Keppni í að fá að gefa fiskimiðin?

Þeir sem eiga fjölmiðlanna vilja koma Íslandi í  ESB,  það er samt broslega barnalegur áróður að búa til "frétt" þar sem látið er að því liggja að Ísland sé í keppni við Króatíu um að fá að vera númer 28. Rómarsáttmálinn kveður á um að fiskistofnar skuli lúta sameiginlegri stjórn. Undanþágur sem nást með samningum geta einungis verið tímabundnar. Olli Rehn, sá sem stjórnar keppninni hefur sjálfur sagt að Íslendingar geti ekki fengið verulegar undanþágur. Reglugerðum sem kveða á um veiðireynslu má breyta hvenær sem er.   Mig langar að  koma þeirri ábendingu til blaðamannsins að spyrja Samfylkinguna að því af hverju hagvöxtur er svona lágur í ESB eins og taflan sýnir.

euyvuld

 

 

 

 

Viðtal við keppnisstjórann má heyra hér


mbl.is Ísland gæti keppt um að verða 28. ríki ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri Jón, þú ert svo rækilega forritaður í ungliðadeild Samfylkingareinnar að þú hefur ekki lesið færsluna mína, sem þú þó myndast við að svara. Ég ráðlegg þér að kynna þér fiskveiðistefnu ESB ef þig langar að vera viðræðuhæfur innan um aðra en samfylkingarmenn.

Sigurður Þórðarson, 10.12.2008 kl. 13:52

2 Smámynd: Methúsalem Þórisson

Já Siggi;  mergurinn málsins er að fréttamenn og miðlar í versta falli áróðursmenn fyrir þá sem völdin hafa og í besta falli heilalausir aular sem fylgja bara með straumnum. 

Methúsalem Þórisson, 10.12.2008 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband