Færsluflokkur: Löggæsla
Alþingismenn í óökufæru ástandi!
Mánudagur, 8. júní 2009
Ýmsir stjórnarliðar hafa látið eins og þeir hafi með harðfylgi náð hagstæðum samningum um lausn Icesave deilunnar við Breta. En um leið og fréttir bárust af hvers eðlis samningar eru brást markaðurinn hart við og gengi krónunnar féll um 3,6 stig í dag. Það sem formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, telur mikið fagnaðarefni ályktar markaðurinn að muni leiða til falls Íslands. Það sem formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, telur bestu fáanlegu niðurstöðu segja sérfæðingar í Evrópurétti að eigi að skjóta til dómstóla. Flestir sem skoða þetta mál halda því fram að Ísland hefði ekki skrifað undir slíka uppgjafaskilmála nema undir þungum hótunum. Formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, segir þetta ekki rétt þvert á móti hafi góður andi ríkt og engar hótanir átt sér stað.
Sendiherrar eru menn með góða þjálfun í að skála í kampavíni.
Alþingismenn, ykkur er treyst til að vera í ökufæru ástandi: Segið nei takk. "Eftir einn aki ein neinn" !
![]() |
Blekkingar, heimska og hótanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins um dautt og lifandi fé
Sunnudagur, 31. maí 2009


![]() |
Milljarða skuldir umfram eignir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, stórglæsilegur fulltrúi Íslands
Laugardagur, 16. maí 2009


![]() |
Ísland í 2. sæti í Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Olli Rehn styrkir samningsstöðu VG í stjórnarmyndunarviðræðunum
Miðvikudagur, 29. apríl 2009

![]() |
Þarf ekki einhug um umsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fyndinn kjörseðill
Sunnudagur, 26. apríl 2009
Í kosningunum vann ég fyrir yfirkjörstjón Reykjavík suður við að fara yfir utankjörfundar vafaatkvæði sem úrskurða þurfti gild eða ógil. Flest urðu atkvæðin ógild vegna smávegilegs klaufaskapar á formsatriðum sem þarf að fylgja en stundum stungu ógildu seðlarnir virkilega í stúf.
Einn seðill merktur tilteknum flokki voru eftirfarandi skilaboð: Ég kýs ykkur núna í þetta sinn og vona svo að þið getið gert eitthvað fyrir mig í staðin. Lalli Johns
![]() |
Davíð eyðilagði landsfundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mannlegir skildir mútuþega.
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
![]() |
Neitar að gefa upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ósammála - Ég er ósammála þeim sem vilja gefa fiskimiðin
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
ESB andstæðingar skráið ykkur á ósammála.is!
Ég vildi athygli allra sem eru ósamála því að Ísland innlimist í ESB og afnemi fiskveiðilögsögu Íslands um leið og tekin er upp fiskveiðilögsaga ESB á að þeir geta skráð sig hér á ósammála.is! Endilega skráið ykkur og látið alla vita sem eru ekki hlynntur ESB aðild.

![]() |
Ósammála punktur is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt 23.4.2009 kl. 07:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
VG vill hvalveiðar feigar
Laugardagur, 18. apríl 2009
Sjávarútvegsráðherra hefur gert samkomulag við Hagfræðistofnun um að leggja þjóðhagslegt mat á hvalveiðum í þeim tilgangi að finna réttlætingu til að draga úr eða stöðva hvalveiðar. Þannig á Hagfræðistofnun að reikna út áhrif á ferðaþjónustu án þess að hafa til þess nokkrar forsendur. En Hagfræðistofnun er ekki ætlað að rannsaka hagræn áhrif þess að halda vexti hvalastofna í skefjum þó vitað sé að hvalir éta í það minnsta 15 sinnum meira en við veiðum. Þannig er Hagfræðistofnun ætlað að reikna út og meta huglægar forsendur en sleppa þekktum stærðum.
![]() |
Mat lagt á þjóðhagsleg áhrif hvalveiða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Vistmenn á Kvíabryggju snúa baki við Sjálfstæðisflokknum
Sunnudagur, 12. apríl 2009
Sigurjón bróðir minn hefur gert víðreist um Snæfellsnesið, þaðan sem við erum raunar ættaðir, í kosningabaráttunni en hann skipar annað sætið á lista Frjálslyndra í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf átt miklu fylgi að fagna á Snæfellsnesi og eitt sterkasta vígi hans um langa hríð hefur verið á Kvíabryggju. Gleðipinninn Árni Johnsen var þar fyrir skemmstu hrókur alls fagnaðar og naut þar engu minna fylgis en í Vestmannaeyjum. Því hefði fyrirfram mátt búast við að Sigurjón hefði átt við ramman reip að draga en það kom skemmtilega á óvart að því var ekki þannig varið þvert á móti. Fangarnir eru þarna af því að þeir brutu reglur samfélagsins en þeir líta á vist sína sem betrunarvist og eiga það markmið að verða betri menn. Mútuþægni Sjálfstæðisflokksins gagnvart þeim sem ásælast auðlindir þjóðarinnar er þeim ekki aðeins áhyggjuefni heldur stríðir hún gegn lífsgildum fanganna. Eða eins og einn fanginn orðaði það: "Þetta voru mennirnir sem komu okkur á hausinn". Fangelsið Kvíabryggja, er mannbætandi.
![]() |
Segir báða framkvæmdastjóra hafa vitað af styrkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Fyrir hvað greiddi FL Group og Landsbankinn?
Fimmtudagur, 9. apríl 2009
Allir með þrjú eða fleiri skynfæri í lagi vita að Framsóknarflokkurinn samþykkti að Sjálfstæðisflokkurinn fengi að ráðstafa Landsbankanum ef hann (Framsóknarflokkurinn) fengi að ráðstafa Búnaðarbankanum. Þá er það líka á allra vitorði að FL Group kom að REI og væntanlegri einkavinavæðingu Orkuveitunnar. Nú ætla ég ekki að giska en hvernig væri ef Sjálfstæðisflokkurinn upplýsti hreinskilningslega fyrir hvað þessi fyrirtæki voru að borga? Eða eiga kjósendur að kaupa það að Bjarni og Þorgerður þekki ekki til flokksins sem þau stýra?
![]() |
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)