LÍÚ óskar eftir meiri kvóta til að veðsetja

Einn stærsti vandi Íslendinga felst í því að meðlimir LÍÚ eru búnir að veðsetja sameign þjóðarinnar í útlöndum þannig að greinin skuldar nú 400% af ársveltu.  Það er sjálfsagt allt í lagi að auka við veiðiheimildir en það er ástæðulaust að gera það þannig að það auki skuldir landsins í útlöndum.c_documents_and_settings_kristinn_my_documents_my_pictures_jesus-apostles-01_165538
mbl.is LÍÚ óskar eftir meiri kvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi sæti.

Batnandi manni er best að lifa. Bara kominn með Jesúmynd. Myndin er mög falleg. Ég vissi þetta allan tíman að þú ert kúl náungi. Velkominn út úr skápnum.    

Vonandi lesa höfðingjar þessa lands bloggið þitt. Það væri þeim til góðs að þiggja góðar ábendingar því ekki dettur þeim neitt í hug.

Hef aldrei verið hrifin af forráðamönnum LÍÚ og ekki batnaði álitið við þennan lestur.

Guð veri með þér félagi

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.10.2008 kl. 16:15

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Nú líst mér vel á þig Siggi, sérstaklega myndavalið! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 30.10.2008 kl. 16:20

3 Smámynd: Rannveig H

Hvað er að koma fyrir þig Siggi kíkjum við kannski á samkomu í kvöld.

Rannveig H, 30.10.2008 kl. 17:48

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

  

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.10.2008 kl. 17:53

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nei, nei, nei, ekki misskilja mig ég er ekki að falla frá minni ásatrú, þvert á móti. Mér fannst samt við hæfi að birta mynd af Meistaranum frá Nasaret af þessu tilefni. Ekki var hann stuðningsmaður kvótakerfis. Þvert á móti stuðlaði hann að góðri veiði ekki til braska með kvóta heldur til að metta 5000 manns.  

Sigurður Þórðarson, 30.10.2008 kl. 20:41

6 Smámynd: Rannveig H

Góður Siggi

Rannveig H, 30.10.2008 kl. 21:14

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

   Þú ert langflottastur    

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.10.2008 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband