"Agentar" endurbornir?
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008

![]() |
Vilja ESB-aðild og evru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvert stefnir Ísland? 3 möguleikar til lausnar vandans
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Hægt er að laga viðskiptajöfnuðinn með þrennum hætti: Sparnaði, lántöku eða auknum tekjum. Ríkistjórnin einblínir á auknar lántökur þó við séum nú þegar orðin skuldsettasta þjóð í heimi. Skuldir þjóðarinnar eru orðnar svo miklar að það mun taka nokkrar kynslóðir að borga þær samt halda ráðamenn Íslands áfram að krjúpa við fótskör allra þeirra þjóðhöfðingja sem þeir komast í færi við.
En það eru til aðrar leiðir. Fyrrum sjávarútvegsráðherra Færeyja hefur lýst því í blaðaviðtölum hvernig Færeyingar komust út úr sinni bankakreppu, með því að afnema kvótakerfið og koma á sóknarstýringu, sem varð m.a. til þess að allt brottkast hvarf.
Við gætum líka farið rótækari leið:
Sjávarspendýr éta 20 sinnum meir en við veiðum og við getum dregið úr þeirra hlut meðan við losum okkur við skuldir. Ef við getum ekki selt hvalkjöt getum við leigt Japönum kvóta. Eittvað getum við veitt sjálf til eldis á fóðurfiski. Þá myndu Norðmenn grátbiðja um á fá að nota íslenska krónu.
Báðar þessar leiðir eru löglegar og hvorug gengur gegn banni við sölu hvalafurða milli landa. að sjálfsögðu myndum við gæta hófs og stýra þessu vel innan marka sjálfbærrar nýtingar.
![]() |
Styðja lán til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Boðuð þverpólitísk mótmæli gegn ríkisstjórninni!
Mánudagur, 3. nóvember 2008
Íslenska þjóðin er á móti ríkistjórninni. Áhrifamenn í Samfylkingunni skynja þetta og eru mjög áberandi á mótmælafundum á Austurvelli og í Tjarnargötu, sem beinast gegn ríkisstjórninni. Sjálfstæðismenn eru líka ósáttir við ýmislegt hjá ríkisstjórninni t.d. að utanríkisráðherra skyldi krefjast tafarlausra samninga við IMF án þess að kanna skilyrði sjóðsins. Þeir eru óánægðir með að að Samfylkingin skuli sífellt vera a klifa á að hún vilji að Ísland gangi í ESB, stundi einelti á Davíð og hún hafi engar efnahagslausnir þvert á móti hafi hún orðið til þess að framkvæmdir á Bakka voru blásnar af. Þá finnst þeim leiðinlegt að trúnaðarupplýsingar skuli leka.
Hvernig væri að sjálfstæðismenn sameinuðust nú samstarfsfólki sínu í ríkisstjórn með því að taka þátt í mótmælum gegn ríkistjórninni? Þannig væri hægt að mynda það sem geðlæknar kalla jákvætt og uppbyggilegt hópefli, sem myndi þjappa þjóðinni saman og leiða hana gegnum erfiðleikana.
Myndirnar eru teknar fyrir og eftirtilhugalíf.
Sjálfstæðisflokkurinn klofinn Varaformaðurinn með bakland í samstarfsflokknum
Sunnudagur, 2. nóvember 2008

Varaformaðurinn er ókrýndur leiðtogi þeirra sjálfstæðismanna sem vilja fórna hagsmunum sjávarútvegsins með því að ganga í ESB í von um baunadisk. Hópur menntamanna innan Samfylkingarinnar, sem aldrei hefur flakað ýsu hvað þá pissað í salt vatn skilja ekki möguleika sjávarútvegsins en sjá sjálfan sig í hyllingum sem vellaunaða starfsmenn í Brussel, fulltrúa fátæks og skuldsetts grjóthólma í N- Atlantshafi. Valdabarátta er hafin innan Sjálfstæðisflokksins og varaformaðurinn á tryggt bakland í samstarfsflokknum.
Bretar voru hundfúlir að þurfa að hætta að veiða við Íslandsmið. Þess vegna vilja þeir ólmir fá okkur í ESB til að ná fyrri stöðu. Getur verið að þeir Gordon Brown og Darling hafi vísvitandi komið Íslendingum á hné til að aðstoða íslenska flokksbræður sína að klára verkið?
![]() |
Tilbúin að endurskoða afstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Samfó buffar samstarfsflokkinn sem er vankaður
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Þetta er mögnuð staða. Samfylkingin nýtur þess að vera bæði í stjórn og stjórnarandstöðu t.d. með því að framámenn hennar taka þátt í opinberum mótmælum. Sjálfstæðismenn eru vankaðir og milli steins og sleggju því þeir vilja umfram allt ekki kosningar. Þetta rifjar upp boxlýsingu hjá Bubba og Ómari: Bubbi æpir: "Hann ver sig ekki" "Hann ver sig ekki". Ómar ákveðinn: Búð spil, Bubbi æstur: Hann er vankaður. Ómar: Hægri, vinstri, upphögg. Bubbi: Þetta er tær snilld. Ómar: Þetta er það flottasta sem ég hef séð lengi, nei sjáðu hann er nefbrotinn. Bubbi: "Gargandi snilld"
![]() |
Samfylking afneitar Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Davíð svaka fyrndinn sjá myndband
Fimmtudagur, 30. október 2008
Sjáið þetta skemmtilega myndband hér
Annars virðist það lenska hjá mörgum að kenna Davíð um allt sem aflaga fer. Það gengur þó fulllangt að ráðherrar Samfylkingarinnar kenni honum um það sem þeir gera sjálfir samanber vaxtaákvörðunina sjá eftirfarandi yfirlýsingu seðlabankans hér
Íslensku stelpurnar flottastar
Fimmtudagur, 30. október 2008
![]() |
Ísland á EM 2009 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
LÍÚ óskar eftir meiri kvóta til að veðsetja
Fimmtudagur, 30. október 2008

![]() |
LÍÚ óskar eftir meiri kvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Besti fjárfestingarkosturinn Fjárfest í heilsu
Miðvikudagur, 29. október 2008
Ég fór á frábæran kynningarfund á Grand hótel í kvöld þar sem komu góðir erlendir gestir frá USA og fjölluðu um hvernig mæetti virkja og styrkja ónæmiskerfið. Ástæðan fyrir því að þeir sáu sér fært að koma var sú að þeir millilentu hér á leið sinni á stóra ráðstefnu í Noregi. Aðalfyrirlesari var Doktor Don Knox sem fjallaði um nýjustu rnannsóknir sínar á slökkvuliðsmönnum en sú rannsókn var styrkt af fjölmörgum háskólum og bandaríska flughernum. Niðurstöður allra rannsóknanna benda í sömu átt að sjá wellmune dragi úr steitu og fækki veikinndadögum. Aðrar rannsóknir beda allar í sömu átt.
Í Skandinavíu heitir varan Immiflex sjá
Geir þiggur allan pening
Miðvikudagur, 29. október 2008
Ríkisstjórnin gerir nú víðreist um heiminn til að biðja um lán. Geir segir að þessir peningar 6 milljarðar frá Færeyjum dugi skammt en sé ótrúlega höfðinglegt miðað við höfðatölu þeirra.
![]() |
Mikill drengskapur Færeyinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |