Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hermann Valson myndugri en Sóley
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010
![]() |
Hermann studdi Ólaf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það sem höfðingjarnir hafast að, hinr halda að sér leyfist það.
Mánudagur, 8. febrúar 2010
![]() |
Beitti 4 ára dóttur sín vatnspyntingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samningsaðstaðan batnar
Þriðjudagur, 19. janúar 2010
Lagaleg staða Íslands er góð en stjórnvöld hafa ekki komið því á framfæri erlendis. Eftir glæsilega innkomu forsetans og Evu Joly hefur orðið viðsnúningur. Það væri því rangt að semja núna.
Góð og afgerandi úrslit í þjóðaratkvæðagreiðslunni mun styrkja samningsstöðu Íslands.
![]() |
Engar viðræðuóskir frá Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Yfirgangur LÍÚ
Sunnudagur, 17. janúar 2010
Stór hluti af efnahagsvanda íslensku þjóðarinnar felst í því að sjávarútvegurinn hefur skuldsett sig gríðarlega og mörg fyrirtæki eru löngu komin í kaf þrátt fyrir himinhátt afurðarverð afleiðingin er að afraksturinn fer til erlendra banka og krónan helst lág. Afleiðing kerfisins er minni afrakstur fiskistofna og gríðarlegt brottkast. Hvert mannsbarn sér að þetta sóunarkerfi þarf að afnema en ríkisstjórnin er hikandi. Hún er samt að hugleiða að efna kosningaloforð sitt um 5% innköllun kvótans sem LÍÚ mega ekki heyra minnst á og gera hróp að stjórninni.
Í Færeyjum urðu bankar gjaldþrota fyrir um 10 árum þar var landflótti, lána- og skuldakreppa og hvað gerðu Færeyingar? Jú þeir afnámu kvótann, ekki á 20 árum heldur ekki tveimur nei þeir afnámu hann á einni nóttu og þar með allt brottkast. Afleiðingin er sú að færeysk útgerð stendur vel og Færeyingar eru vel aflögufærir og lána Íslendingum stórfé án skilyrða og vaxtalaust.
![]() |
Óvitaskapur í sjávarútvegsráðuneytinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Steingrímur býður eiturdrykkinn Æsseif við þorsta
Laugardagur, 16. janúar 2010
Á sínum tíma kynnti Steingrímur Svavarssamninginn sem stórglæsilegan. Í þeim samningi var gert ráð fyrir að "Íslendingar afsöluðu sér griðum ævarandi og óafturkallanlega". Ég verða að treysta því að enginn samningarmannanna sem Steingrímur bar ábyrgð á hafi skilið hvað í þessu ákvæði fólst.(Íslendingar gátu undir engum kringumstæðum borið fyrir sig að neyð ríkti í landinu. Allar eigur ríkisins mátti taka hvar sem þær voru í heiminum og burtséð frá því til hvaða nota þær væru.
Maður sem lýsir þessum samning sem glæsilegum er búinn að dæama sig frá því "ævarandi og óafturkallanlega" að mark verði tekið á honum af vitibornu fólki.
![]() |
Betra en að deyja úr þorsta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Skeggið ekki skylt hökunni
Laugardagur, 9. janúar 2010

![]() |
ESB og Icesave aðskilin mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vandamálið er kjarkleysi
Miðvikudagur, 6. janúar 2010
![]() |
Hefðu átt að halda sig við fiskinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stórglæsilegt ávarp forsetans
Föstudagur, 1. janúar 2010
Ólafur Ragnar Grímsson er óumdeilanlega góður ræðumaður en ég minnist ekki að hafa heyrt nokkurn forseta fyrr flytja jafn innihaldsríkt áramótaávarp og forsetinn gerði nú. Hann talaði um þrískiptingu valdsins sem hefur farið halloka og það hafi bitnað a´eftirlitskerfinu. Siðvæðingin mun ekki verða nema með þjóðarvilja sem er hornsteinn lýðræðisins og minnti á hlutverk forseta í því sambandi. Forsetinn blés þjóðinni kjark í brjóst og hvatti til samstöðu. Þetta eru skýr fyrirheit um að forsetinn muni brúa þá gjá sem myndast hefur milli þings og þjóðar. Við hofum ver að vinna. Áfram Ísland!
![]() |
Vilji þjóðarinnar hornsteinninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aðeins forsetinn getur sameinað þjóðina
Föstudagur, 1. janúar 2010
Fjöldi stórra og smærri mistaka misvitra forystumanna hafa komið þjóðinni í þann vanda sem nú er við að etja. Djúp gjá hefur myndast milli þings og þjóðar. Nú kemur málskotsrétturinn í góðar þarfir. Íslendingar munu ekki komast í gegnum þennan skafl nema þeir standi saman. Aðeins forsteinn hefur vald til að brúa bilið og sameina þjóðina á ný.
Gleðilegt og farsælt nýtt ár.
![]() |
Yfir 50 þúsund undirskriftir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samspilling hvaða fyrirgrigði er það?
Miðvikudagur, 30. desember 2009
Það er ekki Samfylking heldur samtrygging flokkana. Davíð Oddsson hefur starfað lengi í stjórnmálum og fáir þekkja fyrirbrigðið betur en hann, sem kom á eftirlaunalögum og nýtti sér græðgi stjórnarandstöðunnar t.d. Steingríms sem fór á fjöll.
Kvótakerfið er fyrst og fremst verk Halldórs Ásgrímssonar og Þorsteins Pálssonar en stjórnmalamenn í öðrum flokkum þiggja glaðir fé í sína kosningasjóði úr hendi handhafa sameignar þjóðarinnar. Árangurinn blasir við: Engu á að breyta.
Samfylkingin hafði minnimáttarkennd af því að hún taldi Sjálfstæðisflokkinn spilltan og hann fengi mikið fé frá útrásarvíkingum.
Það var ekki fyrr en Samfylkingin var farin að fá meira fé en Sjálfstæðisflokkurinn frá útrásarvíkingum auk þess einstakir frambjóðendur óðu í fjármunum í prófkjörsbaráttu, sem talsmenn hennar fengu sjálfstraust aftur. Þetta er hin raunverulega samspilling sem nú ætlar að samþykkja Ísklafa á börnin okkar.
![]() |
Fjárframlög til stjórnmálaflokkanna birt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |