Til varnar myrtum vini

Það var fyrir meira en 20 árum og mér hefur ekki enn tekist að fyrirgefa Gerði Kristný fyrir þetta furðulega viðtal sem hún tók við Þórhall Ölversson, morðingja sem var gripinn var með blóðugar hendur eftir morðið á æskuvini mínum Agnari Agnarssyni. Sem ritstjóri Mannlífs gaf hún morðingjanum færi á að réttlæta verknaðinn meðal annars með því að bera á fórnarlamb sitt upplognar sakir um refsiverða háttsemi. Með þessu háttarlagi reyndi þáverandi ritstjóri Mannlífs að ræna ærunni af hinum látna, þótt fátt ef nokkuð styddi frásögn morðingjans, sem ritstjórinn þóttist trúa, vitandi að hinn látni gat ekki borið af sé sakir sem ritstjórinn tíundaði í blaði sínu. Þetta var áfall og viðbótar refsing fyrir okkur sem syrgðu látinn vin. Sem nánasti aðstandandi hafði ég fengið að skoða heimili Agnars sem var morðvettvangurinn. Blóði drifin íbúðin bar það með sér að um ránmorð var að ræða, morðinginn hafði augljóslega leitað í bókahillum og gefið sér góðan tíma til að fletta bókum, blóðugum höndum. Fjöldi misdjúpra stungusára þöktu líkama fórnarlambsins og báru glöggt merki um hetjulega baráttu sem sennileg hefur tekið nokkrar klukkustundir. Þar sem ég var náinn vinur fórnarlambsins vill svo til að ég veit nákvæmlega um ástæðu ránmorðsins: Ástæðan var sú að Agnari hafði þá nýverið tæmst arfur og ég var einn örfárra sem vissi að hann geymdi allt féð í gjaldeyri á heimili sínu. Þessi vitneskja hafði illu heilli borist til morðingjans, Þórhalls Ölvissonar, fáum klukkustundum fyrir verknaðinn. Aldrei hefur verið upplýst hvað varð um alla peningana, sem voru í reiðufé eins og áður segir. Um þetta hef ég gefið skýrslur bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Þessi skelfilega saga rifjaðist upp þegar ég las fréttir af því í fjölmiðlum að rithöfundurinn Gerður Kristný var að hæla sér af þessu framtaki sínu í hlaðvarpsþætti Ríkisútvarpsins. Þar yfirsést Gerði sorgin yfir voveiflegu morði en rithöfundurinn kemst á flug yfir spennandi ferð sinni á Litla hraun, þar sem rithöfundurinn þykist hafa náð fram óvæntri játningu. Mannorðsmorð er refsilaust sé sá er fyrir því verður þegar myrtur, löglegt en fullkomlega siðlaust.


mbl.is Þessu smyglaði Gerður Kristný inn á Litla Hraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo bregðast krosstré sem önnur tré

Gamli góði Mogginn slær falska nótu. Ekki meira um það.


mbl.is Ólafur í hópi með einræðisherrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin ástæða til að setja nígeríska hælisleitandann í steininn

 Vonandi hangir þetta par saman svo það smiti ekki aðra.


mbl.is Viljandi smit þekkist víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lati Geir við lækjarbakka, lá þar til hann dó, langaði vatn að drekka en nennti ekki þó.

Árum saman hafa sjómenn og smábátaútgerðamenn í Grundarfirði beðið sjávarútvegsráðuneytið um leyfi til að veiða síld í reknet í Kolgrafarfirði og fékkst það loks í fáeina daga innan brúar, því síldin utan brúar var ætluð öðrum.  Sjávarútvegsráðherra átti úr vöndu að ráða því það var slæmt til afspurnar að "besta fiskveiðistjórnarkerfi í heimi" léti tugmilljarða útflutningsverðmæti reka á fjörur til þess eins að skapa ýldu- og óþef sem legðist eins og mara yfir afskipt sjávarþorp, salt í sár atvinnuleysis.

Því hlýtur það að vera fagnaðarefni fyrir Hafrannsóknarstofnun og sjávarútvegsráðuneytið að tugþúsundir máfa 12000 súlur og hundruð háhyrninga skuli  vinna á síldinni þannig að ekki þurfir að láta undan kröfum Grundfirðinga sem horfa út um eldhúsgluggann á aðfarirnar.  Hvað segja grundfirskir sveitarstjórnarmenn um þetta?


mbl.is Taldi tólf þúsund súlur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komið og smakkið glillaðan makríl

Á sunnudaginn milli 14:00 og 17:00 verður á Ingólfstorgi boðið upp á grillaðan makríl, sem nýveiddur er í íslensku fiskveiðilögsögunni í óþökk Evrópusambandsins. Mætum á sunnudaginn með sól í sinni í þessa ókeypis matarveislu og njótum matarins undir ljúfum tónum.
mbl.is Heimssýn heldur makrílhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers að vekja úrillan hund?

Finnski sendiherra ESB á Íslandi sagði í viðtali við Fb að hann
óttaðist að samband Íslands við ESB myndi súrna ef til þess kæmi að
þjóðin hafnaði samningnum.   Með aðildarumsókn var Ísland að gefa Evrópusambandinu ádrátt um að það geti fengið fiskveiðilögsöguna. Viljum við auka þessar falsvonir þeirra? Því er ljóst að þessi misráðna umsókn mun í
öllu falli skaða Ísland og því meir sem það er dregið að draga umsóknina til baka.
mbl.is ESB þjarmar að Færeyingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarkerfi misgott fyrir suma?

 Þó réttarkerfið sé gallað eins og þarna sést hef ég meiri trú á því en stjórnsýslunni. Sjálfur hef ég orðið vitni að því að Neytendastofa hafi meðvitað tekið við rangri skýrslu og látið það mál liggja árum saman og síðan fyrnast. Það ætti að skera niður fjárveitingar til opinberra eftirlitsstofnanna sem hilma yfir lögbrot og hindra framgang réttvísinnar.


mbl.is Getur hindrað framgang réttvísinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver talar þegar upplýsingafullrtrúi talar?

Ég hef þekkt Ragnar Arnalds til fjölda ára og veit þess vegna að hann er heillyndur og trúverðugur heimildamaður. Einhver Katrín Bessadóttir er dubbuð upp með titilinn "upplýsingafulltrúa" kannski til að vefengja orð Ragnars, sem er valinkunnur sómamaður og ef til vill dyggari stuðningsmaður hugsjóna VG en þeir sem láta upplýsingafulltrúann rengja hann. 
mbl.is Hafna ummælum Ragnars um ESB-kosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þorskurinn alltf til vandræða"

Svokölluð fiskihagfræði sem kennd er í Háskóla Íslands gengur út á að hægt sé að ganga að öllum fiskitegundum vísum í hillukerfi vöruskemmu. Þess vegna þurfa fiskiskip að forðast fiskitegundir sem ekki eru til á skrá eða henda þeim. 

Ráðið við þessu er ekki að auka sístækkandi eftirlit heldur afnema hvatann til að henda fiski.


mbl.is „Þorskurinn til vandræða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er þetta rétt

En þá munu einhverjir sauðtryggir spyrja:  En hvað með hina?  Þarf Framsókn ekki að gera upp fortíð sína Samfylkingin osf?  Þá er líka til eitthvað sem heitir gott fordæmi.
mbl.is Skoraði á fólk að kjósa Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband