað?
Samfylkingin hafnaði nýjum Reykjavíkurlista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þessi "frétt" er uppspuni
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Ólafur vildi Tjarnarkvartett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skúbb! Framsóknarfélögin í Rvk. með fund í kvöld
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að Ólafur hafi boðist til að standa strax upp úr borgastjórastólnum strax, gegn því að halda í málefnasamninginn. Þetta mun ekki duga enda gætir vaxandi óþreyju hjá vissum peningaöflum í garð meirihlutans. Framsóknarfélögin í Reykjavík eru með (leyni)fund í kvöld, þeir sem til þekkja vita að til slíks fundar er ekki boðað nema fyrir liggi samningur.
Samstarfið á endastað" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)