Ólafur Ragnar "ofursendiherra"

Fáir ef nokkur Íslendingur hefur jafn víðtæk  alþjóðleg sambönd og forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar  Grímsson.  Ólafur kann að hafa verið umdeildur vegna skoðana en sannarlega ekki vegna  hæfni.

01indprezicelandprez

 

 

Forsetar Íslands og Indlands á Þingvöllum

 

 

 

 Dr. Ólafur hafði áður gegnt stöðu prófessors í stjórnmálafræði, verið formaður stjórnmálaflokks, þingmaður og ráðherra. Vegna starfa sinna í alþjóðasamtökum þingmanna hefur hann gríðarleg tengsl um allan heim. Þetta hefur greinilega komið fram í samskiptum við upprennandi stórveldi Asíu.

En Ólafur hefur líka ágæt tengsl í Mexikó en þar býr gamall vinur hans Róbert Guðfinnsson fyrrum stjórnarformaður Þormóðs ramma.

img_1057

 

 

 

Róbert Guðfinnsson á skíðum 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Samvinna Mexíkó og Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Forseti Ísland er mjög hæfur í sínu embætti. Það felst ákveðinn óvirðing í tali um hann sem "ofurforseta"! Eitt af hlutverkum hans er að hitta erlenda þjóðhöfingja. Berið virðingu fyrir honum. 

Hef aldrei vitað til að hann geri neitt annað en góða hluti. Forseti hefur leyfi til að hafa skoðanir. 'eg aðhyllist ekki hans skoðun að við eigum að vera með í Öryggisráði. Ber samt ótakmarkaða viðingu fyrir honum, bæði sem forseta og sem persónu.

Óskar Arnórsson, 12.3.2008 kl. 09:38

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þakka ykkur, sammála þér Mannsi, en ég verð að leiðrétta þig ég sagði ekki ofurforseti heldur "ofursendiherra" af því að við eigum nú svo mikið af þeim.

Ég er heldur ekki nærri alltaf sammála Ólafi Ragnari, t.d. varðandi öryggisráðið, kvótakerfið og fleira. Sennilega er ég sjaldnast sammála honum en finnst hann samt eins og sniðinn í embættið. Skrítið  

Sigurður Þórðarson, 12.3.2008 kl. 10:07

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl öll. Ólafur Ragnar hefur staðið sig mjög vel að kynna land og þjóð erlendis. Það flottasta við hann er að hann hefur veitt Ríkisstjórn Íslands aðhald alveg frá því hann tók við embætti og það er góð nýjung að mínu mati.

Ég óska Ólafi og Dorit blessunar Guðs og megi þeim farnast vel í þessu mikla ábyrgðamikla starf sem þau gegna fyrir okkur öll. 

Baráttukveðjur frá hjara veraldar.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.3.2008 kl. 10:39

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ólafur er minn forseti þó ég verði honum ekki ævinlega samferða þegar hann tekur til máls með hástigsblænum. Hann er glæsilegur fulltrúi þessarar örþjóðar í Atlantshafinu og vekur athygli vegna margþættar þekkingar og visku.

Ég er þér sammála þér Sigurður um það að hann er margra sendiherra maki.

En ósammála þeirri ályktun hans að umsókn til setu í Öryggisráðinu sé skynsamleg. Og skil ekki þetta með að það sé endapunkturinn á okkar sjálfstæðisbaráttu!

Heyrir ekki sjálfstæði okkar sögunni til innan fárra ára?

Árni Gunnarsson, 12.3.2008 kl. 11:12

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Hann var stjórnmálamaður áður en hann varð Forseti Siggi! Og það voru margir sem voru á móti því að stjórnmálamaður yrði forseti. En hann hefur svo sannarlega sannað hæfni sína sem Forseti Íslands.

Ég breytti þessu og sagði "ofurforseti" því Ólafur er ekki sendiherra. Það embætti er allt annars eðlis. Vil bara benda á þá viðingu sem mér finnst sjálfsagt að æðsti maður landsins á að fá frá þegnum sínum fyrir frábæra frammistöðu sína öll þessi ár.

Það eru kannski mistök af honum að láta skoðun sína fram opinberlega um Öriggsráðið.

En að sjálfsögðu hefur hann skoðun eins og annað fólk.

Ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir Forseta Íslands sem er landinu okkar til mikillar sóma og er ég stoltur af því að hafa hann sem þjóðhöfðinga okkar lands.

Óskar Arnórsson, 12.3.2008 kl. 11:48

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Duglegur kallinn bara, svei mér þá og Dorrit algjör Mína mús, svo mikið krútt!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.3.2008 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband