Þessi "frétt" er uppspuni

Einhver hefur fundið hjá sér hvöt til að spinna upp "frétt" um það að Ólafur F. Magnússon vildi víkja fyrir Margréti Sverrisdóttur til að liðka fyrir Tjarnarkvartett.  Af hvaða hvötum er þetta gert? Allir sem til þekkja vita að Ólafur og Margrét heilsast ekki, hvað þá að þau talist við.  Hitt er annað að Ólafur var tilbúinn til  að víkja úr borgarstjórastólnum til að bjarga málefnasamningnum.  Þetta kom fram í samtali við Ólaf í gærkvöldi. Nú hefur komið í ljós að svokallaðar viðræður Hönnu Birnu og Ólafs í gær og í dag voru aðeins til málamynda og í raun yfirseta Hönnu til að villa um fyrir Ólafi.
mbl.is Ólafur vildi Tjarnarkvartett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband