Færsluflokkur: Sjónvarp
Hver verður formaður Sjálfstæðisflokksins í janúar 2009?
Föstudagur, 14. nóvember 2008
Geir H. Harrde hefur ekki setið lengi í stól formanns Sjálfstæðisflokksins, en þegar er farið að gnauða um hann og það kólnar á toppnum núna. Geir er vænsti maður, en hvernig verður hans minnst? Verður hans minnst sem forsætisráðherrans, sem stýrði Íslandi á hausinn? Eða verður hans minnst sem forsætisráðherrans sem lenti í hremmingum en stýrði þjóðarskútunni lítt laskaðri í höfn? Samfylkingin vill segja Ísland til sveitar hjá ESB og afhenda fiskveiðiauðlindina í meðgjöf, Samfylkingin fitnar því á vonleysinu. Geir hélt því fram að hann myndi ekki láta kúga sig. Nú reynir ESB að kúga Íslendinga og Samfylkingin reynir að kúga Sjálfstæðisflokkinn. Verður Geirs minnst fyrir að láta báða þessa aðila kúga sig? Það vona ég ekki en geri hann það mun það verða hlutverk framsýnna stjórnmálamanna að benda á alla þá möguleika sem Ísland gæti átt með fríverslunarsamningum við lönd utan ESB, sem eru á hraðri siglingu, ólíkt því sem gerist hjá bandalaginu.
Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
Þokast í átt að lausn á IceSave-deilu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir landráðamaður?
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008
Aldrei á ævi minni hef ég augum barið aumlegri fulltrúa Íslands en birtist á skjánum í kvöld þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagist vilja leggja það í hendur Breta hvort þeir kæmu hingað til lands til að sinna loftferðaeftirliti. Þarna talaði varnarmálaráðherra Íslands á hnjánum sá sami og gagnrýndi fyrrum utanríkisráðherra fyrir undirlægjuhátt. Er hægt að ganga lengra en að gefa erlendu ríki, sjálfdæmi um það hvort það athafni hersveitir sínar á grund fullvalda ríkis?
Einn þekktasti stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar í blaðamannastétt Andrés Magnússon, spyr í fyllstu alvöru hvort þetta jaðri ekki við landráði sjá hér Hernám Breta væri jú ein leið inn í Evrópusambandið.
Hann var ólíkt myndugri forseti Íslands þegar hann varði sjónarmið þjóðarinnar gagnvart Bretum í Kastljósi kvöldsins. Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Ekkert samasemmerki á milli umræðu um Rússalán og herstöðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt 13.11.2008 kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
2 ærlegir menn í Framsóknarflokknum
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Í stól varaformanns Framsóknar situr kona, sem lagði til þess að vatnið og orkulindirnar yrðu einkavæddar, kom á lénsskipulagi í sjávarútvegi, sú sem studdi Íraksstríðið, sú sem flokksvinavæddi bankana og féll frá stöngum og verðmótandi útboðsskilmálum 2 vikum eftir að salan var gengin í gegn.
Tveir ærlegir menn í Framsóknarflokknum skrifuðu bréf til Valgerðar Sverrisdóttur. Ekkert er þar ofsagt. Satt best að segja kemur þar fátt ef nokkuð nýtt fram en hafi einhverjum ekki verið kunnugt um þá hluti sem þar eru skrifaðir á efni þess erindi við þjóðina:
Heil og sæl Valgerður, þú varst ögn önug út í okkur flokksbræður þína yfir því að við minntum á, í bréfi 9. okt. s.l.að í þinni ráðherratíð sem viðskiptaráðherra voru bankarnir einkavæddir.
Samningur um sölu á tæplega helmingshlut ríkisins í Landsbanka Íslands hf. til Samsonar eignarhaldsfélags ehf. undirritaður á gamlársdag árið 2002 (mbl.is/Kristinn)
Það verður þó varla fram hjá því litið að á því ferli öllu berð þú mikla ábyrgð ásamt því regluverki sem bönkunum var ætlað að starfa eftir. Og minnast má þess að lengi vel var það stefna Framsóknarflokksins að selja ekki bankana og als ekki Símann og margir framsóknarmenn munu enn vera á þeirri skoðun. Nú er úti ævintýr og bankarnir komnir aftur í þjóðareign. Nauðsynlegt er að spyrja hvað hefur þjóðin haft upp úr sölu bankanna og hvað mun hún kosta hana? Fyrireinkavæðingu var þjóðin talin með ríkustu þjóðum í heimi. Þjóðartekjur á mann með því besta sem þekktist. Þegnarnir yfirleitt efnahagslega sjálfstæðir og lífskjör hvergi jafnari en hér á landi. Ofurlaun þekktust ekki. Hvernig er svo ástandið í dag, sem einkavæðingin skilur eftir? Allir bankarnirkomnir í þrot. Af eljusemi og dugnaði höfðu þeir safnað erlendum skuldum er nema tólf til þrettán faldri ársframleiðslu þjóðarinnar. Allt sparifé okkar, sem var í vörslu þeirra var í uppnámi. Setja varð neyðarlög að næturlagi til þess að tryggja spariféð og eðlileg bankaviðskipti í landinu. Mörg hundruð miljarða skuldabaggi er lagður á íslenska þjóð. Okkur finnsta því að þú mættir gjarnan hugleið hvaða áhrif þinn félagslegi og pólitíski framgangur hefur haft fyrir þjóðina og Framsóknarflokkinn. Og hvað um KEA og SÍS? Spyrja má hversu mikið landsbyggðin hefur liðið fyrir hrun Samvinnuhreyfingarinnar.
Síður en svo ætlum við þér alla ábyrgð á einkavæðingunni og afleiðingum hennar þótt þú kæmir þar verulega við sögu og margir bera ábyrgð á þróun samvinnumála hér á landi. Framsóknarflokkurinn átti sinn góða þátt í uppbyggingu þess samfélags, sem hér náði að þróast á öldinni sem leið. Það samfélag byggði á blönduðu hagkerfi, sem hafnaði öfgum kapitalisma, sem boðaði að markaðurinn ætti að ráða öllu í heimi hér, jafnt og alræðissósíalisma var hafnað. Með formensku Halldórs Ásgrímssonar hefst raunasaga Flokksins, sem endaði með fylgishruni. Halldór klifaði látlaust á því að breyta þyrfti stefnu Flokksins. Hann skipaði framtíðarnefnd. Jón Sigurðsson var ,,kallaður" til þess að hafa umsjón meðþessari stefnumótun, ásamt Sigurði Einarssyni og Bjarna Ármannssyni, sem afþakkaði reyndar þetta boð.
Í þessari nýju stefnu fólst m.a. þetta:
- Í stað þess að standa vörð um sjálftæði Íslands og fullveldi átti að gangastundir ESB- valdið í Brussel.
- Í stað hins blandaða hagkerfis skyldi innleiða ,,frjálst" markaðhagkerfi líkt og í Bandaríkjunum og ESB.
- Ísland átti að verða ,,alþjóðleg" fjármálamiðstöð og skattaparadís.
- Frjáls innflutningur á landbúnaðarvörum, átti að vera forsend þess að flokkurinn næði fylgi í þéttbýlinu.
Allt var þetta í algjöri andstöðu við þau lífsviðhorf og gildismat þess fólks sem Flokkurinn sótti fylgi sitt til. Enginn studdi Halldór formann og þessa nýju stefnu afmeiri alúð en þú, að okkur finnst. Þótt annar hver kjósandi hafi yfirgefið Flokkinn heldur þú áfram á braut, sem leiddi hrun yfir Flokkinn og hörmung yfir þjóðina. Ástandið hefði þó verið sínu verra ef vilji ykkar Halldórs og fyrirmæli um að leggja Íbúðarlánasjóð undir bankanna hefðu ekki verið hundsuð af ágætum flokksbræðrum okkar, Árna Magnússyni, Magnúsi Stefánssyni og Guðmundi Bjarnasyni. Enda nutu þeir, að við höldum, stuðnings annarra þingmannaFlokksins. Þú innleiddir tilskipun ESB um raforkumál, sem kostar fólkið í landinu hundruð miljóna á ári hverju. Og þú orðaðir það svo fallega að þetta gæti verið fyrsta skrefið í einkavæðingu orkugeirans. Og nú rekur þú áróður sem mest þú getur fyrir aðild að ESB og reynir að fiska málinu fylgi í gruggugu vatni svo ekki sé meira sagt. Því til viðbótar hefur þú og sumir af þínum fylgismönnum talað niður gjaldmiðil hagkerfisins, nokkuð sem er mjög alvarlegt mál. Þá viljum við lýsa undrun og óánægju okkar yfir framgöngu þinni gagnvart sitjandi formanni Framsóknarflokksins. Við munum ekki annað eins.
Með framsóknarkveðju.
Gunnar Oddsson Flatatungu 560 Varmahlíð Sigtryggur Jón Björnsson Birkimel 11 560 Varmahlíð
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þverpólitísk mótmæli við Austurvöll
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Í dag sameinast Íslendingar, fólk úr öllum flokkum, í friðsamlegum samstöðumótmælum gegn ríkisstjórninn klukkan 15:00 á Austurvellii. Fram til þessa hefur verið áberandi að sjálfstæðismenn hafa látið sig vanta í mótmælin en ég hef haft spurnir af því að nú muni fjölmargir sjálfstæðismenn mæta og sýna félögum sínum í ríkisstjórn samstöðu, með því að taka þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni. Í upphafi beindust mótmælin ekki síst að seðlabankanum. Nú situr Davíð og horfir út um gluggann við Kalkofnsveg, algjörlega valdalaus, eftir að IMF tók við stjórn efnahagsmála.
Búist er við fjölmenni
Meira að segja Helgi ætlar að mæta.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Vilja stjórn VR burt
Föstudagur, 7. nóvember 2008
Rétt í þessu er eða hefjast mótmælastaða við skrifstofur VR sem almennit félasmenn standa fyrir. Fólkið krefst þess að að öll stjórn VR eins og hún leggur sig víki vegna stuðning hennar við Gunnar Pál Pálsson. Gunnar sem persónulega þáði 6,2 milljónir á ári fyrir einn fund í mánuði, sem fulltrúi lífeyrissjóðs VR. Hann er umdeildur fyrir að hafa tekið hagsmuni æðstu stjórnenda Kaupþings framyfir hagsmuni venjulegra lífeyrisþega. Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Vilja stjórn VR burt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Lögreglan að vígbúast.
Föstudagur, 7. nóvember 2008
Björn Bjarnason hefur gefið leyfi fyrir 250 nýjum ráðningum í lögregluna. DV greinir frá því að lögreglan sé að vígbúast fyrir kreppuna bæði sérsveit og greiningadeildir muni verða styrktar sérstaklega. Lögreglan ætlar að vera við öllu búin í kreppunni. Keypt hefur verið mikið magn af piparúða og táragas og strætisvagni breytt í tækni- og samskiptamiðstöð.i. Ég heiti á Björn að beita þessu öfluga lögregluliði gegn spillingu
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ekki semja barnabörnin í fátækt
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Þetta er sjálfsagt vel meint en það er til önnur og betri leið: Í stað þess að hneppa komandi kynslóðir í skuldafjötra getum við hert sultarólina tímabundið og síðan gert eins og Færeyingar og aukið tekjur okkar af sjávarútvegi. Við getum fækkað sendiráðum og sem betur fer sluppum við við öryggisráðið og getum nýtt þá peninga til atvinnuuppbyggingar. Þá munum ekki þurfa að hafa það á samviskunni að hafa skuldsett ókomnar kynslóðir.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
IMF-beiðni frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Spillingin grassear í "Nýju" bönkunum sem aldrei fyrr.
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Ég var að horfa á Kastljós þar sem formaður í Félagi fjárfesta var hjá Sigmari, þar sem hann lýsti því hvernig reynt hefur verið að mismuna hluthöfum sem er ólöglegt samkvæmt hlutafjárlögum. Spillingin grasserar sem aldrei fyrr í Nýja Glitni, Nýja Landsbanka.
Er ekki kominn tími á kosningar?
Persónulegar ábyrgðir starfsmanna felldar niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"Agentar" endurbornir?
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Vilja ESB-aðild og evru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Davíð svaka fyrndinn sjá myndband
Fimmtudagur, 30. október 2008
Sjáið þetta skemmtilega myndband hér
Annars virðist það lenska hjá mörgum að kenna Davíð um allt sem aflaga fer. Það gengur þó fulllangt að ráðherrar Samfylkingarinnar kenni honum um það sem þeir gera sjálfir samanber vaxtaákvörðunina sjá eftirfarandi yfirlýsingu seðlabankans hér
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)