Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Nú er í tísku að krefjast launalækkunar
Sunnudagur, 21. desember 2008
Nú er greinilega að komast í tísku að krefjast þess að fá lægri laun. fyrstur var einn bankastjórana, þá komu þingmenn, ráðherrar og nú forsetinn. Vonandi, fyrir okkur skattgreiðendur verður þess skammt að bíða að æðstu embættismenn muni keppast við að hafa lægstu launin á sínum vinnustað? Á almennum markaði hafa fjöldi manna ýmist beðið um eða samþykkt launalækkun til að halda vinnunni. Ég ég myndi samt ekki endurráða sömu ríkisstjórn þó hún byðist til að halda áfram í sjálfboðavinnu.
![]() |
Ólafur Ragnar fer fram á launalækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Enginn niðurskurður í Afganistan
Sunnudagur, 21. desember 2008
Það er enginn niðurskurður hjá íslenska ríkinu í Afganistan. Fyrr á árinu fór Ingibjörg til Afganistan, til að kynna sér landlægar og aldagamlar ættflokkadeilur þarlendra. Þá ákvað hún að auka þátttöku Íslands hernaðinum og sagði meðal annars: Þetta er gríðarlega öflugt, hæft og vel menntað fólk sem ég hitti hér í kvöld. Við getum verið mjög stolt af Íslendingum sem eru að starfa hérna, því þetta er kraftmikið og kjarkmikið fólk.
Þessir afgönsku lögreglumenn höfðu að sögn aldrei heyrt um öryggisráðið en vildu samt styðja Ísland í það.
![]() |
Fleiri bandarískir hermenn sendir til Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkisstjórnin byrjuð að narta í útsæðið
Laugardagur, 20. desember 2008


![]() |
Ekki hægt að taka inn nýnema |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það er eitthvað geðugt við Jóhannes í Bónus.
Laugardagur, 20. desember 2008
Það er eitthvað geðugt við Jóhannes í Bónus, hann er alþýðlegur maður sem hefur alltaf nennt að vinna. Velgengni sína í verslun á hann meðal annars að þakka góðu starfsfólki, sem hann umgengst sem fremstur meðal jafningja. Fyrir fáum árum var verið að selja ávexti um allan bæ á svipuðu verði og plastpokinn sem þeir fylltu. Þá gengu starfsmenn samkeppniáseftirlitsins brosandi út úr búðum með jafn fullar körfur og hinir. Núna er Bónus sektaður fyrir að selja ódýra mjólk. Reglur þurfa að vera skýrar og beiting þeirra má ekki vera handahófskennd. Getur verið að þetta harða viðbragð yfirvalda núna gegn Bónus sé tekið undir áhrifum bankakreppunnar?
![]() |
Dapurleg jólagjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fá kvótahafar niðurfelldar skuldir?
Föstudagur, 19. desember 2008

![]() |
Staðið verði við kröfur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Litháinn fær engin útflutningsverðlaun
Fimmtudagur, 18. desember 2008


![]() |
Reyndi að flytja þýfi úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Góði fjárhirðirinn Finnur, finnur fé
Fimmtudagur, 18. desember 2008
Finnur Ingólfsson fyrrum ráðherra Framsóknarflokksins og forveri Davíðs í Seðlabankanum hefur verið ákaflega aðsópsmikill fjárhirðir á undanförnum árum. Finni er mikill fjáraflamaður sem sent verður talinn löstur og í Biblíunni eru menn með þá eiginleka a' geta ávaxtað sitt pund kallaðir "góðir hirðar". Einn núverandi stjórnarþingmanna taldi það líka til mannkost, ef ég man rétt, að hirða fé án hirðis. Ef til vill er "góði fjárhirðirinn" í sérstöku uppáhaldi hjá þessum þingmanni? Til að fyrirbyggja misskilning er fjárhirðir ekki maður sé hirðir annarra manna fé, þó hann hirði kannski um það. Orðabók Menningarsjóðs skilgreinir orðið svona: smali, hjarðmaður 2. gjaldkeri, féhirðir. Við óskum Finni innilega til hamingju
Finnur á góðum degi með læriföður sínum.
![]() |
Milljarðahagnaður á viðskiptum með Icelandair |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Útrásarvíkingur með öklaband
Fimmtudagur, 18. desember 2008
Bernard Madoff, bandarískur útrásarvíkingur, einn af virtustu fjármálamönnum New York gengur nú með ökklaband eftir að hafa orðið uppvís að því að svíkja út 6500 milljarða króna. Nokkrir kunnir Íslendingar eru meðal fórnarlamba hans. Þetta er áttföld sú upphæð sem við skuldum í Jöklabréfum en hann er samt ekki nema hálfdrættingur miðað við íslensku bankana. Vel af sér vikið fyrir mann á áttræðisaldri!
Bernard Madoff er góðlátlegur útrásarvíkingur
![]() |
Madoff í stofufangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auðveldara að taka upp bandarískan $ en Evru
Þriðjudagur, 16. desember 2008
Lilja Mósesdóttir tók nýlega saman þær skuldir sem íslenska ríkið lagði á þegna sína að borga að kröfu Evrópusambandsins og reiknaði út að þær næmu um 11 milljónum á hvert mannsbarn og rúmlega helmingi hærri upphæð á hvern vinnandi mann á Íslandi. Dálítið rausnarlegt hjá ríkisstjórninni því þetta er rúmlega meðal íbúðaverð á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Að vísu eru lánin afborgunarlaus í fyrstu þrjú árin svo ríkisstjórnin getur andað léttar í bili. Hvað um það þá er talsvert mikið fyrir almenning að greiða í ofanálag þessa háum stýrivexti sem hér eru. Ef við horfum til að skipta um mynt er mun auðveldara að taka upp bandaríkjadal. þar sem stýrivextir eru einungis 0,5% en evru því annars eigum við á hættu að vera þvinguð til að ganga í evrópska tollamúrabandalagið, því þá myndu tollar hækka á fiskafurðir frá Íslandi til Asíu.
Lilja Mósesdóttir lagði á sínum tíma til að við tækjum Rússalán og slepptum IMF láninu, þessu var ISG ósammála, og því munu ófædd börn og komandi kynslóðir þurfa að athafna sig í skuldahlekkjum eða flytja af landi brott.
![]() |
Vextir 0-0,25% í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Að selja allar jólagjafirnar í janúar
Þriðjudagur, 16. desember 2008

![]() |
Gjöfin til Hillary fór á 115 þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |