Pétur Blöndal mun verja ríkisstjórninna falli

Látið hefur verið að því liggja að ríkisstjórnin gæti fallið ef Icesave samningarnir yrðu fellir. Þannig hefur verið settur óeðlilegur þrýstingur á fáeina þingmenn VG sem vilja eiga það við samvisku sína hvaða afstöðu þeir taka í málinu. Þetta er óheppilegt því málið er af þeirri stærðargráðu að best væri að þjóðin stæði saman sem einn maður.

Nú hefur Pétur Blöndal afdráttarlaust lýst því yfir að hann muni verja stjórnina falli berist vantraust á hana vegna málsins. Ásbjörn, Ragnheiður Ríkharðsdóttir  og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tekið í sama streng.  Vonandi getur þingheimur sammælst um það að ræða málin af yfirvegun og láta ekki koma til stjórnarslita. 


mbl.is Skoða Icesave-gögn í lokuðu herbergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Pétur Blöndal,fer eftir sinni sannfæringu og lætur ekki einhver segja sér hvað hann eigi að gera,það mættu fleiri hugsa svona,hagsmunir þjóðarinnar eru ofar hjá honum heldur en eigin uppgangur,þetta á nú ekki við marga,sjáið hvað Ögmundur er að gera,??hann er mótfallin þessum skuldbindingum okkar,en hann ætlar að sjá hvort ríkisstjórnin mun falla ef hann fer eftir sinni sannfæringu ef það mun skipta höfuðmáli hans atkvæði,nú þá mun hann kjósa gegn sinni sannfæringu,allavega er ekki hægt að skilja hann öðruvísi,hann vill sjá hvernig landið liggur áður en hann kýs,er þetta eðlilegt og traustvekjandi,??NEI það er það ekki. kær kveðja. konungur þjóðveganna.

Jóhannes Guðnason, 3.7.2009 kl. 08:45

2 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Ætlar hann þá að greiða atkvæði með eða á móti? Stjórnin er sjálf-fallin ef samningurinn fellur. Það getur engin stjórn stýrt eftir það hvort sem er. Verk næstu stjórnar yrði að skríða á fjórum fótum fyrir öllum heiminum og biðjast vægðar. Það yrði þokkalegegur fjandi að horfa uppá þá algeru niðurlægingu.

Gísli Ingvarsson, 3.7.2009 kl. 09:32

3 identicon

Undarlegt, ég held einmitt að fólk myndi fara að langa í fisk áður en okkur fer að vanta nýja bíla og kornflakes.

Við veiðum í matinn fyrir margar miljónir manns á vesturlöndum og erum með yfir 1% af álframleiðslu í heiminum.

Meðan við getum ennþá veitt í matinn fyrir okkur og ennþá borðað lambakjöt þá erum við ekkert að fara að svelta.  Held líka að Íslenskt þjóðfélag hefði gott af því í nokkur ár að líða skort.

Magnús Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 13:18

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gísli, láttu ekki eins og þú skiljir þetta ekki. 

Magnús, við erum skuldugasta þjóð í heimi. Skuldugasta þjóð í heimi þarf ekki lán, hún þarf að borga lán. 

Sigurður Þórðarson, 3.7.2009 kl. 18:04

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk Sigurður fyrir þessa ágætu speki "Skuldugasta þjóð í heimi þarf ekki lán, hún þarf að borga lán" og takk Pétur Blöndal fyrir að taka þjóðina fram yfir skotgrafahernaðinn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.7.2009 kl. 18:56

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Jakobína, þegar heilt þjóðfélag, þ.m.t ráðamenn  og helstu álitsgjafar eru í afneitun getur hið augljósa hljómað eins og einhver djúp speki.

Í sögunni um Nýju fötin keisarans var ungi drengurinn ekki með djúpvitra speki en hann sá  og sagði hið augljósa.  Ef Ísland hefði haft slæmt lánshæfismat stæðum við ekki í þessum sporum.  Kannski myndi slæmt lánshæfismat núna bjarga því sem bjargað verður?

Sigurður Þórðarson, 3.7.2009 kl. 20:01

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Fer lánshæfismat ekki greiðslugetu? Lámarksframfærslukostnaður í EU alþjóðsamfélagi ofurfínu elítukynþáttanna er hann ekki í Rúmeníu? Hvað ætli sé í lágvörukröfunni þar?  Þarf ekki að fækka aðilum í eignarhaldsamkeppni svo þeir sem eftir eru geti grætt til að borga hátekjuskatta?  Við getum lagt öllum bílum og lappað í lágvöruna.

Tóku gömlu bankaútibúin  heima og erlendis á sig skuldir stærstu eignarhaldsstarfseminnar ef svo eru við að tala um 1500 milljarða í dag?   

Aðalkostnaðurinn við lágvörustarfsemi er að hún bindur lítið fjármagn: lítill lager og ódýrt húsnæði. Auðvelt að leggja niður ef skuldir er farnar að vinda upp á sig. Í síðustu þjóðarsátt koma Bónus og EFTA aðild að EU á móti 30% launaskerðingu um 70%. þjóðarinnar. Nú  þegar áherslan er hinum 30% og innlimun er tryggð með Iceslave  þurfum við þá ekki ódýrari lávöruverslun? Bónus Bónus verslun? Þýski neytendamarkaður hélt því fram að óeðlileg samkeppni [nýtt? fákeppni í eignarhaldi] myndu neytendur alltaf borga þegar upp væri staðið. Böggull fylgir skammrifi. [nýtt? Æ sé maka gjöf að gjalda]. 

 Hverfisgata 1. er á svæði 101. Þar eru skammtímalausnir ódýrastar.

Langtímalausir eru ekki allra. 

Júlíus Björnsson, 4.7.2009 kl. 16:54

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

þá myndu neytendur alltaf borga þegar upp væri staðið.

Júlíus Björnsson, 4.7.2009 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband