Til hvers að vekja úrillan hund?

Finnski sendiherra ESB á Íslandi sagði í viðtali við Fb að hann
óttaðist að samband Íslands við ESB myndi súrna ef til þess kæmi að
þjóðin hafnaði samningnum.   Með aðildarumsókn var Ísland að gefa Evrópusambandinu ádrátt um að það geti fengið fiskveiðilögsöguna. Viljum við auka þessar falsvonir þeirra? Því er ljóst að þessi misráðna umsókn mun í
öllu falli skaða Ísland og því meir sem það er dregið að draga umsóknina til baka.
mbl.is ESB þjarmar að Færeyingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessi finnski sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Summa diplómatískra lasta, er hann ennþá hér?

Sá ætti nú að hypja sig, við höfum ekkert með slíkar moldvörpur að gera.

Jón Valur Jensson, 18.5.2013 kl. 14:31

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gunnar Einarsson vinur okkar hitti hann 8. maí (Evrópudeginum) í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem hann bauð upp á snittur og áfengi.

Sigurður Þórðarson, 18.5.2013 kl. 14:49

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Tíðarandinn breytist.  Nú duga ekki lengur glerperlur.  Snittur og áfengi er krafa nútímans.

Hverjir ætli hafi annars mætt í Ráðhúsveislu "sendiherrans"?  Fyrir utan Gunnar - auðvitað...

Kolbrún Hilmars, 18.5.2013 kl. 15:09

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ef til þess kæmi? Já, það er bara það....

Árni Gunnarsson, 18.5.2013 kl. 21:18

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þarna voru saman komnir helstu postulínshundar embættismannakerfisins, evrópusambandsdindlar og sendiherrar. "Ekki hótun, heldur vinsamleg aðvörun."

Sigurður Þórðarson, 19.5.2013 kl. 18:21

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Viðskipti er stríð og hernaðarhyggja milli keppnis aðila.  Til samans er Meðlima- ríki í samkeppni gegn ríkum USA og Kína t.d.
Finnar vilja  lækka Meðlima-Skatta. Sendiherrann á að vinna að lækkun verða í grunni.   það er verið að viðhalda umræðum sem eru óþarfar.   Hvað vill EU tryggja sé mikið af hráefnum og orku hér stöðugt næstu 30 ár, og á að verðtyggja miða við gengi á Dollar, eða pundi eða evru.  EU veit hvað hún þarf í verðstöðuleikagrunninn fyrir Milljónaborgirnar, sem selja aðgang dýrt í samræmi.  EU vill borga með vörum [Atvinnuleysi í EU] það er spurning hvað við kaupum á móti fast. Mér finnst lávirðið í EU yfirleitt óætt og drasl. Íslendingar  sem eru óánægðir með EES geta líka sagt regluverkinu upp, þar sem Formleg aðild er færsla úr hlutdeildar lögsögu  EU II yfir í Lögsögu  1. Á Ísland val til að þurfa ekki að sæta afarkostum í langtíma viðskiptum gagnvart Umboðsstjórn í Brussel.

Júlíus Björnsson, 20.5.2013 kl. 14:07

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hver er þessi "Gunnar Einarsson vinur okkar," Sigurður?

Jón Valur Jensson, 20.5.2013 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband