Færsluflokkur: Trúmál

Guð láti gott vita

Það er gott til þess að vita að ásatrúarmenn, sem og aðrir landsmenn beri góðan hug til Landhelgisgæslunnar.
mbl.is Ásatrúarmenn gefa í þyrlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brýn nauðsyn að Ísland segi sig úr Schengen

Brýna nauðsyn ber til þess að Ísland segi sig úr Schengen og taki aftur upp landamæraeftirlit áður en stórslys hlýst af.  Lögreglan vill taka upp landamæraeftirlit aftur enda hvaða vit er í því að ytri landamæri Íslands, sem er eyja, séu varin í Búlgaríu og Litháen?  Þessu rándýra og furðulega fyrirbrigði var þá komið á í nafni fjölmenningar og Evrópusamstarfs.
mbl.is Húðflúra strikamerki á vændisþræla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geithafri fórnað?

Lilja Mósesdóttir segir á Feisbók sinni að VG og Samfylking hafi keppst við að gefa veiða atkvæði út á innihaldslaus loforð um breytingar á kvótakerfinu. 

Til að hilma yfir þetta viljaleysi er líklega nauðsynlegt að fórna geithafri eins og gert var til forna.

Jón Bjarnason var nógu hrekklaus til að ganga í gildruna.


mbl.is Hlýtur að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa farið með Jón

Þeir sem þekkja Jón Bjarnason vita að þar fer góður sveitadrengur og sauðmeinlaus enda var hann settur yfir landbúnaðar- og sjávarútvegsmálaráðuneytið.

 Ríkisstjórnin hafði náð kosningu með því að  lofa að breyting yrði gerð á sjávarútvegsmálum, kvótann átti að afnema á 20 árum og afnema veðsetningar á óveiddum fiski. Þessu var ekki hægt að ná fram þannig að allir yrðu sáttir.

Nú hefur viðsjálverður ráðgjafi Jóns platað hann til þess að fresta öllum breytingum þar til hann verður níræður.  Þetta er ekki fallega gert, hvorki gagnvart Jóni né þjóðinni.


mbl.is Kvótafrumvarpið mikið breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ & breska alþýðusambandið

Breska alþýðusambandið er aðili af Breska verkamannaflokknum en þó að ASÍ eigi ekki beina aðild að Samfylkingunni þá er skeggið skylt hökunni.  Einnig má minna á að meðal núverandi og fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar er eru meðlimir Breska verkamannaflokksins t.a.m. Björgvin Sigurðsson og Össur Skarphéðinsson, sem attu sæti í Hrunastjórninni.
mbl.is Gerir athugasemdir við málflutning ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður ríkisstjórnin að endurnýta gamlan hræðsluáróður

Nú verður ríkisstjórnin að fletta upp í gömlum ruslafötum til að finna hræðsluáróður sem hægt er að endurnýta. 
mbl.is Undrast mjög ákvörðun forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er dauð hjálparhönd betri en engin?

Útrásarvíkingarnir óþjóðhollu reka öflugan áróður fyrir Bjarna Benediktsson í fjölmiðlum sínu. Geir Haarde rétti honum nábleika og ískalda hjálparhönd.  Hvað ætli Hermundur Rósinkrans segi um þetta?


mbl.is Geir styður Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið vill halda viðræðunum áfram.

Leiðari Fréttablaðsins í dag er með hefðbundnu sniði, hvatt til innlimunar Íslands í ESB og t.a.m. vitnað í skoðanakönnun sem blaðið lét gera. Hlutlausar kannanir sýna að mikill meirihluti Íslendinga vill ekki í Sambandið en allir leiðara- og pistlahöfundar Fréttablaðsins verja mestum kröftum sínum í að prédika innlimun landsins í EB. Fréttablaðið er hluti af 365, sem ekki er rekið með hagnaði. Því er tilgangurinn með útgáfu blaðsins sé augljós.


mbl.is Meirihluti vill halda viðræðum áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB setur löndunarbann

Varaformaður sjávarútvegsnefndar ESB: "Gríðarmikið magn miðað við að þjóðin er aðeins 320 þúsund manns"
mbl.is Tilkynnt um löndunarbann á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja spyrða Ísland við sökkvandi skip?

Betra að fara í flotgalla en að binda á sig sökku áður en menn hoppa í sjóinn.

Af hverju að sækjast eftir evru þegar það liggur fyrir að hún er feigðarflan?

 


mbl.is Telja ólíklegt að evran lifi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband