Færsluflokkur: Samgöngur

Hann bara vinnur þarna.

Samt skömminni skárra að sofa á vaktinni en að syngja vögguljóð fyrir þjóðina eins og hagdeildirnar gerðu fram yfir hrun.
mbl.is Stýrimaður sagður hafa sofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórflokknum verður ekki haggð

Reynslan sýnir að það er auðvelt að ná samstöðu á alþingi við Austurvöll með klíkuhagsmunum gegn almannahagsmunum.  Eina ráðið virðist vera að koma á beinu lýðræði.  Íslendingum ætti ekki að vera það framandi því þeir komu því fyrst á árið 930 á alþingi við Öxará.
mbl.is Vilja þjóðaratkvæði um kvótafrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi frétt er martröð fyrir aflóga pólitíkusa

Birting WikeLeaks afhjúpar að sendiráð eru fullkomlega óþörf. Þetta er eitthvað sem samtryggingarmenn allra flokka vilja ekki heyra.  Utanríkisþjónustan er þeirra dvalar-og elliheimili.
mbl.is Afhjúpar tilgangsleysi sendiráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlíking af vandaðri vöru er óráðvendni

Þetta er að minnsta kosti á gráu svæði þó ekki sé það jafn óforskammað og þegar heildverslunin Eggert Kristjánsson hf. markaðssetti eftirlíkingu af Rauðu Eðalginsengi, sjá hér.

Neytendasamtökin fengu kvartanir frá neytendum og sendu í kjölfarið sýnishorn keypt ér á landi til rannsóknar í faggiltri rannsóknarstofu í Þýskalandi, sem beitti þremur mismunandi aðferðum sem allar gáfu sömu niðurstöðu: Ekkert rautt ginseng var í vörunni!


mbl.is Ölgerðin ekki með einkarétt á appelsíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboð til stuðnings fjórflokknum

Fjórflokkurinn hefur lofað að fjarlæga flugvöllinn í Reykjavík og því er Reykjavíkurframboðið í raun til stuðnings fjórflokknum
mbl.is Fara gegn fjórflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú á að lækka skatta.

Nei nei þetta þetta var misskilningur. Samfylkingin ætlar að hækka álögur á atvinnulífið en bæta það upp og gott betur með slagorðum eins og nýsköpun, frumkvæði og evrópsk leið.  Samfylkingin í Reykjavík vonast eftir styrkjum frá EB fyrir afsal auðlinda.

 En hvað með spillinguna?   Ekki eitt orð!


mbl.is Vilja stefna að 3,5% hagvexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfheiður hefnir á alþingi

251919_218_previewþví sem tapaðist í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú þykist hún gasalega hneyksluð og ekki í fyrsta sinn sjá myndband hér

Forseti Íslands ber ekki stjórnskipulega ábyrgð en  í skjóli Álfheiðar sitja ráðherrar sem leyndu  þjóðina  upplýsingum um stöðu bankana.

 


mbl.is Ofbauð viðbrögð forseta Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknarskýrslan nýr kattarþvottur?

122643306_c64b9ebed0Það er gamall siður þegar stjórnvöld á Íslandi hafa eitthvað misjafnt á samvikunni og jafnvel eitthvað í pokahorninu sem vert er að fela þá er ríkisendurskoðun fengin til að framkvæma úttekt og gera skýrslu. Einhverskonar kattarþvott. 

Þannig var ríkisendurskoðun látin skrúbba stjórnvöld í sambandi við einkavinavæðingu bankana og gefa hneykslinu á Miðnesheiði gæðavottorð.

Ef rannsóknarnefndin vill standa undir væntingum stjórnvalda verður hún að halda því fram að hér hafi ekkert hrun átt sér stað og hér sé engin spilling. 

 

Sjónmálastéttin, sem hefur verið á mála hjá auðmönnum ætlast til að líta svona út. 


mbl.is Skýrslan handan við hornið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg áhugasöm um vegtolla

Hugmyndir eru nú uppi bæði innan ríkisstjórnarinnar og hjá Reykjavíkurborg að ráðast í stórfellda tekjuöflun með vegtollum eftir kosningar. Þannig telja menn að megi ráðast á atvinnuleysisvofuna úr tveimur áttc_documents_and_settings_anno_my_documents_my_pictures_hannabirna_441461um:

Í fyrsta lagi með því að ráða fjölda fólks til starfa sem vegtollheimtumenn til að byrja með á höfuðborgarsvæðinu, þar sem umferðin er mest. 

&

Í öðru lagi með því að nýta það gríðarlega fé sem þannig myndi safnast til framkvæda.

Það er auk þess góð röksemd fyrir þessu að það eru víða vegtollar innan Evrópusambandsins


mbl.is Alfarið á móti vegtollum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem fiskihagfræðingarnir vita ekki

c_users_owner_pictures_landra_ama_urinn_og_thjo_armor_inginn_ragnar_arnason

Sjávarþorpin eru þar sem þau eru vegna nálægðar við staðbundin fiskimið.  Þetta vita fiskihagfræðingar ekki, þeir kunna heldur ekkert í líffræði en þeir kunna aftur á móti á Exel sem þeir geta matað með viðurkenndum hagfræðiformúlum og búið þannig til kökur, gröf, línurit og súlur. 

Ekkert af .þessu hefur neitt með raunveruleikann að gera. 

Fiskihagfræðingarnir létu misnota sig af kvótabröskurum til að réttlæta eyðingu sjávarþorpanna. Af hverju  leggja þeir ekki til að slegið verði 5 sinnum á Suðurlandi og hætt að heyja í öðrum landshlutum?

 

Ragnar Árnason fiskihagfræðingur


mbl.is Bannað að selja burt kvóta úr þrotabúum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband