Litháinn fær engin útflutningsverðlaun
Fimmtudagur, 18. desember 2008


![]() |
Reyndi að flytja þýfi úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Góði fjárhirðirinn Finnur, finnur fé
Fimmtudagur, 18. desember 2008
Finnur Ingólfsson fyrrum ráðherra Framsóknarflokksins og forveri Davíðs í Seðlabankanum hefur verið ákaflega aðsópsmikill fjárhirðir á undanförnum árum. Finni er mikill fjáraflamaður sem sent verður talinn löstur og í Biblíunni eru menn með þá eiginleka a' geta ávaxtað sitt pund kallaðir "góðir hirðar". Einn núverandi stjórnarþingmanna taldi það líka til mannkost, ef ég man rétt, að hirða fé án hirðis. Ef til vill er "góði fjárhirðirinn" í sérstöku uppáhaldi hjá þessum þingmanni? Til að fyrirbyggja misskilning er fjárhirðir ekki maður sé hirðir annarra manna fé, þó hann hirði kannski um það. Orðabók Menningarsjóðs skilgreinir orðið svona: smali, hjarðmaður 2. gjaldkeri, féhirðir. Við óskum Finni innilega til hamingju
Finnur á góðum degi með læriföður sínum.
![]() |
Milljarðahagnaður á viðskiptum með Icelandair |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Útrásarvíkingur með öklaband
Fimmtudagur, 18. desember 2008
Bernard Madoff, bandarískur útrásarvíkingur, einn af virtustu fjármálamönnum New York gengur nú með ökklaband eftir að hafa orðið uppvís að því að svíkja út 6500 milljarða króna. Nokkrir kunnir Íslendingar eru meðal fórnarlamba hans. Þetta er áttföld sú upphæð sem við skuldum í Jöklabréfum en hann er samt ekki nema hálfdrættingur miðað við íslensku bankana. Vel af sér vikið fyrir mann á áttræðisaldri!
Bernard Madoff er góðlátlegur útrásarvíkingur
![]() |
Madoff í stofufangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skatan í Sægreifanum
Miðvikudagur, 17. desember 2008
Ég átti erindi í Tollinn í gær og rann bókstaflega á lyktina eða réttara sagt ilminn af vel kæstri skötu hjá vini mínum honum Kjartani sægreifa, þar sem hann er að undirbúa fiskverslun hjá veitingastaðnum. Skatan er misjafnlega mikið kæst allt eftir smekk hvers og eins. Sjálfur mæli ég með vel kæstri tindabikkju með kartöflum rúgbrauði og vestfirskum hnoðmör með örlítilli flís af selspiki, sem ég vandist á að borða þegar ég var til sjós fyrir vestan.
Þetta úrvalsfæði fæ ég hvergi nema hjá Kjartani sægreifa, sem ólíkt öðrum sægreifum er kvótabani.
![]() |
„Ætti að vera orðin vel kæst“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Auðveldara að taka upp bandarískan $ en Evru
Þriðjudagur, 16. desember 2008
Lilja Mósesdóttir tók nýlega saman þær skuldir sem íslenska ríkið lagði á þegna sína að borga að kröfu Evrópusambandsins og reiknaði út að þær næmu um 11 milljónum á hvert mannsbarn og rúmlega helmingi hærri upphæð á hvern vinnandi mann á Íslandi. Dálítið rausnarlegt hjá ríkisstjórninni því þetta er rúmlega meðal íbúðaverð á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Að vísu eru lánin afborgunarlaus í fyrstu þrjú árin svo ríkisstjórnin getur andað léttar í bili. Hvað um það þá er talsvert mikið fyrir almenning að greiða í ofanálag þessa háum stýrivexti sem hér eru. Ef við horfum til að skipta um mynt er mun auðveldara að taka upp bandaríkjadal. þar sem stýrivextir eru einungis 0,5% en evru því annars eigum við á hættu að vera þvinguð til að ganga í evrópska tollamúrabandalagið, því þá myndu tollar hækka á fiskafurðir frá Íslandi til Asíu.
Lilja Mósesdóttir lagði á sínum tíma til að við tækjum Rússalán og slepptum IMF láninu, þessu var ISG ósammála, og því munu ófædd börn og komandi kynslóðir þurfa að athafna sig í skuldahlekkjum eða flytja af landi brott.
![]() |
Vextir 0-0,25% í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Að selja allar jólagjafirnar í janúar
Þriðjudagur, 16. desember 2008

![]() |
Gjöfin til Hillary fór á 115 þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Marklaus Evrópunefnd
Mánudagur, 15. desember 2008
Þorgerður Katrín varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt að Íslendingar hafi ekkert val, þeir verði að ganga í Evrópusambandið. Samfylkingin hefur sett Sjálfstæðisflokknum skilyrði um að þeir verði að fallast á aðild að ESB. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að láta ríkisstjórnina halda eins lengi og þeir geta helst út kjörtímabilið. Niðurstaðan liggur fyrir: Einn kostur ekkert val. Til hvers er þá verið að skipa Evrópunefnd, fyrst þetta er málamyndatilbúningur? Svarið liggur í augum uppi: Þetta er lýtaaðgerð af svipuðum toga og almannatengslaráðgjöfin sem kostar hundruð milljóna. Hvað munar um einn kepp í sláturtíðinni?
![]() |
350 milljónir í ráðgjöf og almannatengsl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hana langar greinilega á fleiri handboltaleiki
Mánudagur, 15. desember 2008
Þorgerður Katrín er augljóslega til í að gera allt til að halda völdum, fyrst hún er tilbúin til að fórna sjávarauðlindinni, okkar eina möguleika til að komast út úr skuldafeninu, til þess eins að halda í stjórnarsamstarfið við Samfylkinguna. Sjávarútvegurinn er eina máttarstoðin sem efnahagur okkar stendur á eftir að álverð lækkaði niður í 1500$ fyrir tonnið, þó það eigi eftir að koma upp.
Sveiattann!
Það er nú heldur aumt hjá ábyrgðarlausum stjórnmálamönnum að kenna krónunni óábyrga efnahagsstjórn.
![]() |
Ekkert annað hægt en sækja um aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hver verður þróun álverðs? Sennileg hækkun í febrúar
Mánudagur, 15. desember 2008
Ein og sjá má á meðfylgjandi töflum hér hefur álverð hríðlækkað undanfarna 6 mánuði og með ógnarhraða síðustu tvo mánuð, og er nú komið undir 1500$ tonnið, Og þó verð eigi að vera viðskiptaleyndarmál er alveg ljóst að Landsvirkjun er byrjuð að borga með Kárahnjúkavirkjun miðað við óbreytt álverð. Ný álaver hafa verið byggð í Kasakstan, Indlandi og Kína en undanfarna mánuði hafa mörg álver dregið úr framleiðslu og önnur, einkum Kanada og Bandaríkjunum, eru að loka í ársbyrjun 2009. Áhrif þessara lokana ættu að koma fram í verðlagið í febrúar á næsta ári
![]() |
Hætt við stækkun í Straumsvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mun Garrí Kasparov bjarga Íslandi?
Laugardagur, 13. desember 2008

![]() |
Kasparov stofnar Samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.12.2008 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)