Ingibjörg Sólrún fær prik fyrir þetta.

Það er gott að Ingibjörg Sólrún skuli hafa gefið sér tíma frá kapphlaupinu um að komast í öryggisráðið til að bera hönd fyrir höfuð íslensku bankana. Ingibjörg getur verið skeleggur og öflugur talsmaður þeirra sjónarmiða sem hún berst fyrir. Ég er aftur á móti ekki sammála henni um að okkur sé best borgið í Evrópubandalaginu. Ekki bara vegna þess að það muni rústa sjávarútveginn, heldur vegna þess svigrúms sem við höfum utan þess t.a.m. fyrir bankana.  Talið er að sá mikli uppgangur sem verið hefur í fjármálalífi Írlands og Luxemburg sé brátt á enda vegna þess að Efnahagsbandalagið muni brátt samræma skattastefnu sína.  Í því gæti falist mikil tækifæri fyrir íslenska banka. landsbanki1

kaupthing_bank_logoGlitniringibjorg


mbl.is Dönsku bankarnir keppa við þá íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það lítur ekki út fyrir að ávarp utanríkisráðherra eða árás Sigurðar Einarssonar á þá dönsku hafi fallið í góðan jarðveg. Danska Berlingske Tidende 12/3 kallar fundinn”hör-nu-her-for-fanden-konference” í Kaupmannahöfn.

 Sjá: www.business.dk/article/20080312/finans

 

Kassandra

Kassandra (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 12:02

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir þetta Kassandra. Greinin er af einhverjum ástæðum farin, ég tók líka eftir því í morgun að hvorki útvarpið né vefmiðlar gerðu þessu skil. Ég vil vera jákvæður, vona það besta og sjá til, í versta falli tökum við viljann fyrir verkið og reynum betur næst.

Sigurður Þórðarson, 14.3.2008 kl. 12:16

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Jákvæðni borgar sig Siggi! Gott innlegg hjá þér eins og venjulega..

Óskar Arnórsson, 14.3.2008 kl. 12:22

4 identicon

 Hör-nu her-för-fanden-konference

http://bosserne.blogs.business.dk/2008/03/12/en-vred-bankmand-fra-island/

 Kassandra

Kassandra (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 12:26

5 identicon

 Allt er thegar thrennt er: hér er rétta netfangid!!!

www.business.dk/article/20080312/finans/80312170

 Kassandra

Kassandra (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 13:07

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk, búinn að lesa.

Sigurður Þórðarson, 14.3.2008 kl. 13:50

7 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Elsku Siggi sæti. Þú hefðir getað haft flottari mynd af Ingibjörgu Sólrúnu. Hún er flott kona enda vildi Geir Haarde fara með henni heima af ballinu. Ég er ekki sammála Ingibjörgu Sólrúnu með ESB og öryggisráðið. Þannig er það nú bara. Baráttukveðjur frá hjara veraldar.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 14.3.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband