Kærubréf frá dauðvona konu

Óhæfilegur dráttur er skaðlegur fyrir neytendur sem treysta (kannski um of) á hið opinbera eftirlitskerfi sem að mestu er til málamynda. Eftirlíkingapakkarnir eru um þúsunkalli ódýrari en búðirnar fá samt meira fyrir að selja það en Rautt Eðalginseng að því að mér er sagt. Hvergi í heiminum nema á Íslandi eru til svona ferkantaðir pakkar með sama texta. Nafn Eggerts Kristjánssonar hf er ekki á pökkunum, engin heimasíða og ekkert símanúmer. Flestir hefðu ekki eytt tíma í málið en Solveig Björsdóttir var sárlasin, skítblönk og full af réttlátri reiði yfir að hafa verið svikin. Ég fletti því upp að hún lést 9. október. Blessuð veri minning hennar. Það að Solveig sendi mér þetta eftir að hún veit að hún er með banvænan sjúkdóm segir mér að hennar ósk var að sjónarmiði sínu væri haldið til haga eftir sinn dag. Og er það hér með gert.

Sigurður Þórðarson

 

260631_848759242_435237403_n

Frá Solveigu Björnsdóttur:

Datt í hug að þig langaði að sjá hvað ég sendi Jóhannesi og fleirum hjá Neytendasamtökunum (þ.á.m. lögfræðing þeirra og fleirum)

Góðan dag. Solveig heiti ég og bý í Vík í Mýrdal. Ég er með fyrirspurn og sendi á ykkur öll og vonast eftir svari og enn betra ef að það yrði litið á málið. ;o) Þannig er að ég er langveik og meðal þess sem að ég þarf virkilega á að halda er styrkurinn sem að ginseng gefur mér. Ég er búin að prófa nokkrar gerðir og búin að finna það sem að virkar og það er Rautt eðal ginseng. EN vandamálið er að þetta fæst ekki hér í Vík en þar sem að ég er oft í Reykjavík vegna læknastúss að þá hef ég nú yfirleitt birgt mig upp en lenti í því fyrir ekki löngu að mig vantaði orkuna mína svo að ég hringdi í mömmu mína sem að býr í Reykjavík og bað hana um að kaupa fyrir mig ginseng. Ég lýsti pakkningunni fyrir henni.. Kassi sem er rauður og gylltur og stendur á ginseng.. Ekkert flókið fannst mér. Nú svo barst pakkinn og ég horfði á gyllta og rauða kassann og jú hugsaði með mér að það væri eitthvað búið að breyta pakkningum en velti því ekkert meira fyrir mér og byrjaði að taka mitt eðal ginseng. En það barasta virkaði ekki almennilega eins og áður! Ég fór að skoða betur og þetta er eitthvað allt annað ginseng og ekki það rétta. Mamma er eðlilega miður sín yfir að hafa keypt vitlaust en hvernig átti hún að geta annað en ruglast þegar að umbúðirnar eru nánast eins og ekki bara það heldur er þeim stillt upp nánast við hliðina á því sem að greinilega fyrirmyndin. Má hafa umbúðirnar svona líkar og má hafa þetta svona hlið við hlið nánast? Þó að ég þurfi að borga aðeins meira fyrir hið rétta að þá geri ég það með glöðu geði því að gæðin eru mun meiri. Er ekki sátt við að hafa eytt aurum í töflur sem að gera ekki sama fyrir mig og hinar eingöngu vegna þess að umbúðir eru svipaðar. Þegar að ég áttaði mig á þessu að þá skyldi ég athugasemd vinkonu um að þetta gerði ekkert fyrir hana því að ég hafði jú sagt henni frá þessum umbúðum og hún hafði keypt.. Ég spurði hana nánar um þetta og jú hún hafði eins og mamma keypt gyllta og rauða kassann.... En það var bara ekki rétt tegund. Humm líklega ósáttari en að ég hélt að ég væri því pósturinn er orðinn langur en fyrir manneskju eins og mig sem að er að fást við alvarleg veikindi og þarf alla þá hjálp sem að ég get fengið að þá er frekar fúlt að lenda í svona bara vegna blekkjandi útlits. Enn og aftur.. Má gera umbúðir svona líkar þegar um lakari vöru er að ræða? Kær kveðja

Svar Neytendastofu: • Sæl Sólveig, Það er mál til meðferðar hjá Neytendastofuvegna þessara umbúða sem kvörtunin þín snýr að. Þegar það verðurkomin niðurstaða í málið verður hún birt á heimasíðu stofnunarinnar. Bestu kveðjur / Best regards, Þórunn Anna Árnadóttir Sviðsstjóri neytendaréttarsviðs Neytendastofa / Consumer Agency Borgartúni 21, 105 Reykjavík S./tel: + (354) 510 1100 Bréfsími/fax: + (354) 510 1101 www.neytendastofa.is 16. apríl 2012


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er bara skelfilega sorglegt, og afar leitt að fá þetta sent svona eiginlega að handan.  Það þarf að hnykkja á þessu máli við neytendastofnun. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2012 kl. 17:08

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það ætti að leggja þessa stofnun niður Ásthildur

Sigurður Þórðarson, 21.11.2012 kl. 20:19

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sennilega rétt hjá þér Sigurður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2012 kl. 20:31

4 identicon

Heill og sæll Sigurður æfinlega; sem og aðrir gestir, þínir !

Enn eitt dæmið; um andstyggilegheit íslenzka stjórnkerfsisins, og beztu þakkir til þín, fyrir að vekja máls, á þessarri hörmulegu frásögu, hinnar gengnu Skaftfellzku konu.

Á ekki til orð; yfir vinnubrögð svokallaðrar Neytendastofu, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.11.2012 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband