Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Marklaus Evrópunefnd

Þorgerður Katrín varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt að Íslendingar hafi ekkert val, þeir verði að ganga í Evrópusambandið.  Samfylkingin hefur sett Sjálfstæðisflokknum skilyrði um að þeir verði að fallast á aðild að ESB. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að láta ríkisstjórnina halda eins lengi og þeir geta helst út kjörtímabilið.  Niðurstaðan liggur fyrir: Einn kostur ekkert val.  Til hvers er þá verið að skipa Evrópunefnd, fyrst þetta er málamyndatilbúningur?  Svarið liggur í augum uppi: Þetta er lýtaaðgerð af svipuðum toga og almannatengslaráðgjöfin sem kostar hundruð milljóna. Hvað munar um einn kepp í sláturtíðinni? bilde?Site=XZ&Date=20070131&Category=FRETTIR01&ArtNo=70131073&Ref=AR&NoBorderEinkathotur-rikisstj-geir_1152654354


mbl.is 350 milljónir í ráðgjöf og almannatengsl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hana langar greinilega á fleiri handboltaleiki

 Þorgerður Katrín er augljóslega til í að gera allt til að halda völdum, fyrst hún er tilbúin til að fórna sjávarauðlindinni, okkar eina möguleika til að komast  út úr skuldafeninu, til þess eins að halda í stjórnarsamstarfið við Samfylkinguna. Sjávarútvegurinn er eina máttarstoðin sem efnahagur okkar stendur á eftir að álverð lækkaði niður í 1500$ fyrir tonnið, þó það eigi eftir að koma upp.

Sveiattann!

Það er nú heldur aumt hjá ábyrgðarlausum stjórnmálamönnum að kenna krónunni óábyrga efnahagsstjórn.  c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_traust_efnahagsstjorn_geirs


mbl.is Ekkert annað hægt en sækja um aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver verður þróun álverðs? Sennileg hækkun í febrúar

Ein og sjá má á meðfylgjandi töflum hér hefur álverð hríðlækkað undanfarna 6 mánuði og með ógnarhraða síðustu tvo mánuð, og er nú komið undir 1500$ tonnið, Og þó verð eigi að vera viðskiptaleyndarmál er alveg ljóst að Landsvirkjun er byrjuð að borga með Kárahnjúkavirkjun miðað við óbreytt álverð. Ný álaver hafa verið byggð í Kasakstan, Indlandi og Kína en undanfarna mánuði hafa mörg álver dregið úr framleiðslu og önnur, einkum Kanada og Bandaríkjunum, eru að loka í ársbyrjun 2009. Áhrif c_documents_and_settings_keinarsd_my_documents_my_pictures_kristin_myndir_alveriþessara lokana ættu að koma fram í verðlagið í febrúar á næsta ári


mbl.is Hætt við stækkun í Straumsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Garrí Kasparov bjarga Íslandi?

Ég hef mikla trú á Garrí Kasparov og verkefni hans til að koma á umbótum í Rússlandi. En það verkefni er svo viðamikið að ég held við ættum að bjóða honum að koma til Islands og taka létta æfingu fyrst með því að koma lag á hlutina hér á Íslandi. Garrí gæti örugglega lært eitt og annað af því sem myndi nýtast síðar við að koma á lýðræðisumbótum í Rússlandi. Við þurfum að eignast kröftugt stjórnmálaafl, sem vinnur með fólkinu og  í þágu fólksins en ekki sérhagsmuna spillingarafla sem sitja á svikráðum við almenning. Við þörfum að nýta auðlindir okkar betur einkum fiskimiðin en til þess þurfum við að afnema kvótakerfið og alla þá sóum sem því fylgir. Við þurfum að efla virðingu fyrir  þjóðlegri arfleið okkar menningu í besta skilningi þess orðs. Við stöndum nú í brunarústunum og leitum með priki eftir einhverju nýtilegu, þó hálfbrunnið sé. Örsaka brunans má reka til tryllts dans í kring um Gullkálfinn sem ráðamenn þjóðarinnar ýmist klöppuðu eða slógu takt fyrir hamlausa dansara sem sumir fóru í trans en eru nú allir dasaðir.  Einstaka spilafíklar úr stjórnmálastétt spyrja hvort ekki sé til eitthvað meira sem hægt er að veðsetja? Enn aðrir vilja fara í ESB og selja fiskimiðin fyrir evru. Kannski hefur þetta tilgang eftir allt saman? kasparov
mbl.is Kasparov stofnar Samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Solla með hreðjatak á Geir Haarde

Sjálfstæðisflokkunin stendur mjög höllum fæti núna og utanríkisráherra tekur vængbrotinn samstarfsflokkinn engum vettlingatökum og lætur hné fylgja kviði:  "Hún sagði líklegt að boðað yrði til þingkosninga áður en kjörtímabilinu lyki ef niðurstaðan yrði sú að ekki verði sótt um aðild að Evrópusambandinu í upphafi næsta árs."  Geir Haarde  stendur sem sagt frammi fyrir afarkostum annað hvort verði sótt um aðild á næsta ári eða boðað til kosninga þar sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur  höllum fæti.                                                                            c_documents_and_settings_eythor_desktop_blog_is_geir_og_ingibjorg  ISG með

 

 

 

 

 

 

 

 

hreðjatak


mbl.is Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hærri skattar dýpka kreppuna

KristinAArnadottirÞað eru gömul og ný sannindi að lækkun skatta hleypir lífi í efnahagslífið og með sama skapi munu hærri skattar dýpka kreppuna sem við stefnum ofaní.  Ríkisstjórnin sker einnig grimmt niður vegaframkvæmdir, allt eru þetta ákvarðanir sem meðvitað leiða til mikils atvinnuleysis og dýpkunar kreppu. Það eina sem ríkisstjórnin hefur gert til að bæta atvinnuástandið er að ráða Kristínu Árnadóttur, vinkonu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem sendiherra.

 

Ráðning Kristínar, sem sendiherra, er eina opinbera ráðstöfunin til að bæta atvinnuástandið. 


mbl.is Tillögur um mikinn niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eirðarlaus lóðatík, ábyrg fyrir verkleysi ríkistjórnarinnar.

Bjarni Benediktsson viðurkennir að mikið hik sé á stjórnvöldum
aðspurður um hvers vegna ekki er unnið að því að stefna Bretum. 
Ríkisstjórnin hefur í raun ekkert gert annað en að fara inn í bankana
sem hún veit ekki hvað hún á að gera við og  slá lán síðan
kosningabaráttunni um öryggisráðið lauk. Þetta verður sennilega til að
Íslendingar tapa skaðabótaréttinum, þar sem þeir skila ekki inn gögnum.
Skýringin er að hluta til falin í því að Samfylkingin er eins og
lóðatík gagnvart ESB. Innan þeirrar girðingar eru nokkrir óstýrilátir hundar sem gjarnan vilja komast í fiskimiðin.

Ávarp til íslensku þjóðarinnar

Góðir Íslendingar:

Úrræðalaus kreppustjórn athugið! Hér bjóðast lausnir

Ríkisstjórnin stendur ráðþrota. Samfylkingin bendir á aðild að ESB sem laust á öllum vandamálum, Sjálfstæðisflokkurinn bendir ekki á neitt. Frjálshyggjan og fyrirhyggjuleysið sem allt átti að leysa gerði Ísland gjaldþrota og nú er löng þögn.  Færeyingar voru í mikilli kreppu en þeir leituðu til Jóns Kristjánssonar sem ráðlagði þeim að henda kvótakerfinu og í dag eru þeir aflögufærir.

Með afnámi kvótakerfis losnum við við brottkast fyrir tugmilljarða á ári. Höfum við efni á slíkri sóun núna?

Aflaheimildum er úthlutað til eins árs í senn og getur hún aldrei myndað eignarétt" ( úr fiskveiðistj. lögum)

 Það á að byrja á að bora  gat á kerfið með að gefa allar handfæraveiðar frjálsar.  (myndi laga viðskiptajöfnuðinn, minnka skuldir og hækka gengi krónunnar) auka línuívilnun utan kvóta (hvoru tveggja vistvænar veiðar)

Síðan er hægt að fikra sig út úr kerfinu smátt og smátt með því að koma á sóknarstýringu fyrst á smærri skipum. Þetta er allt hægt að gera bótalaust  án þess að breyta veðsetningum til að auðvelda umskipti sem  þurfa að fara fram. 

Af hverju er ekki gefinn út hvalveiðikvóti strax? Hvalkjöt er nú byrjað að seljast á háu verði í Japan og hvalir éta amk 20 sinnum meira en við veiðum.


mbl.is Tekjuskattur og útsvar hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær kemur að mannréttindum á Íslandi?

60 ár eru liðin frá því að mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var undirrituð meðal annars af Íslendingum sem skuldbundu sig að hlíta úrsurðum úrskurðarnefndarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og diplómatar hennar hafa ekki talið eftir sér að ferðast á fyrsta farrýni og jafnvel einkaþotum um víða veröld fyrir milljarða króna til að bæta ástandið í heiminum. Þetta hefur ekki alltaf skilað þeim árangri sem vonast var eftir s.s. í Írak, Palestínu og Afganistan þar sem sérstök áhersla var lögð á að greina ættflokkadeilur.  En við sjáum ekki eftir þessum peningum og tökum viljann fyrir verkið. Hitt er lakara að stjórnvöld skuli ekki gera neitt til að lagfæra mannréttindi sjómanna á Íslandi, sem ríkisstjórnin hefur þó fengið ákúrur fyrir frá Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna. kiddi___plakat_copy
mbl.is Draumsýnin enn fjarri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband