Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Framkvæmdir hófust í Helguvík í morgun!!
Föstudagur, 14. mars 2008
Þau stórtíðindi gerðust í morgun að framkvæmdir hófust í Helguvík, strax eftir að forstjóri Norðuráls fékk afhent byggingarleyfi. (Sjá frétt) Þessar framkvæmdir virðast vera gerðar í fullri andstöðu við hluta ríkisstjórnarinnar ef marka má orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra. Núverandi áætlun gerir ráð fyrir að fyrsta áfanga verði lokið árið 2010 og verði þá framleidd150.000. tonn af ál. Næsta víst er að þetta mun stöðva lækkunarferli krónunnar.
Í Helguvík er mjög góð hafnaraðstaða
Myndin er af álveri Norðuráls við Grundartanga.
Framkvæmdir hafnar í Helguvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Ólafur Ragnar "ofursendiherra"
Miðvikudagur, 12. mars 2008
Fáir ef nokkur Íslendingur hefur jafn víðtæk alþjóðleg sambönd og forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson. Ólafur kann að hafa verið umdeildur vegna skoðana en sannarlega ekki vegna hæfni.
Forsetar Íslands og Indlands á Þingvöllum
Dr. Ólafur hafði áður gegnt stöðu prófessors í stjórnmálafræði, verið formaður stjórnmálaflokks, þingmaður og ráðherra. Vegna starfa sinna í alþjóðasamtökum þingmanna hefur hann gríðarleg tengsl um allan heim. Þetta hefur greinilega komið fram í samskiptum við upprennandi stórveldi Asíu.
En Ólafur hefur líka ágæt tengsl í Mexikó en þar býr gamall vinur hans Róbert Guðfinnsson fyrrum stjórnarformaður Þormóðs ramma.
Róbert Guðfinnsson á skíðum
Samvinna Mexíkó og Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Óvinsæll seðlabankastjóri
Þriðjudagur, 11. mars 2008
Óvinsæll seðlabankastjóri |
Öryggisráðskönnuninni lokið - Ný könnun
Sunnudagur, 9. mars 2008
Spurt var hvort fólk vildi nýta hagnaðinn af loðnuveiðunum til að greiða fyrir setu í Öryggisráðinu
Könnunin stóð í 4 daga alls greiddu 253 atkvæði. Niðurstaðan var afgerandi:
10% svöruðu játandi
84% svöruðu neitandi
og 6% voru hlutlaus
Nú birti ég nýja skoðanakönnun: Vilt þú að auðlindir þjóðarinnar verði áfram í almannaeign?
Gleðikona verður afturbatapíka! Enn gerast undur og stórmerki.
Sunnudagur, 2. mars 2008
Þau gleðilegu tíðindi hafa nú borist að þingflokkur framsóknarmanna, undir forystu Guðna Ágústsonar hefur lagt fram stjórnskipunarfrumvarp um breytingu á stjórnarskrá sjá hér .
Þetta þykir tíðindum sæta þar sem fyrrverandi formaður sama flokk, varði drjúgum hluta starfsævi sinnar og kröftum flokksins við að reyna að koma helstu auðlind Íslendinga, fiskveiðiauðlindinni í hendur einkaaðila. Svo sannfærður var hann um ágæti þessa að hann lét það ekki trufla sig þó honum væri bent á að það orkaði tvímælis að fjölskylda hans og hann sjálfur hagnaðist á stjórnarathöfnum hans sjálfs. En nú boðar Guðni betri tíð.
Umdeilt var þegar Jeltsín kom olíulindum í hendur vina og velþóknanlegra.
Sprenghlægileg atvik úr fótboltakappleikjum
Sunnudagur, 2. mars 2008
Gott að fá þessa milljarða í vasan en þeir stoppa stutt við
Föstudagur, 29. febrúar 2008
Það eru góðar fréttir sem berast af loðnumiðunum, loðnan er í þéttum torfum feit og falleg. Margir líta á loðnuna sem fundið fé fyrir þjóðarbúið, því sjófuglar hafa ekki enn glatað hæfileikum til að finna hana þrátt fyrir nýjustu tækni og vísindi. Almenningur vonar að hluti af þessu peningum verði notaðir til að mæta yfirvofandi lánsfjárkreppu og vaxandi viðskiptahalla . Ríkisstjórnin er ekki á sama máli . Þeim finnst að vísu gott að fá þessa milljarða í vasann en þeir eiga að stoppa stutt við.
Við þessar fréttir hefur utanríkisráðuneytinu hlaupið kapp í kinn og Kristín Árnadóttir sem stýrir þessu mikilvæga verkefni segir að nú sé rífandi gangur. Núna er búið að eyða 1000 milljónum og verið er að vinna markvisst um allan heim, ekki síst í New York þar sem Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde voru nýlega,
Ekki er pláss fyrir alla afdankaða pólitíkusa í sendiráðum eða seðlabanka. Því horfa margir hýru auga til öryggisráðsins.
Allir úr sömu klíkunni!
Föstudagur, 29. febrúar 2008
Af öllum hæstaréttardómurum er að eins einn sem ekki er skipaður af Sjálfstæðisflokknum. Forysta flokksins gerir sífellt minna með hæfnisvottorð og skeytir hvorki um skömm eða heiður. Kannski finnst þeim að þeir eigi bara þetta batterí og aðrir eigi ekki að hafa skoðun á því? Ég veit að almennum sjálfstæðismönnum finnist það sniðugt að allir dómarar landsins séu úr sömu klíkunni. Verða ekki einhverjir að koma vitinu fyrir flokkseigendafélagið?
Ánægður að loknu góðu dagsverki.
Áhrif meðmælabréfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Prestur hvetur söfnuðinn til aukins kynlífs!
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008
Séra Paul Wirth safnaðarleiðtogi Relevant kirkjunnar á Florida hefur gefið út almenna áskorun til giftra sóknarbarna sinna um að auka kynlíf sitt verulega. Hann segir að í starfi sínu hafi hann orðið þess áskynja að mikið kynlíf bætti ekki bara samskipti hjóna heldur líðan alls heimilisfólks. Síðast en ekki síst væri gott kynlíf Guðs gjöf í hverju hjónabandi og áhrifaríkasta leiðin til að draga úr hjónaskilnuðum. Aðspurður hve of hjón ættu að gera það taldi hann að einu sinni á sólarhring væri lámark fyrsta mánuðinn.