Aumt hlutskipti lögreglunnar

Ég hefði ekki viljað vera í sporum lögreglumannana sem voru sendir til að innsigla bát gamla sjómannsins úr Sandgerði sem hefur haft manndóm í sér til að standa á mannréttindum sínum, þeirra hlutskipti er dapurlegt.
mbl.is Bátur Ásmundar innsiglaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er satt sem þeir segja að hann hafi grætt ótæpilega á kvótasölu eða er þetta ein lygin enn??

Ásdís Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 19:41

2 identicon

Það getur ómögulega verið manndómur í því fólginn að stela úr sameiginlegum sjóðum okkar landsmanna. Er hægt að leggjast lægra? Get ómögulega séð neitt dapurlegt við störf lögreglunnar ... sjálfsagt mál að bregðast við þegar stolið er úr sameginlegum sjóðum landsmanna.

Björn Hróarsson (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 20:00

3 Smámynd: Krummi

Svona eru bara lögin og lögreglunni ber að fylgja þeim eftir, það er ekkert dapurlegt við það. Og þess fyrir utan þá var þetta það sem hann Ásmundur var að bíða eftir svo hann geti hafið málaferlin við ríkið.

Krummi, 7.8.2008 kl. 23:31

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Ásdís, þetta hyski á nóga peninga til að bera á leigupenna og stjórnmálamenn til að bera út óhróður um heiðarlegt fólk sem berst fyrir mannréttindum. Þessa peninga fær það m.a. með leigu á sameign þjóðarinnar sem það segir Ásmund stela úr.

Sigurður Þórðarson, 8.8.2008 kl. 01:17

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Nú er að bíða og sjá hvað gerist. Fjör á heimasíðu bloggvinar míns sem þú heimsóttir líka í gær.

Guð gefi þér góðan dag.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.8.2008 kl. 08:12

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Rósa, er það nokkuð spennandi partý?   Það er alveg rétt Gulla að hann átti skip en en hann hefur aldrei verið kvótakall í þeim skilningi að leigja út kvóta. En þó hann hefði gert það myndi myndi gilda hið fornkveðna: "Batnandi mönnum er best að lifa".

Sigurður Þórðarson, 8.8.2008 kl. 22:18

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Var ekkert spray eða GAS! Voða er þetta eitthvað aumlegt!!..heimur versnandi fer...þetta er jú "kvóta" hryðjuverkamaður svo að hæfilegt fangelsi er líklegast 300 ár...bara svona til vara ef þetta reynist vera mjög lífseigur gaur..

Óskar Arnórsson, 9.8.2008 kl. 07:43

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það kom skýrt fram hjá Ásmundi að hann seldi bátinn fyrir verð sem var tryggingaverð á bátnum.  Hann hefði getað selt kvótan fyrir meira fé.  ÞEir ljúga eins og þeir eru langir til LÍÚ enda dauðhræddir við menn sem þora.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband