Góði fjárhirðirinn Finnur, finnur fé

Finnur Ingólfsson fyrrum ráðherra Framsóknarflokksins og forveri Davíðs í Seðlabankanum hefur verið ákaflega aðsópsmikill fjárhirðir á undanförnum árum. Finni er mikill fjáraflamaður sem sent verður talinn löstur og í Biblíunni eru menn með þá eiginleka a' geta ávaxtað sitt pund kallaðir "góðir hirðar". Einn  núverandi stjórnarþingmanna  taldi það líka til mannkost, ef ég man rétt, að hirða fé án hirðis. Ef til vill er "góði fjárhirðirinn" í sérstöku uppáhaldi hjá framsokn2þessum þingmanni?  Til að fyrirbyggja misskilning er fjárhirðir ekki maður sé hirðir annarra manna fé, þó hann hirði kannski um það. Orðabók Menningarsjóðs skilgreinir orðið svona: smali, hjarðmaður 2. gjaldkeri, féhirðir. Við óskum Finni innilega til hamingju

Finnur á góðum degi með læriföður sínum.


mbl.is Milljarðahagnaður á viðskiptum með Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þeir eru tveir góðir á myndinni og ég er ekki frá því að maður fyllist örlítilli öryggistilfinningu að vita af Halldóri við þá iðju að vinna að björgunarstörfum fyrir íslenskt efnahagslíf fyrir hönd Norðurlandanna.

Ekki kæmi það mér á óvart ef að Halldór gæti ekki gaukað einhverju að Finni í leiðinni.

Sigurjón Þórðarson, 18.12.2008 kl. 09:56

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Eru peningarnir okkar þarna? Okkar sem tryggðum hjá Samvinnutryggingum.

Allt fé horfið og hvert?

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.12.2008 kl. 11:15

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þessi mynd er alveg kostuleg: Heldur Halldór á undirskálinni með kaffibollanum eða svífur hvoru tveggja svona rétt hjá meðan Halldór og Finnur brosa. Hvað skyldi hafa verið svona einstaklega skemmtilegt? Að gefa þjóðinni langt nef?

Nú nýverið auglýsti Framsóknarflokkurinn framsóknarkaffi fyrir „heldri“ framsóknarmenn. Merkilegt nokk! Kannski það eru fjárhagsmennirnir, „fjárhirðirnir“ sem nýta hvern dag og hverja nótt til að auðgast meir og meir.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 18.12.2008 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband