Borgarstjórinn brettir upp ermar fyrir vorhreingerningar

20-10-2002-4812 Margrét Sverrisdóttir, getur tæplega leynt reiði sinni þar sem hún situr á launum sem varaborgarfulltrúi F-lista Frjálslynda flokksins og bíður þess nánast úrkula vonar að Ólafur F. Magnússon veikist. En ólíkt hafast þau að: Borgarstjórinn er ekki fyrr búinn að hleypa af stokkunum skipulagðri áætlun um að gefa miðborginni langþráða andlitslyftingu, eftir margra ára niðurníðslu, þegar hann fer fyrir sínum mönnum til vorhreingerninga í höfuðborginni, á björtum sumardegi. Borgarstjórinn er sólarmegin í lífinu, ég óska honum langlífis og góðrar heilsu. Þess vegna ætla ég að færa honum Rautt eðalginseng næst þegar ég hitti hann.

mbl.is Hreinsunarátak í höfuðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Guðlaug og gleðilegt sumar! 

Já við höfum örugglega öll taugar til miðbjarins okkar. 

Sigurður Þórðarson, 26.4.2008 kl. 17:15

2 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Sæll félagi.Þú seigir að Margrét bíði eftir því að sá flokkslausi veikist en er hann ekki veikur.

Guðjón H Finnbogason, 26.4.2008 kl. 21:10

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Erlingur, þú átt að segja gleðilegt sumar, það ætla ég að segja við þig í það minnsta. Sumardagurinn fyrsti er séríslenskur og ekki bara það, hann hefur að öllum líkindum verið haldinn hátíðlegur amk frá því um landnám.  Í heiðnum sið bar mannfagnaði ávalt upp á Þórsdegi. Svo var einnig að sjálfsögðu um sumardaginn fyrsta.  Gleðilegt sumar Guðjón, ég var eitt sinn hjá Landhelgisgæslunni eins og þú og ber hlýhug til þeirrar stofnunar. Sæll Gulli og gleðilegt sumar. Reykjavíkurborg er stærsti vinnuveitandi hér í þéttbýlinu og því er í mörg horn að líta fyrir borgarstjóra sem tekur hlutverk sitt af ábyrgð og því vinnur hann langan vinnudag.  Á þessum stutta tíma getur þú strax séð mun á miðbænum. Líttu svo aftur niður í bæ eftir einn og hálfan mánuð.

Sigurður Þórðarson, 26.4.2008 kl. 21:58

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn.

Ólafur er til sóma og mér finnst hann eigi að klára kjörtímabilið sem borgarstjóri. Sá hann í sjónvarpinu og hann geislaði af gleði. Engin veikindi þar Guðjón. Hann hefur fengið bata. Kíktu á síðuna mína og sjáðu síðustu þrjár færslur. Einu sinni veikur í þínum huga = alltaf veikur. Ó nei sem betur fer er það nú ekki þannig. 

Tími til kominn að bretta upp ermarnar eins og Ólafur. Tími til kominn að  fara að berjast við þessa siðblindu ríkisstjórn sem virðist svífa um á bleiku skýi eftir að þau Geir og Ingibjörg Sólrún fóru í eina sæng. Tími til kominn að heimta að þau fari að vinna fyrir kaupinu sínu. Forgangsraða hlutunum þannig að mannfólkið sé í fyrirrúmi og niðurskurð á snobbi, takk fyrir.

GLEÐILEGT SUMAR.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 26.4.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband