Færsluflokkur: Sjónvarp
Var það dýralæknir eða seðlabankastjóri? Hvað gera landvættirnar?
Fimmtudagur, 9. október 2008
Atburðir í Bretlandi felldu Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvor ráðherrann fer með rétt mál Geir eða Björgvin?
Mánudagur, 6. október 2008
Ekki þörf á aðgerðapakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sendiherrar sendir með betlibauk til Norðurlandanna!
Sunnudagur, 5. október 2008
Nú er loksins búið að finna hlutverk fyrir a.m.k. hluta af þeim mörgu tugum sendiherra sem þeir Davíð og Halldór skipuðu, hvor um sig, ýmist til að launa frændsemi eða pólitíska vináttu og hafa verið aðgerðalausir síðan: Þeir eiga að fara strax á mánudaginn með betlibauk til stjórnvalda í hverju Norðurlandanna fyrir sig. Sendiherranrnir eru mjög glaðir yfir þessu enda þreyttir á aðgeraleysinu.
Biðlað til helstu vinaþjóða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skelfilegur sunnudagsmorgunn: Timbraður heimilisfaðir ásælist sparifé barnanna!
Sunnudagur, 5. október 2008
Hvað finnst ykkur um að ríkisstjórnin fari að spila með þvingaðan lífeyrissparnað landsmanna? Er þetta ekki hættulegt fordæmi? Það finnst mér enda er hlutverk lífeyrissjóðanna eingöngu að tryggja framfærslu sjóðfélaga sinna. Þarna minnir ríkisstjórnin mig á drykkfelldan heimilisföður sem sér í örvinglan ekkert annað ráð en að "fá lánaðan" sparibauk barnanna sinna sem höfðu vaknað fyrir allan aldur til að bera út Morgunblaðið til að eiga fyrir skólabókum. Peningana vill drykkjurúturinn nota til að rétta sig af og fá lánuð kjólföt til að fá að þjóna til borðs í fína öryggisklúbbnum.
Heimilisfaðirinn vaknar nakinn,blankur og þunnur í forstofunni á sunnudagsmorgni. Óttaslegin og meðvirk börnin koma með sparibaukinn.
Rætt við norræna seðlabanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Á kepputímum eykst drykkjuskapur og geðveiki
Laugardagur, 4. október 2008
Á krepputímum eykst drykkjuskapur og geðveiki. Hjá Íslendingum kemur þetta fram í gríðarlegri aukningu á framlögum til veisluhald, sendiráða og öryggisráðsrugli ríkisstjórnarinnar.
Í þessari kreppu kristallast hið fornkveðna "Hollur er heimafenginn baggi". Menntakonunum í Samfylkingunni finnst vond lykt af slori, þær vilja heldur hreiðra um sig í mjúkum hægindastólum öryggisráðsins og leyfa Árna að splæsa með því að samþykkja víxil með fallegum sjálfblekung sem geymdur er í innri jakkavasanum, vinstra megin.
Það eru til 3 lausnir: Afla meir, spara eða að taka lán. Ríkisstjórnin vill einungis skoða síðasta kostinn. Sagt er að neyðin kenni nakinni konu að spinna. Vonandi verður þessi kreppa til þess að ráðamenn átta sig á því að gríðarlegir tekju- og hagvaxtarmöguleikar felast í hafinu umhverfis landið. Ef ríkisvaldið myndi afnema reglur sem þvinga sjómenn til að henda fiski myndi árlega sparast í beinhörðum gjaldeyri mun hærri upphæð en seðlabankinn varði til hlutafjárkaupa í Glitni.
Geir: Langur fundur að hefjast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bjart framundan Mannæta kemur Íslandi til aðstoðar
Fimmtudagur, 2. október 2008
Þó syrti í álinn í efnahagslegu tilliti geta Íslendingar ornað sé við þann gríðarlega vöxt sem orðið hefur í utanríkisþjónustunni í tengslum við metnaðarfull áform ríkisstjórnarinnar að komast í öryggisráðið. Stjórnvöld hafa sýnt ráðdeild og hugvitssemi t.d. þegar þau skutu keppinautunum ref fyrir rass með því að efna til stjórnmálasambands við mannætu. Helsti kosturinn við þetta er sá að ef einhverjir stjórnmálamenn verða ekki endurkjörnir t.d. vegna mistaka í efnahagsstjórnun verður hægt að koma þeim fyrir öryggisráðinu.
Halldór Ásgrímsson stóð sig frábærlega sem utanríkisráðherra og engin ástæða er til að ætla að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði eftirbátur hans.
Tæplega 1.500 sagt upp í hópuppsögnum í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kolbrún mannfjandsamleg!
Mánudagur, 8. september 2008
Leiguliði lýsir kvótakerfinu:
Laugardagur, 30. ágúst 2008
Leiguliðar athugið! |
Ólafur R. Sigurðsson skrifar:
Kvótakerfinu var, illu heilli, komið á fyrir um 24 árum síðan.
Yfirlýstur tilgangur þess var að vernda fiskistofnana og tryggja byggðir við sjávarsíðuna.
Skemmmst er frá því að segja að hvorugt markmiðið hefur náðst. |
Vegna kvótakerfisins er þorskstofninnn ekki svipur hjá sjón og margar byggðir eiga í vök að verjast.
Þrátt fyrir að fiskverð hafi margfaldast að raungildi hafa skuldir sjávarútvegsins aukist með enn risavaxnari skrefum. Þannig hafa skuldir sjávarútvegsins aukist um 350% á tíu árum þó umsetningin sé nánast sú sama. Eina leið stjórnvalda til að taka á brottkasti og sóun í kvótakerfinu er að setja upp rándýrt en gagnslaust eftirlitskerfi og refsa þeim sem eru svo heiðarlegir að viðurkenna brot sín. Þrátt fyrir þetta augljósa árangursleysi hefur verið haldið áfram á sömu braut. Sumir flokkarnir reyna, að því er virðist, fremur af vilja en mætti að hafa skoðun á öllum málum, s.s. sjávarútvegsmálum. Jafnvel Vinstri grænir eru þar engin undantekning.
Kosningaloforð þeirra í sjávarútvegsmálum er að gera upptæk í ríkissjóð 5% af leigukvóta. Þetta myndi draga úr framboði leigukvóta og hækka hann til muna. Hagsmunir okkar leiguliðanna eru þeir, að meðan við þurfum að búa við þetta kerfi, sé nægt magn kvóta til leigu og á skikkanlegu verði.
Leiguliðar, oft var þörf en nú er nauðsyn, tölum við vini og vandamenn og kjósum F fyrir frelsi 12. maí. |
Nýtt fiskveiðiár mörgum erfitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Tjarnarkvartettinn vonaðist eftir að Ólafur veiktist!
Föstudagur, 22. ágúst 2008
Óskar Bergsson í bersöglisviðtali: "Þegar Ólafur F. Magnússon varð borgarstjóri segist Óskar hafa talið að besta leiðin til að fella meirihlutann væri að minnihlutaflokkarnir sýndu að þeir væru tilbúnir að taka við stjórn borgarinnar þegar Ólafur færi frá. Þróunin hefur hinsvegar orðið sú að Ólafur hefur færst allur í aukana á þeim tíma sem liðinn er og því fjaraði út það markmið Tjarnarkvartettsins að bíða eftir völdunum, segir hann."
Margrét var tilbúin til að hlaupa til og fella meirihlutann ef Ólafur veiktist og fékk að launum vel borgaða nefndarsetu. Þegar Ólafur F. Magnússon leitaði eftir samvinnu við Samfylkinguna um kjör í nefndir setti hún þau ósvífnu skilyrði að Margrét yrði valin. Þegar ekki var gengið að þessum afarkostum skipaði Samfylkingin Margréti og vinkonu hennar í ýmsar nefndir. Þannig sýnir Samfylkingin hvernig hún verðlaunar veiklundaða einstaklinga sem eru tilbúnir til að svíkja kjósendur sína.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Traust athafnastjórn í Reykjavík?
Laugardagur, 16. ágúst 2008
Nú þegar blikur eru á lofti í efnahagsmálum er nauðsynlegt að sýna dirfsku í ákvarðanatöku en eyða ekki dýrmætum tíma í óþarfa málæði og fundarhöld. Því er gott að það er tryggt að borgin getur áfram ráðstafað hundruðum milljóna króna ef brýna nauðsyn ber til á heimili Vilhjálms jafnvel að kvöldlagi ef málið þolir ekki bið eins og gerðist í Rei og síðar þegar vélað var um kaup húsanna við Laugarveg 4-6. Einstaka nöldurseggir eru að þrasa yfir týndum minnismiðum sem að öllum líkindum hafa lent í ryksugu eða því að þetta hafi verið gert að borgarstjóranum forspurðum og hann hafi viljað fara hægar í sakirnar varðandi húsakaupin. Fyrirgreiðslu- og athafnastjórnmálamenn geta ekki látið slíka gagnrýni trufla sig.
Þess vegna fagna Reykvíkingar nýja meirihlutanum. Eða hvað?
Samfylkingin hafnaði nýjum Reykjavíkurlista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)