Allir úr sömu klíkunni!

 Af öllum hæstaréttardómurum er að eins einn sem ekki er skipaður af Sjálfstæðisflokknum. Forysta flokksins gerir sífellt minna með hæfnisvottorð og skeytir hvorki um skömm eða heiður.  Kannski finnst þeim að þeir eigi bara þetta batterí og aðrir eigi ekki að hafa skoðun á því?  Ég veit að almennum sjálfstæðismönnum finnist það sniðugt med_ArniMMathiesen-_I4Y1715að allir dómarar landsins séu úr sömu klíkunni. Verða ekki einhverjir að koma vitinu fyrir flokkseigendafélagið? 

 

 

Ánægður að loknu góðu dagsverki.  

 

 


mbl.is Áhrif meðmælabréfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verulega andstyggilegt, og því fyrr sem okkur tekst að losa okkur undan slíku oki því betra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.2.2008 kl. 12:26

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn. En nokkuð annað að gera en að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og sækja um almennilegt embætti? Svarið verður örugglega já þó við höfum ekkert vit á starfinu. Bara ef við fylgjum Íhaldinu.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.2.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sælar Ásthildur og Rósa,

 Mér segir svo hugur að þessi embætti séu ekki frátekin fyrir rétta og slétta sjálfstæðismenn, ætli skilyrðin séu ekki frekar að þeir séu innvígðir og innimúraðir. 

Sigurður Þórðarson, 29.2.2008 kl. 12:40

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn. Þá látum við það vera að sækja um inngöngu í Íhaldsflokkinn.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.2.2008 kl. 12:46

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ekki er ég sammála ykkur.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.2.2008 kl. 13:03

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Heimir L. Fjeldsted.  Útskýrðu þetta betur.

Frjálslyndarfriðarkveðjur til þín Siggi.  

Kær kveðja/Rósa með Mastersgráðu í pælingum.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.2.2008 kl. 13:11

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Heimir, og velkominn í heimsókn.

Útskýrðu málið, gaman að heyra önnur sjónarmið. 

Sigurður Þórðarson, 29.2.2008 kl. 13:13

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér fyrir þennan ágæta pistil, Sigurður, þú mælir orð að sönnu. Og til hamingju með að vera búinn að virkja vefsíðuna þína og það af þessum krafti, sem líta má í mörgum bloggum þínum á stuttum tíma. Já, láttu þá bara heyra það! – Með kærri kveðju og þakklæti fyrir gömul og góð samskipti,

Jón Valur Jensson, 29.2.2008 kl. 13:51

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll og komdu fagnandi Jón Valur Jensson, gamli góði félagi og vopnabróðir í flestu nema trúmálum.  Ég þakka þér sömuleiðis allt gamalt og gott. Við eigum væntanlega eftir að láta gamminn geysa, meðan örendið þrýtur ekki.

Sigurður Þórðarson, 29.2.2008 kl. 14:25

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

I look forward to that, old chap.

Jón Valur Jensson, 29.2.2008 kl. 15:26

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er þetta tilfellið, allir nema einn?  ekki gott að heyra.  Ég er nú flokkskona í sjálfstæðisflokki, en hef nú ýmsar skoðanir aðrar en þeir.  Leap Year

Ásdís Sigurðardóttir, 29.2.2008 kl. 17:38

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ásdís, gaman að sjá þig.  Já það er bara Hrafn Bragason

Sigurður Þórðarson, 29.2.2008 kl. 17:54

13 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fékk netpóst frá Rósu Aðalsteinsdóttur sem er örugglega rétt nafn og bað hún mig að útskýra athugasemd mína hér að framan.

Allir dómarar úr sömu klíkunni!

Hvílíkt bull!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.2.2008 kl. 20:00

14 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi. Ég fæ ekkert út úr þessu svari. "Hvílíkt bull" = punktur. Hvar eru rökin og getur Heimir bent á menn sem eru ekki litaðir íhaldinu? Kannski sendi þú Heimi bréf en netfangið hans er á heimasíðunni hans. Friðarkveðjur til þín.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.2.2008 kl. 23:48

15 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Heimir. Jú ég sendi netpóst því ég er forvitin en þetta er ekkert svar, vantar rök fyrir svona þorskhausa eina og mig. Shalom

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.2.2008 kl. 23:52

16 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa skipað alla dómara við Hæstarétt. Hrafn Bragason var sá síðasti skipaður fyrir 1991, er flokkurinn fékk ráðuneytið, sem sat í réttinum en hann hætti í haust.

Stefán Friðrik Stefánsson, 1.3.2008 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband