Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Finnur ekki í persónulegum ábyrgðum

framsokn2 Finnur  er háll sem áll því hann er ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir Langflug. Tjónið lendir á Landsbankanum. Finnur hefur margsýnt þaö að hann er glúrinn í viðskiptum.
mbl.is Langflug gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoskir sjómenn hlakka til að fá fullan aðgang að Íslandsmiðum

thumbnailHaft er eftir Bertie Armstrong, framkvæmdastjóra skoska sjómannasambandsins, að skoskir fiskimenn hafi verið reknir af Íslandsmiðum eftir tvö þorskastríð á áttunda áratug síðustu aldar. „Við lítum til þess, að Íslendingar eru nú að fara bónarveg til Evrópusambandsins og vonum að það verði til að við fáum aðgang að þeirra sjávarútvegi."

Alistair Carmichael, sem er þingmaður á enska þinginu fyrir Orkneyjar og Hjaltland, segir að aðild Íslands að ESB muni hrista upp í stjórnkerfi sambandsins  vegna þess að íslenska ríkisstjórnin muni ekki þola núverandi kerfi miðstýringar og gagnsleysis en endurskoða á sjávarútvegsstefnu ESB á næstu árum. Atkvæðavægi Íslands verður væntanlega u.þ.b. hálft prósent.


mbl.is Skoskir sjómenn vilja að Ísland gangi í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Vilhjálmur

Mig langar að óska Vilhjálmi Bjarnasyni innilega til hamingju með sigurinn í héraðsdómi. 1003561Þessi sigur er ekki bara persónulegur sigur fyrir Vilhjálm heldur skerpir hann á leikreglum í hlutafélögum þannig að reistar eru skorður við því hvernig stjórnarmenn ráðstafa eignum til að þeir geti ekki mismunað hluthöfum. Eftir þennan dóm ætti að vera fýsilegri kostur fyrir minni fjárfesta að leggja fé i atvinnustarfsemi.

 

Vilhjálmur Bjarnason


mbl.is Gætu þurft að greiða út 35 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn er geðveikur

Datt virkilega einhverjum í hug að þessi maður væri heilbrigður?  Eða á maður að trúa því að fólki finnist  eitthvað normalt við  hegðun þessa manns?  Mín skoðun er sú að að það sé meiriháttar brenglun að geta gert annarri manneskju það sem hann gerði , hvað  þá  sínu eigin afkvæmi. austria-josef-cp-476283
mbl.is Segir Fritzl ósakhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir geta fengið lyfið innan tíðar! Vonandi fá MS sjúklingar bót

Það eru óneitanlega góðar fréttir ef tekist hefur að finna gott lyf við MS. Mér er þetta hugleikið  enda á ég góða vini og ættingja sem eiga við sjúkdóminn að stríða. Mænusigg, sem í daglegu tali gengur undir nafninu MS er taugasjúkdómur sem tengist röskun ónæmiskerfisins.  Það er merkilegt að þessi sjúkdómur virðis að mestu bundinn við Vesturlönd. Eftir samtöl mín við fólk sem þekki sjúkdóminn af eigin raun er ég sannfærður um að umhverfisþátturinn þ.m.t. rétt hreyfing, mataræði og hvíld hafa verið stórlega vanmetin. miklar vonir hafa verið bundnar við nýjasta lyfið, Tysabri, sem 14 sjúklingar fengu til að byrja með en áætlað er sá hópur stækki í 50 manns næstu daga. Erlendar rannsóknir á lyfinu sýna afgerandi árangur og sú litla reynsla sem hefur verið innanlands lofar góðu. Að sögn Hauks Hjaltasonar taugalæknis má reikna með að allir geti fengið lyfið innan tíðar:                                    Nánar fræðslufundur MS um lyfið.
mbl.is Reynsla af Tysabri góð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega páska!

 

 

Í gær fóru börn á öllum aldri um holt og móa að leita páskaeggja. Í dag brjóta börnin eggin sín og lesa málshætti. Páskalambið er borið fram með Ora grænum baunum og brúnuðum kartöflum og fjölskyldan hreiðrar um sig í stofunni og hlustar á messu sama hverrar trúar menn eru. Þá reikar hugurinn til Pílatusar, sem var heiðingi eins og ég en var þvingaður til að láta krossfesta Krist.  Skyldi hann hafa valið páskana í von um lýðurinn veldi Krist í stað Barrabasar? Spyr sá sem ekki veit.  Ég sendi kristnum vinum mínum og fjölskyldu bestu óskir um gleðilega páska.

 

Guðspjall Mrk 16.1-7        (sumir álíta að þarna sé að finna þungamiðju kristninnar)

Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“
mbl.is „Upprisan tákn gleði og vonar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Bin Laden í Wasington?

Bin Laden og Bush eiga margt sameiginlegt. Báðir eru þeir trúarofstækismenn.  Báðir telja þeir sig vera handgengna Guði og að þeir fari með vald hans hér á jörðu. Báðir trúa þeir á heilagt stríð og svo mætti lengi telja. Margir telja að þeir kumpánar séu í raun kunningjar og allt ófriðartal þeirra sé í raun ekkert annað sýndarmennska. Nýlega barst mér í hendur mynd sem virðist einmitt  sanna þetta og að  Bin Laden komi fram  fyrir hönd félaga síns  Herra Bush. Aðrar heimildir herma að Bush bergði sér og í gerfi Bin Laden, sem sé hættur að hafa gaman af þessum ærslalátum Bush. bush_taliban1-793186 president_bin_laden


mbl.is Ný upptaka með bin Laden
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskylduhjálpin, ómetanlegt starf.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, hringdi í mig og bað mig, vegna forfalla, um hjálpa til við að útdeila páskamat til nauðstaddra í gær  og var það auðsótt mál. Ég  og mitt fólk hefur aldrei skort nauðsynjar og þó maður hafi heyrt af fátækt kom mér á óvart sár neyð fólks sem vegna sjúkdóma eða fötlunar getur ekki séð sér og börnum sínum farborða. Mynd_0259211

 

Formaður Fjölskylduhjápar Íslands

 

 Það var óvenju mikið að gera í gær þegar yfir 200 fjölskyldur, sem skrá höfðu sig á biðlista, leituðu aðstoða. Enginn fór tómhentur heim, og það var sterk tilfinning að horfa í augu fátækra og þakklátra barna sem auðsjáanlega höfðu lítið fyrir sig að leggja en gátu hlakkað til páskamatarins eins og önnur börn.-    

                       Fyrir þetta vil ég þakka:

Ég vil þakka Ásgerði Jónu fyrir hennar frumkvæði. Ég vil þakka fyrirtækjum og einstaklingum sem leggja starfseminni til mat og fjármagn. Ég vil þakka sjálfboðaliðunum fyrir að leggja hönd á plóg.    Að lokum vil ég þakka fyrir þá ánægju að fá að gleðja þá sem minna mega sín.Heart

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Ómetanlegt starf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

32% hækkun álverðs frá áramótum

Þegar álverð reis hæst fyrir um 10 dögum hafði það hækkað um 36% frá áramótum í dollurum en síðan hefur það verið á nokkru flökti 2n er nú 32% hærra en um áramót.  Helstu ástæður hækkunarinnar má rekja til aukinnar eftirspurnar á áli í Austur-Asíu og vegna hærra raforkuverðs og síðast en ekki síst kuldakastsins í Kína. Á móti kemur 9% lækkun dollars gagnvart evru.  Haldist verðið þetta hátt út árið svara áhrifin til þokkalegrar loðnuvertíðar og hefur gríðarleg áhrif á rekstur Landsvikjunnar og þjóðarbúsins alls. Því er spáð að álframleiðsla muni aukast um 7% á árinu en eftirspurnin um 8%.

Burt séð frá umhverfisþættinum, sem er umdeildur, þverk_nordural_topá hljóta þessir framkvæmdir, ef af verður, að verða lyftistöng fyrir Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur. 

 

Norðurál


mbl.is Engin óvissa vegna orkuöflunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli maður hafi efni á að komast í bústaðinn?

OSKJUHLID-31-05-2006%20COPY Þetta er afleiðingin af því að eyða um efni fram með því að soga erlent fjármagn til landsins með háum stýrivöxtum.  Hvernig væri nú að hæga á þenslu og ofvexti utanríkisráðuneytisins meðan verðið er að borga niður skuldirnar?16-Security_Council
mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband