Færsluflokkur: Dægurmál

Maðurinn barði ekki sambýliskonu sína

Ég var gabbaður til að lesa þess annars leiðinlegu frétt af því að ég hélt að hún fjallaði um krassandi hjónaerjur.  Við lestur fréttarinnar kom í ljós að um var að ræða "hjaðningarvíg" fyrrverandi pars sem líklega hefur verið í verulegri óreglu en á barn saman. Barnsins vegna vona ég að konan finni betri félagsskap en þennan óreglusama og ofbeldisfulla ræfil.
mbl.is Barði sambýliskonu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Löglegt en siðlaust"

Forseti Íslands hefur tvisvar sent lög sem samþykkt voru á alþingi við Austurvelli til þjóðarinnar sem hafnaði þeim með afgerandi hætti. Með þessu beindi þjóðin málinu í réttláta dómsmeðferð.

Fulltrúalýðræðið er augljóslega stórgallað eins og best hefur komið fram í vanhelgu bandalagi stjórnmála- fjölmiðlunar og atvinnulífs. Það er nokkuð ljóst að kvótakerfi, einhverskonar lénskipulag, í sjávarútvegi hefði ekki verið samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Í þessu samhengi er umhugsunarefni að mikill meirihluti stjórnmálastéttarinnar skuli enn og aftur hugleiða lagaklæki til að sniðganga skýran vilja þjóðaratkvðagreiðslu um Æsseif.


mbl.is Óvíst um forræði í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóherinn tekur (bítla)-lagið


Átti ekki Ísklafinn að skapa traust?

fjlskylduhjlp__jpg_550x400_q95Yfirlýstur tilgangur með því að smokra Ísklafanum á herðar komandi kynslóða, sem þær fá ekki risið undir var að skapa traust. 

Nú þegar Steingrímur og Jóhanna eru bjartsýn á að koma Ísþrælafrumvarpinu í gegn um þingið lækkar lánshæfismatið niður í E flokk. Lá það ekki alltaf fyrir?  

 

 Myndin er tekin í Fjölskylduhjálpinni

 


mbl.is Ísland fær lægstu einkunn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrt spaug að vera ekki í nærbuxum!

Kona nokkur vestur í Ameríku kíkti inn um eldhúsglugga og sá í typpi húsráanda sem var aleinn heima, allsber og nývaknaður að hella hella sér uppá kaffi. Þetta hefði líklega ekki verið tiltökumál nema vegna þess að konan var í meira lagi siðsöm og var í fylgd með 7 ára gömlum dreng sem hefur líklega aldrei farið í almenningss. Konan sá sér ekki fært annað en kæra manninn sem nú býður eins árs fangelsi.

 Þetta rifjar upp frásagnir af siðgæðislögreglunni í USA á tímum Macharty sem lá á gluggum manna sem grunaðir voru um "kynvillu". Ef grunsemdir voru rökstuddar fékk lögreglan húsleitarheimild til að afla sannana um að viðkomandi svæfu í sama rúmmi, sem dugði til sakfellingar.


mbl.is Handtekinn fyrir að hella upp á kaffi berrassaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Báðir hóparnir mótmæla eignaspjöllum

 Á Íslandi hefur  um nokkra hríð ríkt spilling og siðleysi með þeim afleiðingum að Íslendingar eru langskuldugasta þjóð veraldar. Flestir hagfræðingar eru sammála um að allt hafi þetta byrjað með kvótakerfinu.  Allir mótmælendur eiga það sameiginlegt að mótmæla eignaspjöllum. Stærstu mótmælin eru auðvitað mótmæli almennings gagnvart þeim stjórnvöldum sem hafa gert Ísland gjaldþrota hvort sem það hefur verið gert með vilja eða fyrir gáleysi. Þau mótmæli hafa góðu heilli farið ótrúlega friðsamlega fram og er það vel. Á því eru nokkrar undantekningar og full ástaða er til að mótmæla þeim líka og koma í veg fyrir  að slík mistök endurtaki sig. Það er örugglega best gert með öflugri og virkri samvinnu lögreglu og forystu mótmælenda. Þess sjást nú merki að mótmælin séu byrjuð að skila sér en vel að merkja ekki fyrr en meiri harka hljóp í þau, hvort sem menn flokka það sem tilviljun eða ekki.  Þannig virðist hik komið á stjórnvöld að afskrifa skuldir velþóknanlegra. Ennfremur hafa flestir fallist á kosningar og einn ráðherra hefur sagt af sér. Fregnir eru af að hundruð og jafnvel þúsundir milljarða af illa fengnu fé hafi með vitund stjórnvalda verið flutt í öruggt skattaskjól. Þetta er útilokað að rannsaka nema ný stjórnvöld komi að málum.

Burt með spillingaliðið hvar í flokki sem það stendur.

Áfram Ísland

 

hannesholmsteinn2

 

 

 

 Ráðsmaður í seðlabankanum fylgist áhugasamur með mótmælum.


mbl.is Mótmælt á tveimur stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Vilhjálmur

Mig langar að óska Vilhjálmi Bjarnasyni innilega til hamingju með sigurinn í héraðsdómi. 1003561Þessi sigur er ekki bara persónulegur sigur fyrir Vilhjálm heldur skerpir hann á leikreglum í hlutafélögum þannig að reistar eru skorður við því hvernig stjórnarmenn ráðstafa eignum til að þeir geti ekki mismunað hluthöfum. Eftir þennan dóm ætti að vera fýsilegri kostur fyrir minni fjárfesta að leggja fé i atvinnustarfsemi.

 

Vilhjálmur Bjarnason


mbl.is Gætu þurft að greiða út 35 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir telur ólíklegt að honum hafi orðið á

c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_traust_efnahagsstjorn_geirsGeir telur frekar ólíklegt að honum hafi orðið á.

Setur þó þennan varnagla:

„Hafi mér orðið á þá þykir mér það leitt,“

Það stefnir því allt í að auglýsingin verði notuð áfram. 


mbl.is Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðni Ágústsson í stuði á Kanarí sjá mynd!

c_documents_and_settings_administrator_dokumenter_billeder_bar_de_los_hombres Guðni Ágústsson hvílir sig á sorg og sút hér á Fróni og er í miklu stuði á Kanarí eins og myndin sýnir. Eins og sést á náttbuxum unga mannsins virðist hann heillaður af Guðna. En ég held að Guðna lítist ekkert á þennan flagara.

Endurkoma Davíðs í pólitík

Davíð er háll sem áll og kann að koma fyrir sig orði og það má með sanni segja að hann hafi átt sviðið í morgun. Ríkisstjórnin getur sig hvergi hreyft því Davíð hótar endurkomu í pólitík og það er ekkert sem ríkisstjórnin óttast meir. Þá hefur hann upplýst að hann hafi margvarað ríkisstjórnina við bönkunum en hún hafi ekki hlustað. Að lokum hæðist hann að ríkisstjórninni með því að bera fyrir sig bankaleynd en almenningur var reyndar féflettur í skjóli bankaleyndar af útrásarvíkingunum, sem Davíð varaði við. Davíð hefur nú áttað sig á að kvótakerfið er komið í öngstræti og því hefur verið látið að því liggja að hann telji sig geta átt samleið með Frjálslynda flokknum og jafnvel tekið að sér að leiða hann.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband