Þverpólitísk mótmæli við Austurvöll

Í dag sameinast Íslendingar, fólk úr  öllum flokkum, í friðsamlegum samstöðumótmælum gegn ríkisstjórninn klukkan 15:00 á Austurvellii. Fram til þessa hefur verið áberandi að sjálfstæðismenn hafa látið sig vanta í mótmælin en ég hef haft spurnir af því að nú muni fjölmargir sjálfstæðismenn mæta og sýna félögum sínum í ríkisstjórn samstöðu, með því að taka þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni.  Í upphafi beindust mótmælin ekki síst að seðlabankanum.  Nú situr Davíð og horfir út um gluggann við Kalkofnsveg, algjörlega valdalaus, eftir að IMF tók við stjórn efnahagsmála. 

 afturganga25

 

Búist er við fjölmenni

Meira að segja Helgi ætlar að mæta. 

 

 

 

 

 

 Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Samstaða, það er málið.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.11.2008 kl. 13:09

2 Smámynd: Rannveig H

Verð á staðnum það er næsta víst.

Rannveig H, 8.11.2008 kl. 13:18

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þetta var nú aldeilis skemmtilegur mótmælafundur, reykspól mótorhjólafólksins og Bónsufáninn á Alþingishúsinu voru skemmtilegar uppákomur að mínu mati. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.11.2008 kl. 01:03

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta var flottur fundur og góð mótmæli.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2008 kl. 17:41

5 Smámynd: Sigurður Jónsson

Sjálfstæðismenn þurfa alveg eins að líða fyrir vitleysuna eins og aðrir. Sjálfstæðismenn eiga að láta í sér heyra.

Sigurður Jónsson, 9.11.2008 kl. 23:08

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

Ef samfylkingin getur verið bæði í stjórnarandstöðu og í ríkistjórn, þá hlýtur sjálfstæðisflokkurinn að geta það líka er það ekki?

Fannar frá Rifi, 10.11.2008 kl. 00:07

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Geir er örugglega mjög góður kall, kemur vel fyrir, skynsamur og vel máli farinn en hann er samt greinilega ráðvilltur. Það dylst engum að þessi stjórn ætlar ekki að sitja út kjörtímabilið.  Samfylkingin  bíður eftir hentugu tækifæri að hoppa frá borði og ekki seinna en næsta vor.  Það gerir stöðu Geirs og flokksins enn verri að andstaðan við hann innan flokksins er studd af öllum fjölmiðlum landsins (365, DV og RUV)

Ef sjálfstæðismenn sem styðja Geir pakka í vörn, og breiða upp fyrir haus, verða þeir buffaðir niður af Samfylkingunni.  Þetta er mjög erfið staða  að spila úr.

Sigurður Þórðarson, 10.11.2008 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband