Hermann Valson myndugri en Sóley

pic Vinstri græn hafa skynsama stefnu t.d. í umhverfismálum og þar er mikið af hæfu fólki því er með öllu óskiljanlegt að Sóley Tómasdóttir, sem er helst þekkt fyrir að vera öfgafullur femínisti, sem vill kynjakvóta á öllum sviðum þjóðlífsins, jafnvel íþróttafélögum, ákafur stuðningsmaður Æsseif og að forsetinn segi af sér eigi að leiða listann meðan jafn hæfir einstaklingar og Hermann Valson eru mun neðar.
mbl.is Hermann studdi Ólaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég styð þennan Hermann þótt ég þekki hann ekki persónulega. Það er greinilegt að hann skynjar mun á réttu og röngu og það er nóg fyrir mig. Þannig virkar réttlætið óháð kyni. M.b.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.2.2010 kl. 00:27

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Vinstri græn hafa skynsama stefnu" – Sigurður minn, ég hef nú ekki hingað til séð meiri öfugmæli í pistlum eftir þig. – Gangi þér allt í haginn.

Jón Valur Jensson, 17.2.2010 kl. 00:40

3 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Ég þekki Hermann og hann er fínn náungi. Ég var með honum í leikskólaráði og mér fannst hann alltaf vera að vinna að málefnum flokksins af heilindum.

Helga Þórðardóttir, 17.2.2010 kl. 00:42

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Er maðurinn bara ekki svo heiðarlegur að mati Hönnu Birnu og líklega Sóleyjar að þess vegna þurfi hann að skila vottorði frá trúnaðargeðlækni D listans um að hann sé heill á geði eins og farið var fram á við Ólaf Magnússon?

Það er ekki trúverðugt í borgarstjórn að hafa prívat sannfæringu.

Árni Gunnarsson, 17.2.2010 kl. 00:50

5 Smámynd: TómasHa

Það hefur nú hingað til verið Samfylkingin sem hefur fram á vottorð. Skrýtið að Árni skuli eitthvað vera að bendla D-listann við það skítamál sem Dagur B. og kó kokkuðu upp.

TómasHa, 17.2.2010 kl. 01:09

6 identicon

TómasHa, kannski að þú sért blindur bloggari en ég held að hver sá sem vill sjá og skilja sjái að það er engin vanþörf á vottorði frá Ólafi!!!

Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 17.2.2010 kl. 02:19

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tómas Ha. Mér hefur kannski förlast þarna og ef ég hef haft Hönnu Birnu fyrir rangri sök þykir mér það slæmt. Mig minnti að þetta hefði verið hún.

En hvað sem því líður þá er svona málflutningur engum til sóma. Og líklega ættir þú að athuga hvort ekki væri ástæða fyrir þig að biðja Ólaf F. afsökunar.

Árni Gunnarsson, 17.2.2010 kl. 11:24

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sælar Anna og Helga, ég er sammála ykkur um að Hermann er geðurgur maður og það fer af honum gott orða hvar sem hann kemur.

Sigurður Þórðarson, 17.2.2010 kl. 11:47

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jón Valur, það er margt gott fólk í VG raunar eins og í öðrum flokkum en það er því miður ekki alltaf sem þeirra stefna hefur orðið ofan á eins og í Icesave málinu sem við erum sammála um.

Sigurður Þórðarson, 17.2.2010 kl. 11:50

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Tómas, Ragnar og Árni,

samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað mér þá var það Dagur sem stóð fyrir þessari læknisvottorðs uppákomu, þó hann hafi ekki verið maður til að kannast við það og hafi reynt að skýla sér á bak við embættismenn. 

Þetta varð honum til minnkunar.

Sigurður Þórðarson, 17.2.2010 kl. 11:55

12 Smámynd: Hannes

Það eina góða við að Sóley leiði listann er að mjög margir munu hætta við að kjósa VG.

Hannes, 17.2.2010 kl. 21:35

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Er hvorki fyrir öfgatrú né öfgafeminisma, og tel líka að fólk eigi að fylgja eigin sannfæringu en ekki annarra - á meðan það telst þokkalega heilbrigt á geði

Jóhanna Magnúsdóttir, 18.2.2010 kl. 08:19

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

p.s. ég tel líka að  Vinstri græn hafi skynsama stefnu í umhverfismálum.

Verðum að vera á varðbergi hvað náttúruna varðar. 

Jóhanna Magnúsdóttir, 18.2.2010 kl. 08:22

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir athugasemdirnar.

Jafnrétti og virðing fyrir umhverfinu eru ágæt lífsgildi.  

Sigurður Þórðarson, 18.2.2010 kl. 10:49

16 Smámynd: Árni Gunnarsson

Jóhanna. Ef það er afsökun fyrir  fyrir spilltri stjórnsýslu og óheiðarleika að vera heilbrigður á geð, má þeg þá heldur biðja um að þeim sem eru það ekki verði fjölgað í stjórnsýslunni.

Ég get líka tekið undir með þér í því að ég tel að Vinstri grænir hafi skynsama stefnu í umhverfismálum. Hinu hef ég áhyggjur af að þeir fái ekki ráðrúm til að fylgja henni eftir vegna umhverfissóðanna sem reikna hagvöxt út í megavöttum.

"Hestaflið í almættinu er verðlaust hjá Orkustofnun." sagði forðum Halldór Laxness. Ég sé ekki að þar hafi orðið breyting á.

"Ólyginn sagði mér" að nú sé í undirbúningi að senda öllum nýfæddum Íslendingum vöggusett frá Rio Tinto Alcoa og einnar evru hlutabréf í fyrirtækinu í vöggugjöf.

Mikill er Allah!

Árni Gunnarsson, 18.2.2010 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband