Er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir landráðamaður?

Aldrei á ævi minni hef ég augum barið aumlegri fulltrúa Íslands en birtist á skjánum í kvöld þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagist vilja leggja það í hendur Breta hvort þeir kæmu hingað til lands til að sinna loftferðaeftirliti. Þarna talaði varnarmálaráðherra Íslands á hnjánum sá sami og gagnrýndi fyrrum utanríkisráðherra fyrir undirlægjuhátt.  Er hægt að ganga lengra en að gefa erlendu ríki, sjálfdæmi um það hvort það athafni hersveitir sínar á grund fullvalda ríkis?

Einn þekktasti stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar í blaðamannastétt Andrés Magnússon, spyr í fyllstu alvöru hvort þetta jaðri ekki við landráði sjá hér  Hernám Breta væri jú ein leið inn í Evrópusambandið.

Hann var ólíkt myndugri forseti Íslands þegar hann varði sjónarmið þjóðarinnar gagnvart Bretum í Kastljósi kvöldsins.                                 Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur! forsetinnF_200611_november14_101625aCBJ%20SIG%20SMW06


mbl.is Ekkert samasemmerki á milli umræðu um Rússalán og herstöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég er sammála þessum pælingum Andrésar.

Hallgrímur Guðmundsson, 12.11.2008 kl. 23:44

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér finnast þetta landráð.  Manneskjan er ekki að vinna vinnuna sína.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.11.2008 kl. 00:43

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Hallgrímur og Jóna, þetta er auma klúðrið.

Ég vil ekki dæma hana svo hart að kalla hana landráðamann, hún er líklega veik. 

Sigurður Þórðarson, 13.11.2008 kl. 00:57

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi sæti og takk fyrir síðast. Do you remember?????  

Vér mótmælum öll. Hættum að borga o.sv.frv.

Erlingur er minn maður. Innleggið frábært = Evrópukjaftæði.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.11.2008 kl. 07:27

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

eftir fréttirnar í morgun um að skriffinnar ESB hafi viljað breyta öllum lögum í kringum gerðardóm til þess að tryggja eigin sigur, þá virðist sem að ESB vill okkur bara illt.

Fannar frá Rifi, 13.11.2008 kl. 08:34

6 Smámynd: Rannveig H

Ég seigi eins og krakkarnir.ég verð alltaf hissari og hissari. Við erum hnípin þjóð í stórum vanda þar sem ráðamenn og konur hafa hvorki vilja né getu til að bjarga okkur.

Ólafur Ragnar á að rjúfa þing (neyðarlög) setja utanþingsstjórn okkar færustu sérfræðinga. Það er ekki hægt að valda þessum vanda með pólitík í dag.

Rannveig H, 13.11.2008 kl. 08:58

7 Smámynd: Fannar frá Rifi

Verst að margir af okkar "færustu" sérfræðingum eru oft á tíðum froðusnakkarar sem aldrei þurfa að bera ábyrgð á eigin orðum því þeir eru í vernduðu störfum í háskólum þar sem þeir geta aldrei verið sagt upp.

Fannar frá Rifi, 13.11.2008 kl. 09:01

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Erlingur, Rósa, Fannar og Rannveig og takk fyrir innlitin og athugasemdirnar. Ef margir hafa gleymt þorskastríðunum þá eru atburðir liðinna vikna ágætis upprifjun fyrir okkur í því að við verðum að treysta á okkur sjálf. Eða hverjum dettur nú í hug að Bretar séu tilbúnir til að gefa okkur leyfi til að sitja einir að fiskimiðunum?  Hver er afstaða Samfylkingarinnar til þess máls?

Sigurður Þórðarson, 13.11.2008 kl. 09:34

9 Smámynd: Óskar Arnórsson

Nú verð ég bara skotin í Rannveigu!! Af hverju í andskotanum rífur Ólafur Ragnar ekki þing??

Hann hefur þó valdið til þess. Þessi hörmungarstjórn er búin að vera fyrir löngu síðan. Kannski var það sniðugt af Ingibjörgu Sólrúnu að láta Breta ráða þessu sjálfa.

Handaka síða alla hermenn og manna hertól Íslendingum. Sjá svo hvort Nato ríki ræðst á okkur. Það væri gaman að sjá breskar hersveitir koma til Íslands. Erum við ekki færir í að taka "vel" á móti þeim?

Mér finnst þessi heilaskurðaðgerð Ingibjörgu Sólrúnu alveg misheppnuð. Það þarf aðra og fjarlægja þá restina af heilanum. Hún notar hann hvort eð er ekki neitt...

Óskar Arnórsson, 13.11.2008 kl. 10:16

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er nú það með hana Ingibjörgu, fyrst fór hún alveg rosalega í taugarnar á mér, það var meðan hún var borgarstjóri, svo fékk ég álit á henni, meðan hún var að koma sér á þing, en nú verð ég að segja að hún fer hríðfallandi í áliti hjá mér.  Konan bak við allt skrumið er sum sé að koma í ljós, og það er ekki glæsileg sýn.  Enda heyri ég víða á Samfylkingarfólki að það er að snúa við henni baki, vegna aðgerðaleysis á stjórnarheimilinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2008 kl. 11:32

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Forsetinn er sjálfur landráðamaður, EF hann vill (eins og hermt er að segi frá á minnisblaði norska sendiherrans) í stað Rússaláns gefa Pútínstjórninni hernaðaraðstöðu á Keflavíkurflugvelli – og þar með æðstu yfirráð í landinu öllu.

Svo er orðið landráð fleirtöluorð, Sigurður! 

Jón Valur Jensson, 13.11.2008 kl. 13:15

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er alveg sammála þér Ásthildur sú var tíðin að þau fóru saman um héruð og  söfnuðu atkvæðum út á loforð um að afnema kvótakerfið sjá hér

 Jón ég þakka prófarkalesturinn, ég þigg með þökkum að læra betur móðurmálið.  Ég trúi afar varlega þessari samsæriskenningu um forsetan,  finnst miður að þú skulir ljá þeim eyra  og tel þvert á móti ólíkt meiri sóma af honum en fyrrum flokkssystur hans.

Sigurður Þórðarson, 13.11.2008 kl. 14:15

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Dettur þér í hug, að Norðmenn hafi verið að ljúga þessu upp á hann? Ólafur getur auðveldlega hagað sér eins og dr. Jeckill og mr. Hyde – talað aðra stundina algáður af sýnilegri ábyrgð og varkárni, en hina stundina sagt um meðþingmann sinn úr ræðustóli, að viðkomandi hafi "skítlegt eðli". Og þú treystir honum til að missa aldrei stjórn á tungu sinni gagnvart útlendingum!

Jón Valur Jensson, 13.11.2008 kl. 15:37

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Dvöl flugsveitar hér, með samstarfi við Íslendinga o.fl. NATO-þjóðir, í kannski hálfan mánuð er líka allt annað, þegar lýðræðisríki á í hlut (Bretland), sem engum dettur í hug að ætli að leggja undir sig landið með hervaldi, heldur en að fela einræðisstjórnvöldum Rússlands að taka yfir Keflavíkurflugvöll sem herstöð. Það síðarnefnda er landráðatillaga (ef borin er fram), ekki það fyrrnefnda, jafnvel þótt mörgum misbjóði eðlilega að fá hingað Bretana.

Jón Valur Jensson, 13.11.2008 kl. 15:44

15 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Jón Valur, ég trúi öllu upp á Norðmenn og það kæmi mér ekkert á óvart þótt í ljós kæmi að þeir hefðu verið að LJÚGA öllu saman.

Jóhann Elíasson, 13.11.2008 kl. 16:23

16 identicon

Heill og sæll; Sigurður, og aðrir skrifarar og lesendur !

Sigurður ! Afsakaðu; hversu seinn ég er, til svarsins. Jú; krata hyskið allt, ekki bara ISG, er landráðafólk, að upplagi. Snobb lýður; að tiltölu, flest, og óþurftar fólk, íslenzkum hagsmunum, öllum.

Með beztu kveðjum, sem oftar /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 00:59

17 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jóhann Elíasson, það er rétt að spyrja þig: Hefur norska utanríkisráðuneytið hafnað því, að frásögn Klassekampen sé rétt? – Nei. – Hafa aðrir sendiherrar, sem voru í danska boðinu, hafnað því? – Nei. Einungis Ólafur hefur hafnað því! En þú velur auðvitað, hverjum þú trúir og hverja þú kallar lygara – en gerðir það ekki hér með neinum rökum.

Einnig má benda þér á þessa vefgrein Björns Bjarnasonar, þar sem hann segir m.a.:

  • "Ég hef fjallað um frásagnir sendiherra í tengslum við umræður um kalda stríðið, aldrei dregið í efa, að rétt sé skýrt frá, en áréttað, að þær lýsi að sjálfsögðu áherslu þess sem skráir, og stundum kunni þessi áhersla að byggjast á áhuga ríkisstjórnar viðkomandi frekar en viðmælandans. Eðlilegt er, að norski sendiherrann staldri sérstaklega við það, sem forsetinn segir um þróun mála á N-Atlantshafi og Rússa, enda aðeins nokkrir dagar síðan norski utanríkisráðherrann var hér og flutti meðal annars erindi um þróun mála á norðurslóðum.
  • Þegar við Ólafur Ragnar sátum saman í utanríkismálanefnd alþingis í upphafi tíunda áratugarins gerðist það oftar en einu sinni eða tvisvar, að hann kvaddi sér hljóðs utan dagskrár eða fór mikinn í fjölmiðlum vegna þess sem haft var eftir erlendum stjórnarerindrekum á líðandi stundu eða í fortíðinni. Þá dró hann ekki í efa, að unnt væri að treysta frásögnum þeirra."

Einnig segir Björn:

  • "Hádegisverðarfundur þjóðhöfðingja með sendiherrum er ekki nein skemmtisamkoma. Það er engin tilviljun, að sú regla var viðhöfð um áratugaskeið, að ræður forseta Íslands á erlendum vettvangi eða yfir útlendingum voru bornar undir forsætisráðherra eða utanríkisráðherra.
  • Á mbl.is 12. nóvember segir:
  • „Ræða sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hélt á hádegisverðarfundi í danska sendiráðinu í síðustu viku var ekki borin undir utanríkisráðuneytið enda hefur ekki tíðkast að ræður hans við slík tækifæri séu bornar undir það....""

Lesið meira í þessari dagbókargrein Björns! Þar kemur t.d. fram, hvernig fjallað er um þetta mál í erlendum fjölmiðlum, m.a. bæði á þýzku og ensku.

Jón Valur Jensson, 14.11.2008 kl. 02:08

18 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ingibjörg hefur enga stærð til að kallast landráðamaður Siggi minn. Hún er einfaldlega pólitískt flón-eitt af mörgum hjá þjóð vorri í dag-,og á sér þann draum einan að fá að stýra virðingarmiklum kontór á erlendri grund.

Árni Gunnarsson, 14.11.2008 kl. 20:16

19 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Hvar voru viðskiptaráherra og fjármálaráðherra síðustu 15 mánuði sem þessi ríkisstjórn er búin að vera við völd? hvaða meðvitundarleysi er búið að einkenna Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn? Var þessi stjórn á einhverju Secret afneitunarflippi? sennilega voru þau upptekin við að óska sér og sjá fyrir sér sæti í Öryggisráði Á meðan að bankaræningjarnir stálu hér öllu steini léttara!

Guðrún Sæmundsdóttir, 14.11.2008 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband