Alþýðuhetja rær gegn mannréttindabrotum frá Sandgerði

Ásmundur Jóhannsson, fullorðinn Sandgerðingur hefur sagt lénsskipulagi í sjávarútvegi stríð á hendur. Ásmundur sem er grandvar og duglegur sjómaður um nokkurt skeið gert út aflamarkslausan bát sinn án þess að leigja kvóta af sægreifum. Fyrir vikið svipti Fiskistofa hann veiðileyfi sínu og hafa hótað honum. Hann lætur það sem vind um eyrum þjóta og mun fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu ef með þarf.

 Ásmundur er hetja sem berst gegn þjófnaði og mannréttindabrotum eins og hann orðar það og okkur borgurum landsins ber siðferðisleg skylda til að styðja hann í þessari baráttu. 


mbl.is Mótmælir kvótakerfinu með veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sá hann í sjónvarpinu um helgina, mér líst vel á kallinn.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 13:06

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þakka þér fyrir Ásdís, þú ert greinilega með gott hjartalag.

Sigurður Þórðarson, 14.7.2008 kl. 14:28

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Jæja! það eru til enn sannir Íslendingar. Mikið var. ég var orðin úrkula vonar..

Óskar Arnórsson, 14.7.2008 kl. 14:35

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Já Mannsi. Það eru enn til sannir Ísleningar sem hafa manndóm og sjálfsvirðingu til að neita að krjúpa í duftið og kyssa á vönd þeirra sem vilja brjóta mannréttindi.

Ég er að spá í að fara suðureftir og tala við kallinn og taka myndir.

Sigurður Þórðarson, 14.7.2008 kl. 17:15

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Hringdu í Ólaf Ragnar og spurðu hvort þú meigir ekki taka með þér eina fálkaorðu. Svona kallar eiga hana skilið..

Óskar Arnórsson, 14.7.2008 kl. 17:36

6 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Ég er sammála öllu ofanrituðu. Mér finnst Ásmundur frábær, en ég missti af fréttunum með honum svo myndir væru vel þegnar.

Marta Gunnarsdóttir, 14.7.2008 kl. 18:44

7 Smámynd: Rannveig H

Tek undir með ofanrituðum,endilega farðu og taktu myndir og spjallaðu við hann.Það væri gaman að fá fréttir hvernig framhaldið verður hjá þessari hetju.

Rannveig H, 14.7.2008 kl. 21:48

8 Smámynd: Jens Guð

  Ásmundur er hetja.  Alþýðuhetja.

Jens Guð, 15.7.2008 kl. 01:53

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl öllsömun og takk fyrir innleggin, Óskar, Sigurður, Marta, Rannveig og Jens.  Fór suðureftir í gær og hitti ekki á Ásmund þar sem hann var til sjós.

Landnáma greinir frá því að landvættir hafi fylgt Suðurnesjamönnum til róðra með góðum árangri. (bls. 193-198)  

Sjóferðabæn:
"Ég heiti á landvættir að fylgja nú þeim góða dreng Ásmundi Jóhannssyni í þennan róður, hann megi afla vel og kraftur þeirra megni að kvótakerfið leggist af, svo hjálpi mér Freyr, Njörður og hinn almáttki Ás". 

Sigurður Þórðarson, 15.7.2008 kl. 11:31

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Megi honum vel farnast.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2008 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband