Til hamingju Vilhjálmur

Mig langar að óska Vilhjálmi Bjarnasyni innilega til hamingju með sigurinn í héraðsdómi. 1003561Þessi sigur er ekki bara persónulegur sigur fyrir Vilhjálm heldur skerpir hann á leikreglum í hlutafélögum þannig að reistar eru skorður við því hvernig stjórnarmenn ráðstafa eignum til að þeir geti ekki mismunað hluthöfum. Eftir þennan dóm ætti að vera fýsilegri kostur fyrir minni fjárfesta að leggja fé i atvinnustarfsemi.

 

Vilhjálmur Bjarnason


mbl.is Gætu þurft að greiða út 35 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Var ekki jafnræðisreglan þarna til grundvallar í þessum dómi?  Auðvitað eiga allir hinir hluthafarnir rétt á sama tilboði og Bjarni Ármannsson fékk.  Annað væri mismunun. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.1.2009 kl. 03:04

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna  sannast eina ferðina enn hversu góður talsmaður Vilhjálmur Bjarnason er fyrir minni hluthafa og sýnir hversu mikill yfirburðamaður hann er á sínu sviði.

Jóhann Elíasson, 24.1.2009 kl. 11:45

3 Smámynd: Hlédís

Þetta er fagmannlega unnið hjá Vilhjálmi og getur hjálpað smærri hluthöfum.  Hann hefur verið búinn að nurla vel saman (væntanlega með hagsýni og sparnaði) fyrst átti þarna hlutabréf að verðgildi á þriðja hundraðs milljóna króna.

Hlédís, 24.1.2009 kl. 12:23

4 identicon

Þakka Vihjálmi fyrir að fara fram af festu og með yfirburðum.  Lýðræði þarf fólk eins og hann.

EE (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband