Nýtur Árni Mathiesen trausts?

Búast má við að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setji Íslendingum óaðgengileg skilyrði og jafnvel afarkosti. Reiknað er með því að sjóðurinn taki eindregna afstöðu með Bretum í deilu þeirra við Íslendinga og muni krefjast þess að við semjum við  þá. Þá er ekki ótrúlegt að sjóðurinn krefjist þess að Íslendingar selji náttúruauðlindir sínar. Því er spurt hvort menn treysti Árna, óvinsælasta ráðherra Íslands til að fara með samningsumboð okkar? Árni hefur átt í vök að verjast eftir að Darling tók upp á því að vitna í tveggja manna tal. Árni er með upptöku af samtalinu og ætti ekki að hika við að birta hana og afhjúpa þannig smekklaus ósannindi breska ráðherrans. Það kann heldur ekki góðri lukku að stýra að meðlimir Breska verkamannaflokksins fari með málið fyrir okkar hönd.
mbl.is Fundað stíft með IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Finnbogason

Ef árni á þessa upptöku er hægur leikur að leka henni.... Ef upptakan er einsog Árni segir

Sævar Finnbogason, 13.10.2008 kl. 00:20

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég er með blæti gagnvart öllum 'áddnum' í pólitík.

Ætti hreinlega að banna öllum slíkum nöfnum að fá að vera í kjöri, í ljózi reynzlunnar,

Bara mín frjálzlynda skoðun, Siggi minn.

Steingrímur Helgason, 13.10.2008 kl. 00:56

3 Smámynd: Johann Trast Palmason

Árni hefur ekki notið trausts um langt skeið, þetta er brandari.

Aldrei aftur X-D.

Johann Trast Palmason, 13.10.2008 kl. 01:01

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Skoðum nú hvað vinir vorir Rússar hafa að bjóða! EKKERT IMF RUGL!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.10.2008 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband