Útrásarvíkingur með öklaband

Bernard Madoff, bandarískur útrásarvíkingur, einn af virtustu fjármálamönnum New York bernard-madoff_1205852cgengur nú með ökklaband eftir að hafa orðið uppvís að því að svíkja út 6500 milljarða króna. Nokkrir kunnir Íslendingar eru meðal fórnarlamba hans. Þetta er áttföld sú upphæð sem við skuldum í Jöklabréfum en hann er samt ekki nema hálfdrættingur miðað við íslensku bankana. Vel  af sér vikið fyrir mann á áttræðisaldri!

 

 

Bernard Madoff er góðlátlegur útrásarvíkingur

 


mbl.is Madoff í stofufangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hvaða Íslendingar eru fórnarlömb hans?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.12.2008 kl. 01:32

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Viljum við borga skuldir þeirra til að komast í ESB? Eða á að fara að framkvæma hér íslensk lög að hörkuÐ Nema það sé of seint?

Júlíus Björnsson, 18.12.2008 kl. 03:06

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér skilst nú að ef djúpt yrði kafað þá yrðu Íslensku fórnarlömbin nokkuð mörg því nokkrir lífeyrissjóðir settu pening í "ávöxtun" hjá honum og svo má ekki gleyma Björgúlfi Thor og einhverjir voru fleiri sem ég er búinn að gleyma.

Jóhann Elíasson, 18.12.2008 kl. 08:24

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl öllsömul.

Erlend blöð hafa ítrekað sagt að Íslendingar séu með al fórnarlamba hans.Ég tel ekki rétt af mér að vera að nafngreina einstaklinga umfram það sem komið hefur fram í fréttum hér heima, enda hef ég ekki skriflegar heimildir fyrir hverjir þetta eru. Oftast eru þó nefndir fyrrum eigendur bankanna einkum Landsbankans og stór íslenskur lífeyrissjóður.

Sigurður Þórðarson, 18.12.2008 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband